Ekið á ástralska þingkonu Samúel Karl Ólason skrifar 19. október 2026 09:23 Helen Haines hefur setið á þingi í Ástralíu sem óháður þingmaður frá 2019. AP/Mick Tsikas, AAP Ekið var á ástralska þingkonu fyrir utan skrifstofu hennar í Wangaratta í morgun. Útlit er fyrir að 43 ára maður hafi vísvitandi ekið á Helen Haines á Toyota Landcruiser en Anthony Albanese, forsætisráðherra, segir atvikið rannsakað af hryðjuverkalögreglu.
Haines, sem er 65 ára gömul, er sögð alvarlega slösuð en maðurinn sem ók bílnum var yfirbugaður á vettvangi af almennum borgurum og svo handtekinn. Lögregluþjónar fundu hníf í bílnum, samkvæmt lögreglunni. Ástralska ríkisútvarpið hefur eftir Albanese að draga þurfi úr spennu í pólitískri umræðu í Ástralíu. Það er eitthvað sem hann hefur lengi kallað eftir en ástralskir stjórnmálamenn hafa í gegnum árin þótt mjög aðgengilegir og hafa getað gengið um götur án sérstakrar verndar. Þetta hefur orðið erfiðara á undanförnum árum þar sem ógnanir gegn embættis- og stjórnmálamönnum hafa færst í aukana. Albanese sagðist í morgun ekki vilja samfélag þar sem stjórnmálamenn geta ekki rætt við almenning í matvöruverslunum eða á götu úti. Það væri mikilvægur liður í áströlsku lýðræði. „Og auðvitað einhver eins og Helen Haines, sem kemur úr þessu samfélagi, var mjög sýnileg og á ferðinni meðal fólks. Ég hafði ánægju af því að verja tíma með Helen Haines í hennar heimakjördæmi og ég veit að hún nýtur þar mikillar virðingar þvert á pólitískar línur.“ Forsætisráðherrann sagði Haines alltaf koma fram við aðra af virðingu. Hún væri sjálf vel virt af öllum þingmönnum. Ekkert rúm væri fyrir pólitískt ofbeldi í Ástralíu. Krissy Barrett, yfirmaður Alríkislögreglu Ástralíu, sagði í fyrra að hótunum og ógnum gagnvart þingmönnum hefðu tvöfaldast í fjölda á undanförnum þremur árum. ABC er með beina útsendingu vegna atviksins, sem Albanese hefur sagt að hafi ekki verið slys, og má horfa á hana hér að neðan.
Ástralía Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Veður Fleiri fréttir Ekið á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Sjá meira