Rannsóknarskýrslan rædd í fræðilegu ljósi Háskóli Íslands mun bjóða stúdentum sérstakt fjölfræðilegt námskeið í sumar þar sem fjallað verður um hrunið í fræðilegu ljósi. Um er að ræða tvö 6 eininga námskeið á BA stigi, sem haldin eru í samfellu. Hið fyrra verður frá 20. maí til 8. júní og hið síðara frá 10. júní til 29. júní. Nemendur geta tekið hvort sem er 6 eða 12 einingar, eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá HÍ. Innlent 18. maí 2010 15:18
Lögreglumenn leiða hvor sinn listann Oddvitar framboðslistanna tveggja í Skaftárhreppi eru lögregluþjónarnir tveir sem starfa í hreppnum, Guðmundur Ingi Ingason varðstjóri og Þorsteinn Kristinsson lögreglustjóri. „Við erum fagmenn á okkar sviði, það er langt því frá að þessi staða trufli okkur," sagði Þorsteinn þegar Fréttablaðið grennslaðist fyrir um málið. Innlent 18. maí 2010 05:30
Þorvaldur Gylfason: Vill tryggja framhaldslíf rannsóknarnefndar Þorvaldur Gylfason vill festa rannsóknarnefnd Alþingis í stofnanamynd svo nefndin geti haldið starfi sínu áfram. Hann segir að það þurfi að rannsaka margt. Innlent 2. maí 2010 13:08
Skýrsla rannsóknarnefndarinnar prentuð í þriðja sinn Ákveðið hefur verið að prenta þriðju prentun af skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis þar sem skýrslan eru uppseld í mörgum bókaverslunum. Í fréttatilkynningu frá Alþingi kemur fram að prentuð verða 2000 Innlent 29. apríl 2010 15:00
Ágreiningur um fréttamat: Sagði upp á Morgunblaðinu Blaðakonan Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir sagði upp starfi sínu sem kvöldfréttastjóri Morgunblaðsins vegna ágreinings um forsíðu blaðsins sem birtist daginn eftir að rannsóknarskýrsla Alþingis var birt. Það var Smugan.is sem greindi frá því að Gunnhildur hefði sagt upp vegna þess að henni mislíkaði inngrip ritstjórans á forsíðu blaðsins. Innlent 29. apríl 2010 10:39
Fékk 800 milljóna yfirdrátt fyrir skíðaskála í júlí 2008 Félag í eigu Ingibjargar Pálmadóttur, 101 Chalet ehf., fékk 800 milljóna króna yfirdráttarlán í hjá Glitni í júlí 2008 fyrir kaupum á skíðasetri í Frakklandi. Þetta var eitt síðasta lánið sem aðili tengdur Baugi fékk í íslensku bönkunum fyrir hrun, að því er fram kemur í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis. Viðskipti innlent 29. apríl 2010 05:00
Tölur um styrki til flokka stemma ekki Tölur sem rannsóknarnefnd Alþingis birtir í skýrslu sinni, um styrki frá Kaupþingi og Landsbanka til stjórnmálaflokka árin 2004 til og með 2008, stemma ekki við þær tölur sem stjórnmálaflokkarnir sjálfir létu Ríkisendurskoðun í té. Innlent 28. apríl 2010 06:15
Fengu milljónir að láni hjá Milestone Sjö fyrrverandi stjórnendur Íslandsbanka og einn framkvæmdastjóri Sjóvár-Almennra fengu 564 milljóna króna lán hjá Milestone Import Export Ltd. til kaupa á hlutabréfum í Glitni í maí árið 2005. Viðskipti innlent 27. apríl 2010 06:00
Skilanefnd kannar hvort birta megi styrki til stjórnmálamanna Skilanefnd Glitnis er að kanna hvort nokkuð sé því til fyrirstöðu að birta upplýsingar um styrkveitingar Glitnis til stjórnmálamanna með sama hætti og skilanefndir Kaupþings og Landsbanka Íslands hafa gert. Innlent 27. apríl 2010 06:00
