Hrákinn endaði í andliti og auga Lovísa Arnardóttir skrifar 2. nóvember 2026 20:03 Birgir Finnsson slökkviliðsstjóri Slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu segir áður hafa verið hrækt á sjúkraflutningafólk en það hafi ekki áður endað í andliti og auga. Vísir/Anton Brink Birgir Finnsson slökkviliðsstjóri á höfuðborgarsvæðinu segir miður þegar sjúkraflutningamenn verði fyrir aðkasti eða hótunum á meðan þeir sinna starfi sínu. Greint var frá því í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í gær að hrækt hefði verið á sjúkraflutningamann aðfaranótt sunnudags. Um tuttugu prósent segja í könnun að þeir hafi orðið fyrir áreitni eða ofbeldi í vinnunni. „
Það er alvarlegt og miður þegar sjúkraflutningamenn verða í sínum störfum fyrir svona hótunum um ofbeldi og að það endi með leiðindum og að hrækt sé á starfsmann,“ segir hann og að hrákinn hafi endað í andliti og þar með talið auga. Birgir segir sjúkraflutningamenn hafa verið kallaða til og lögreglu sömuleiðis. „Þetta er einstaklingur sem lögregla var að kljást við og við komum svo inn í það. Við lítum þetta alvarlegum augum en faglega eru líkur á smiti úr hráka í auga ekki miklar,“ segir hann. Leita á slysadeild Hann segir öll slík mál skráð sem atvik og það sé skýrt verklag þegar slökkviliðsmenn og sjúkraflutningafólk verður fyrir slíku að leita á slysadeild, fara í blóðprufu samdægurs og svo aftur innan nokkurra vikna. „Sama hvort það er viljaverk eða óviljaverk verður að bregðast við því. Það hefur áður verið hrækt á okkur en ekki þannig að það fór í andlit,“ segir hann. Slíkt verklag sé einnig virkjað við aðrar aðstæður eins og þegar fólk hefur stungið sig á nál eða rifið hanska við meðhöndlun á sjúklingum. Sjúkraflutningafólk þarf stundum vegna starfs síns að leita á slysadeild. Vísir/Vilhelm Tuttugu prósent orðið fyrir áreitni eða ofbeldi Hann segir reglulega gerðar kannanir meðal starfsfólks um líðan og upplifun í starfi. Í nýlegri könnun hafi verið spurt hversu margir hefðu orðið fyrir áreitni eða ofbeldi í vinnunni af hálfu utanaðkomandi á síðustu tólf mánuðum. Tuttugu prósent hafi svarað því játandi í nýjustu könnunni. Birgir segir hlutfallið of hátt. „Við verðum því miður stundum fyrir aðkasti. Starfið felur það því miður í sér, því þó svo við séum í langflestum tilfellum að aðstoða fólk sem kallar á aðstoð og vill aðstoð þá er eðli starfsins og mannlífsins í borginni að við sinnum líka fólki sem er ekki alltaf sátt við það.“
Slökkvilið Heilbrigðismál Lögreglumál Reykjavík Mest lesið Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Erlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent „Tíminn er á þrotum“ Erlent Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Innlent Nauðlenti vegna sprengjuhótunar Erlent Líkamsárás í miðbænum Innlent Hrákinn endaði í andliti og auga Innlent Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Innlent Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Erlent Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife Innlent Fleiri fréttir Líkamsárás í miðbænum Játar að hafa logið til um nauðgun Hrákinn endaði í andliti og auga Breytt vinnubrögð sköpuðu núning milli forstjóra og stjórnar Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Ábendingar borist um skemmdarverkin Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife „Takk fyrir vinskapinn, elsku Lárus“ Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Tíst Ólafs Ragnars hafi verið mun alvarlegra „Skítapakk, spurning að maka þessu á bílinn næst“ „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Vilja leyfa eldri borgurum að ráða sér au pair Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Flestir neita sök og umfangsmikil réttarhöld í vændum Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Manndrápsmál, eltihrellir og söguleg kaup Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Gekk á milli bíla og braut rúður Fjölmenni í héraðsdómi Þriðjungur til Þórs og KA en rúmt prósent í menninguna Hreyfingar mælast og aukin vöktun Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Skattlagning á erlenda tæknirisa enn til skoðunar Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Sjá meira