Fótbolti

Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro

Andri Broddason skrifar
San Siro hefur verið heimavöllur bæði AC Milan og Inter.
San Siro hefur verið heimavöllur bæði AC Milan og Inter. James Worsfold/Getty Images)

Búið er að tilkynna nýjan heimavöll fyrir fótboltaliðin AC Milan og Inter Milan á Ítalíu. Liðin hafa deilt sögufræga heimavellinum San Siro og munu halda áfram að deila heimavelli en sá nýi mun heita Generali Stadium.

Bæði félögin deildu myndum af því hvernig leikvangurinn mun líta út þegar hann verður tilbúinn en ekki er búist við að völlurinn verði klár fyrr en seinni part 2031 eða fyrri part 2032. Myndböndin sýna að völlurinn verði magnað mannvirki.

Völlurinn mun taka yfir 70 þúsund manns í sæti sem er minna en á San Siro sem er með pláss fyrir yfir 75 þúsund áhorfendur. San Siro mun þó heyra sögunni til og mun hann verða jafnaður við jörðu þegar Generali Stadium verður klár.

Þrátt fyrir sögulegt gildi San Siro er hann kominn til ára sinna og þrátt fyrir ítrekað viðhald þarf að skipta honum út.

Samkvæmt The Guardian var hópur stuðningsmanna Inter Milan ekki sáttur við hugmyndirnar um nýjan völl og vilja þeir halda sínum gamla heimavelli. Á fundinum þar sem verið var að kynna nýja völlinn voru stuðningsmenn Inter fyrir utan sem vildu ekki missa San Siro sem heimavöll sem er sögufrægur leikvangur. Þeir mótmæltu því að verið væri að rífa San Siro sem hefur verið heimavöllur liðsins síðan 1947.

Það er einkennilegt að tvö félög deili sama heimavelli, sérstaklega þegar liðin hafa lengi eldað grátt silfur saman. Þrátt fyrir að vera miklir andstæðingar þá hefur ekki verið vandamál fyrir liðin að deila heimavelli. Félögin passa einfaldlega að eiga ekki heimaleiki á sama tíma.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×