Tekjur af bjórsölu hærri en tekjur af miðasölu
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur undanfarna daga fundað með forsvarsmönnum knattspyrnufélaga vegna áfengissölu og hefur eitt þeirra hætt henni á meðan leyfisumsókn stendur. Fyrrverandi framkvæmdastjóri segir félögin verða fyrir miklu tapi vegna málsins, tekjur af bjórsölu séu í sumum tilvikum orðnar meiri en af miðasölu.