Skoðun

Geð­heil­brigði - sam­eigin­legt verk­efni okkar allra

Snæfríður Jóhannesdóttir og Þórey Rósa Einarsdóttir skrifa

Í dag er Alþjóðlegur dagur geðheilbrigðis sem haldinn er 10. október ár hvert. Dagurinn kemur í kjölfar Guls september, mánaðar þar sem sérstök áhersla er lögð á geðrækt og sjálfsvígsforvarnir. Af því tilefni er vert að halda umræðunni áfram og beina sjónum að mikilvægi geðheilbrigðis og því fjölbreytta og mikilvæga hlutverki sem geðhjúkrun gegnir í þjónustu við einstaklinga og fjölskyldur þeirra.

Geðheilsan er órjúfanlegur hluti af heilsu okkar, vellíðan og lífsgæðum. Við mætum ólíkum áskorunum á lífsleiðinni og því er mikilvægt að hlúa að geðheilsunni líkt og líkamlegri heilsu. Hluti af þeirri vegferð felst í að leita eftir sérhæfðum stuðningi þegar þörf er á og þekkja þau bjargráð sem við getum sjálf gripið til. Bjargráð eru þær aðferðir sem við nýtum okkur til að takast á við streitu, erfiðar tilfinningar og áskoranir daglegs lífs. Regluleg hreyfing, nægur svefn, félagsleg tengsl og áhugamál eru meðal þess sem getur stuðlað að góðri geðheilsu. Fimm leiðir að vellíðan eru einfaldar aðferðir til að hlúa að geðheilsunni í daglegu lífi. Nánar má lesa um leiðirnar fimm á vefsvæðinu Ísland.is – Geðrækt.

Viðhorf samfélagsins til geðheilbrigðis og kröfur til geðheilbrigðisþjónustu taka sífelldum breytingum. Geðhjúkrunarfræðingar gegna veigamiklu hlutverki þegar kemur að framþróun og umbótum í þjónustu við einstaklinga og fjölskyldur þeirra í samvinnu við aðrar fagstéttir er starfa að geðheilbrigðismálum. Aðstandendur gegna sömuleiðis mikilvægu hlutverki í bataferli einstaklinga sem glíma við andleg veikindi. Fræðsla og stuðningur við aðstandendur eru mikilvægir þættir geðhjúkrunar. Geðhjúkrunarfræðingar eru þannig til staðar fyrir einstaklinga sem takast á við geðrænar áskoranir og fjölskyldur þeirra þegar þörf er á. Geðhjúkrun byggir á heildrænni og einstaklingsmiðaðri nálgun þar sem horft er til líkamlegra, sálrænna og félagslegra þátta. Slík fagleg stoð er mikilvæg fyrir fólk sem stríðir við andleg veikindi sem og þeirra félagslega bakland. Þegar við hlúum að geðheilsunni felst það ekki aðeins í því að huga að eigin líðan heldur einnig í því að rækta tengslin við fólkið í kringum okkur. Góð tengsl við fjölskyldu, vini og samstarfsfólk fela í sér ómetanlegan stuðning og skapa öryggi og grundvöll vellíðunar. Með því að rækta tengsl og sýna hvert öðru umhyggju stuðlum við ekki aðeins að vellíðan hvers annars heldur einnig að bættri geðheilsu - og um leið að betra samfélagi.

Hlúum að geðheilsunni, ræktum mannleg tengsl og sýnum hvert öðru umhyggju í verki.

Höfundar eru geðhjúkrunarfræðingar og deildarstjórar í Geðþjónustu Landspítala.




Skoðun

Skoðun

Glassúrfólkið

Ólöf Skaftadóttir,Kristín Gunnarsdóttir,Hjörvar Hafliðason,Birkir Karl Sigurðsson,Leifur Þorsteinsson,Þórarinn Hjartarson,Gísli Freyr Valdórsson,Gurrý Jónsdóttir,Lína Birgitta,Sólrún Diego skrifar

Sjá meira


×