Vestfirðingar fjölmenna í íþróttahús til að ræða umdeilda virkjun, veg og sjókvíaeldi við ráðherra Í tilkynningunni kemur fram að öll verkefnin sæta ýmist harðri gagnrýni, þar sem þess er jafnvel krafist að þau verði slegin út af borðinu, eða eru sífellt tafin um framkvæmdaleyfi þrátt fyrir eðlilegt ferli innan stjórnsýslunnar og löngu tímabær framlög á vegaáætlun. Innlent 22. september 2017 12:34
Auglýsa skipulag fyrir virkjun í Strandasýslu Árneshreppur auglýsir tillögur að breytingu á aðal- og deiliskipulagi vegna Hvaleyrarvirkjunar. Framkvæmdirnar eru umdeildar meðal íbúa hreppsins. Oddivitinn segir það há Vestfirðingum að kaupa orku úr öðrum landshlutum. Innlent 4. september 2017 07:00
Virkjunarmálið snertir djúpar tilfinningar Elín Agla Briem er löndunarstjóri í Norðurfirði. Hún setur stórt spurningarmerki við fyrirhugaðar virkjunarframkvæmdir á Ströndum og er meðal þeirra sem vilja standa vörð um náttúru svæðisins. Lífið 5. ágúst 2017 09:00
Íbúar ánægðir með fyrirhugaða virkjun í Hvalá Ánægja er meðal meirihluta íbúa Árneshrepps á Ströndum með fyrirhugaða 55 MW vatnaflsvirkjunar sem VesturVerk hyggst reisa í Hvalá í Ófeigsfirði á næstu árum. Innlent 25. júní 2017 17:27
Hollywood-ljóminn farinn af Djúpavík: Stjörnurnar farnar eftir að hafa sungið og trallað á milli langra vinnudaga á Ströndum Einkaþoturnar farnar og starfsfólki fækkað úr um það bil 300 niður í rúmlega 20. Bíó og sjónvarp 17. október 2016 11:51
Amber Heard í fullum Justice League-skrúða á Ströndum Stórstjörnufans í Djúpavík í Reykjafirði. Bíó og sjónvarp 12. október 2016 19:05
Þetta verður alltaf sveitin mín Þó að töfrar Árneshrepps á Ströndum séu ótvíræðir á lygnum haustdögum þegar Trékyllisvíkin er spegilslétt og jörðin skartar fegurstu litum, þá steðjar að honum vandi nú vegna fólksfækkunar. Tíu manns eru á förum, þar af fimm börn. Lífið 24. september 2016 08:45
Erfiður aðskilnaður móður og dóttur á Ströndum Mæðgur úr Árneshreppi á Ströndum, þær Edda Hafsteinsdóttir, kaupfélagsstjóri í Norðurfirði, og fimmtán ára dóttir hennar, Júlíana Lind Guðlaugsdóttir, lýstu erfiðum aðskilnaði í þættinum "Um land allt" á Stöð 2 í kvöld, en dóttirin þurfti í haust að yfirgefa sveitina sína og flytja til frændfólks í Grafarvogshverfi í Reykjavík þar sem tíundi bekkur grunnskóla er ekki kenndur í Árneshreppi. Innlent 25. nóvember 2012 21:41
Lokuð inni í þrjá mánuði - ekki réttlátt Íbúar Árneshrepps mega búast við að vera innilokaðir í þrjá mánuði í vetur þar sem stjórnvöld ætla ekki að kosta snjómokstur. Ung móðir sem nýlega flutti í hreppinn segir bættar vegasamgöngur númer eitt, tvö og þrjú. Innlent 25. nóvember 2012 19:32
Rætt við fólk í Árneshreppi á Stöð 2 Síðari hluti þáttarins "Um land allt“ sem tekinn var upp í Árneshreppi á Ströndum verður sýndur á Stöð 2 kl. 18:55 í kvöld. Kristján Már Unnarsson, fréttamaður á Stöð 2 og Baldur Hrafnkell Jónsson, tökumaður, voru á ferð í hrppnum 12. október síðastliðinn og tóku þá viðtöl við fólk í hreppnum. Þættirnir njóta mikilla vinsælda og eru með eitt mesta áhorfið á Stöð 2. Atvinnu- og raðauglýsingar 25. nóvember 2012 12:18
Finnst dásamlegt að vera í Árneshreppi Kynslóðaskipti á tveimur bæjum í Trékyllisvík og fjölgun barna í skólanum á Finnbogastöðum hafa kveikt vonarneista um framtíð byggðar í Árneshreppi á Ströndum. Þetta kom fram í þættinum "Um land allt" á Stöð 2 í kvöld. Innlent 18. nóvember 2012 21:07
Kristján Már heimsækir Árneshrepp Stöð 2 hefur sýnt fróðlega þætti á sunnudagskvöldum þar sem fréttamaðurinn Kristján Már Unnarsson ferðast um landið og ræðir við landann. Í þættinum sem heitir "Um land allt“ hafa komið fram ýmsir skemmtilegir einstaklingar sem sagt hafa sögu sína. Meðal annars hefur Kristján Már heimsótt heimilisfólkið að Laugarholti í Ísafjarðardjúpi og Indriða bónda að Skjaldfönn á Snæfjallaströnd. Í næsta þætti heldur Kristján áfram ferð sinni um Vestfirði og ræðir við bændur og búalið í Árneshreppi. Atvinnu- og raðauglýsingar 16. nóvember 2012 15:03