Umhverfisráðuneytið vill læra af rannsóknarskýrslunni Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra hefur sett af stað vinnu í umhverfisráðuneytinu til að fara yfir skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis og skoða hvort niðurstöður hennar kalli á breytingar á starfsháttum ráðuneytisins. Innlent 26. apríl 2010 15:58
Forðuðust að spilla sök Þrátt fyrir að rannsóknarnefnd Alþingis setji fram mikið af upplýsingum um vafasama viðskiptahætti aðaleigenda bankanna og eignarhaldsfélaga þeirra lagði nefndin litla áherslu á að taka skýrslur af þessum sömu aðilum. Þó var áhersla lögð á að ræða við þá um samskipti þeirra við stjórnvöld þar sem störf stjórnvalda voru í brennidepli nefndarinnar. Innlent 26. apríl 2010 03:15
Halldór vildi ekki tjá sig um skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis Halldór Ásgrímsson, fyrrverandi ráðherra, vildi ekki tjá sig um skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis þegar Vísir náði af honum í dag. Innlent 25. apríl 2010 13:55
Mikilvægar vísbendingar um refsiverða háttsemi Í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis má finna mikilvægar vísbendingar um umfangsmikla refsiverða háttsemi í rekstri fjármálastofnana og tengdra aðila. Þetta kom meðal annars fram í erindi Sigurðar Tómasar Magnússonar, prófessors við Háskólann í Reykjavík, á ráðstefnu um rannsóknarskýrsluna sem fram fór í HR í dag. Innlent 24. apríl 2010 19:45
Rannsaka þarf sparisjóðina Rannsóknarnefnd Alþingis telur að íslenska sparisjóðakerfið verðskuldi sérstaka athugun en að það sé Alþingis að taka ákvörðun slíka rannsókn. Ríkið tók yfir rekstur Byrs og Sparisjóðs Keflavíkur í fyrrakvöld. Innlent 24. apríl 2010 08:15
Björgólfur Thor verður þér góður vinur Actavis naut stuðnings Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands, til að hasla sér völl í lýðveldinu Serbíu. Innlent 23. apríl 2010 02:00
Hindruðu viðtöl FME við starfsfólk „Glitnis- og Kaupþingsmenn voru mjög ósáttir við að rætt væri við starfsmenn um markaðssetningu sjóðanna. Á báðum stöðum fóru yfirmenn fram á að starfsmenn fengju að hafa lögfræðing hjá sér, en á endanum var dregið í land með það,“ segir í siðfræðiskýrslu rannsóknarnefndar og er vitnað til minnisblaða frá Fjármálaeftirlitinu (FME) sem nefndin fékk aðgang að. Viðskipti innlent 23. apríl 2010 00:01
Fasteignalánin voru „tómt rugl“ Fasteignalán bankanna voru „tómt rugl“ að mati Sigurjóns Þ. Árnasonar, fyrrverandi bankastjóra Landsbanka Íslands. Í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis segir hann lánin hafa verið á alltof lágum vöxtum og að hann hafi verið hissa að erlend matsfyrirtæki tækju ekki í taumana. Viðskipti innlent 22. apríl 2010 05:00
Komu Glitni undan tæplega 20 milljarða afskrift korteri fyrir hrun Fyrirtækjasvið Glitnis kom bankanum undan hátt í tuttugu milljarða króna afskrift sumarið 2008 með því að fá grunlausan bókaútgefanda til að eignast félag í eigu bankans - félag sem var með verðlausar eignir og sautján milljarða króna skuldir. Skilanefnd Glitnis rannsakar málið. Viðskipti innlent 19. apríl 2010 18:30
Framkvæmdin önnur en í Noregi Álitaefni er hvort bankarnir hefðu ekki betur dregið frá skráðu eiginfé lán sem veitt voru með veði í hlutabréfum þeirra sjálfra. Rannsóknarnefnd Alþingis bendir á að skort hafi á umræðu um þetta mál í tengslum við endurskoðun reikninga fjármálafyrirtækja. Innlent 19. apríl 2010 06:00
