Skoðun

Þjóðar­öryggi, fæðuöryggi og al­manna­hags­munir

Mikið hefur verið skrifað og rætt um fæðuöryggi, skýrslur skrifaðar og ráðstefnur haldnar. Minna hefur farið fyrir heildstæðum áætlunum eða aðgerðum stjórnvalda sem raunverulega tryggja fæðuöryggi á Íslandi. Þessi staða er umhugsunarverð, ekki síst vegna þess að almenn samstaða virðist vera á meðal þjóðarinnar og einnig á Alþingi um að fæðuöryggi sé mikilvægur hluti þjóðaröryggis og að þjóðaröryggi verði ekki tryggt án fæðuöryggis. Hér eru á ferð grundvallarhagsmunir þjóðar. Almannahagsmunir, en ekki sérhagsmunir.

Á degi landbúnaðarins fyrir skemmstu, var málþing haldið í boði Bændasamtaka Íslands og Samtaka fyrirtækja í landbúnaði, þar sem flutt voru mörg áhugaverð erindi. Eitt þeirra flutti Helgi Valberg Jensson, ritari Þjóðaröryggisráðs og var yfirskrift erindis hans „Landbúnaður og fæðuöryggi í þjóðaröryggi Íslands“. En sjöundi áhersluþáttur af tólf í þjóðaröryggisstefnu Íslands fjallar einmitt m.a. um vernd og órofa virkni mikilvægra innviða, styrkingu áfallaþols samfélagsins og því tengdu matvæla- og fæðuöryggi og samhæfðan viðbúnað. Ritari þjóðaröryggsráðs í sínu fróðlega fyrrnefnda erindi, teiknaði upp tvær sviðsmyndir í yfirferð sinni (A) Innflutningur matvæla hættir að berast til Íslands en eldsneyti, fóður, áburður og lyf og önnur aðföng berast áfram og (B) Allar aðfangaleiðir raskast: innflutt matvæli og aðföng til innlendrar framleiðslu hætta að berast. Því er skemmst frá að segja að sviðsmynd B er talin líklegri og er þess utan mun alvarlegri, sem segir okkur enn og aftur að öflug innlend matvælaframleiðsla er gríðarlega mikilvæg almannahagsmunum þjóðar.

Ég mæli eindregið með áhorfi á erindin sem flutt voru og hvet sérstaklega atvinnuvegaráðherra Viðreisnar til að horfa á upptöku af fundinum, hafi hún ekki horft á í streymi. Ég vil benda henni sérstaklega á að fram kom að grunnurinn að fæðuöryggi væri öflug innlend matvælaframleiðsla, virkt stoðkerfi, nauðsynlegar birgðir og fjölbreyttar aðfangaleiðir. Enginn nefndi að lykillinn að fæðuöryggi væri aukinn innflutningur matvæla eða niðurfellingar tolla, enda ýtir slíkt alls ekki undir fæðuöryggi. Á erindi forsætisráðherra, Kristrúnar Frostadóttur, var ekki annað að skilja en að hún ætli að standa með innlendri matvælaframleiðslu, landbúnaði og fæðuöryggi og þar með þjóðaröryggi, sem eru jákvæð skilaboð til landsmanna.

Ég hef nú lagt fram á Alþingi, í þriðja sinn, tillögu til þingsályktunar um að fela atvinnuvegaráðherra að ráðast í þar tilgreindar aðgerðir, í samstarfi við hagaðila, sem allar miða að því að stuðla að fæðuöryggi og efla innlenda matvælaframleiðslu. Ein þessara aðgerða er að gera heildstæða landsáætlun með þátttöku hagaðila, þar sem útlistað verði hvernig fæðuöryggi þjóðarinnar verði tryggt, við hvaða aðstæður sem upp kunna að koma og lagt til að við gerð slíkrar áætlunar verði sérstaklega tekið mið af þjóðaröryggisstefnu Íslands og mati á mikilvægum innviðum. Ég fæ vonandi að kynna tillöguna áður en langt um líður.

Með samstilltu átaki gerum við enn betur í að tryggja fæðuöryggi þjóðarinnar, það er of seint að hefjast handa þegar áfall hefur dunið yfir.

Höfundur er þingmaður Miðflokksins.




Skoðun

Sjá meira


×