Íhugar að hætta sem varaformaður Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, tilkynnir í dag um hvort hún bregst sérstaklega við vegna lántöku eiginmanns hennar, Kristjáns Arasonar. Það mun hún gera á flokksráðsfundi sem hefst klukkan 9.30 í Reykjanesbæ. Innlent 17. apríl 2010 06:00
Glitnir horfði fram hjá feðgatengslum Þrátt fyrir skyldleika Werners Rasmussonar við Karl og Steingrím Wernerssyni skilgreindi lánanefnd Glitnis þá ekki sem slíka. Þegar félag bræðranna rauf skilmála við erlenda kröfuhafa veitti Glitnir tuttugu milljarða fyrirgreiðslu. Viðskipti innlent 17. apríl 2010 03:30
Endurskoðun samþykkt - Fjármálaráðherra mjög ánægður „Ég er mjög ánægur með að þetta sé í höfn og að þetta gekk snurðulaust fyrir sig,“ segir Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, en Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn (AGS) samþykkti nú síðdegis aðra endurskoðun íslands. Innlent 16. apríl 2010 18:12
Forsætisráðherra fundaði með Joly Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra átti fund með Evu Joly, ráðgjafa sérstaks saksóknara, í dag til að heyra hennar viðhorf um stöðu mála og nauðsynlegar aðgerðir við rannsókn efnahagsbrota í ljósi skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis. Innlent 16. apríl 2010 16:43
Illugi víkur sæti á Alþingi tímabundið Illugi Gunnarsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins hefur ákveðið að taka sér leyfi frá störfum á Alþingi í ljósi þess að rannsóknarnefnd Alþingis hefur vísað málum peningamarkaðssjóða til athugunar hjá sérstökum saksóknara. Illugi sat í stjórn Sjóðs 9 hjá Glitni á sínum tíma. Innlent 16. apríl 2010 12:46
Endurskoðun tekin fyrir ári of seint Ekki kemur í ljós fyrr en að afloknum fundi stjórnar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) í dag hvort náðst hefur að tryggja fjármögnun á framgangi efnahagsáætlunar Íslands og AGS. Innlent 16. apríl 2010 06:00
Bakkavararbræður með opinn tékka Bræðurnir Ágúst og Lýður Guðmundssynir og félög tengd þeim virðast hafa haft ágætt aðgengi að lánsfé úr sjóðum Kaupþings, samkvæmt skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis. Viðskipti innlent 16. apríl 2010 04:00
Illugi lagði áherslu á að Glitnir keypti skuldabréf í Stoðum Illugi Gunnarsson, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins og þáverandi stjórnarmaður í Glitni sjóðum, lagði áherslu á að Glitnir keypti skuldabréf í Stoðum af peningamarkaðssjóðum Glitnis fyrir 11 milljarða daginn eftir þjóðnýtingu bankans. Innlent 15. apríl 2010 12:54
Rannsóknarskýrslan bókmenntaverk "Það væri að minnsta kosti fróðlegt að leggja hana fram til bókmenntaverðlaunanna, segir Andri Snær Magnason rithöfundur um rannsóknarskýrslu Alþingis. Andri segir skýrsluna vel skrifaða og yfirgripsmikla og færi umræðuna á nýtt plan. Innlent 15. apríl 2010 11:44
Hundrað milljarða lán mánuði fyrir hrunið Björgólfsfeðgar keyrðu viðskiptaveldi sitt áfram á lánveitingum frá Landsbankanum. Fall annars þeirra hefði sett tvo banka á hliðina, að mati dansks bankasérfræðings. Innlent 15. apríl 2010 03:00
Gáfu bönkum meira frelsi en EES krafðist Stjórnvöld gáfu íslensku bönkunum miklu meira starfsfrelsi en skylt var samkvæmt samningunum um evrópska efnahagsvæðið, segir rannsóknarnefnd Alþingis. Þetta jók áhættuna og gerði bankana vanbúna að mæta kreppu. Innlent 15. apríl 2010 03:00