Geðheilbrigði - sameiginlegt verkefni okkar allra Snæfríður Jóhannesdóttir og Þórey Rósa Einarsdóttir skrifa 10. október 2026 08:31 Í dag er Alþjóðlegur dagur geðheilbrigðis sem haldinn er 10. október ár hvert. Dagurinn kemur í kjölfar Guls september, mánaðar þar sem sérstök áhersla er lögð á geðrækt og sjálfsvígsforvarnir. Af því tilefni er vert að halda umræðunni áfram og beina sjónum að mikilvægi geðheilbrigðis og því fjölbreytta og mikilvæga hlutverki sem geðhjúkrun gegnir í þjónustu við einstaklinga og fjölskyldur þeirra. Geðheilsan er órjúfanlegur hluti af heilsu okkar, vellíðan og lífsgæðum. Við mætum ólíkum áskorunum á lífsleiðinni og því er mikilvægt að hlúa að geðheilsunni líkt og líkamlegri heilsu. Hluti af þeirri vegferð felst í að leita eftir sérhæfðum stuðningi þegar þörf er á og þekkja þau bjargráð sem við getum sjálf gripið til. Bjargráð eru þær aðferðir sem við nýtum okkur til að takast á við streitu, erfiðar tilfinningar og áskoranir daglegs lífs. Regluleg hreyfing, nægur svefn, félagsleg tengsl og áhugamál eru meðal þess sem getur stuðlað að góðri geðheilsu. Fimm leiðir að vellíðan eru einfaldar aðferðir til að hlúa að geðheilsunni í daglegu lífi. Nánar má lesa um leiðirnar fimm á vefsvæðinu Ísland.is – Geðrækt. Viðhorf samfélagsins til geðheilbrigðis og kröfur til geðheilbrigðisþjónustu taka sífelldum breytingum. Geðhjúkrunarfræðingar gegna veigamiklu hlutverki þegar kemur að framþróun og umbótum í þjónustu við einstaklinga og fjölskyldur þeirra í samvinnu við aðrar fagstéttir er starfa að geðheilbrigðismálum. Aðstandendur gegna sömuleiðis mikilvægu hlutverki í bataferli einstaklinga sem glíma við andleg veikindi. Fræðsla og stuðningur við aðstandendur eru mikilvægir þættir geðhjúkrunar. Geðhjúkrunarfræðingar eru þannig til staðar fyrir einstaklinga sem takast á við geðrænar áskoranir og fjölskyldur þeirra þegar þörf er á. Geðhjúkrun byggir á heildrænni og einstaklingsmiðaðri nálgun þar sem horft er til líkamlegra, sálrænna og félagslegra þátta. Slík fagleg stoð er mikilvæg fyrir fólk sem stríðir við andleg veikindi sem og þeirra félagslega bakland. Þegar við hlúum að geðheilsunni felst það ekki aðeins í því að huga að eigin líðan heldur einnig í því að rækta tengslin við fólkið í kringum okkur. Góð tengsl við fjölskyldu, vini og samstarfsfólk fela í sér ómetanlegan stuðning og skapa öryggi og grundvöll vellíðunar. Með því að rækta tengsl og sýna hvert öðru umhyggju stuðlum við ekki aðeins að vellíðan hvers annars heldur einnig að bættri geðheilsu - og um leið að betra samfélagi. Hlúum að geðheilsunni, ræktum mannleg tengsl og sýnum hvert öðru umhyggju í verki. Höfundar eru geðhjúkrunarfræðingar og deildarstjórar í Geðþjónustu Landspítala. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Geðheilbrigði Mest lesið Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson Skoðun Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun Um fóbíu og hatur á Íslam Sverrir Agnarsson Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Má manneskja skipta um trú — og halda lífi? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Tilkoma gervigreindar – kötturinn í Undralandi? Ólafur Aron Sveinsson skrifar Skoðun Veistu hvaða netvíti á að varast? Vilhjálmur Alvar Þórarinsson skrifar Skoðun Borgarnesréttlætið – saga úr umferðinni Guðmundur H Guðjónsson skrifar Skoðun Viðskiptaráð og Láki jarðálfur Andri Snær Magnason skrifar Skoðun Fertugt félag sem ætlar ekki að setjast í helgan stein Guðrún Barbara Tryggvadóttir skrifar Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun Um fóbíu og hatur á Íslam Sverrir Agnarsson skrifar Skoðun Gerast enn kraftaverk á Íslandi? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Viðey – perla í dvala Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Er öryggi barna sökkvandi skip? Alfa Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar Skoðun Það sem allir vilja hafa – en enginn vill sjá S. Hjörtur Guðjónsson skrifar Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson skrifar Skoðun Tíu ár af skattfrjálsri ráðstöfun Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og villts fisks Ingvi Örn Þorsteinsson skrifar Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir skrifar Skoðun Afföll í laxeldi Kristján Ingimarsson skrifar Skoðun Peptíð og íþróttir Birgir Sverrisson skrifar Skoðun Stórsókn eða stór orð? Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir skrifar Skoðun Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Tímamót fyrir notendur – samningur SÍ og SÁÁ Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Ólafur, gæsin og gulleggin Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Eftirlit, útvistun og ábyrgð í velferðarþjónustu Þórhallur Guðmundsson skrifar Skoðun Það hefðu allir gott af því að greiða sín eigin laun Geir Kristinsson skrifar Skoðun Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson skrifar Skoðun Nokkur orð um röflritun Kristján Logason skrifar Sjá meira
Í dag er Alþjóðlegur dagur geðheilbrigðis sem haldinn er 10. október ár hvert. Dagurinn kemur í kjölfar Guls september, mánaðar þar sem sérstök áhersla er lögð á geðrækt og sjálfsvígsforvarnir. Af því tilefni er vert að halda umræðunni áfram og beina sjónum að mikilvægi geðheilbrigðis og því fjölbreytta og mikilvæga hlutverki sem geðhjúkrun gegnir í þjónustu við einstaklinga og fjölskyldur þeirra. Geðheilsan er órjúfanlegur hluti af heilsu okkar, vellíðan og lífsgæðum. Við mætum ólíkum áskorunum á lífsleiðinni og því er mikilvægt að hlúa að geðheilsunni líkt og líkamlegri heilsu. Hluti af þeirri vegferð felst í að leita eftir sérhæfðum stuðningi þegar þörf er á og þekkja þau bjargráð sem við getum sjálf gripið til. Bjargráð eru þær aðferðir sem við nýtum okkur til að takast á við streitu, erfiðar tilfinningar og áskoranir daglegs lífs. Regluleg hreyfing, nægur svefn, félagsleg tengsl og áhugamál eru meðal þess sem getur stuðlað að góðri geðheilsu. Fimm leiðir að vellíðan eru einfaldar aðferðir til að hlúa að geðheilsunni í daglegu lífi. Nánar má lesa um leiðirnar fimm á vefsvæðinu Ísland.is – Geðrækt. Viðhorf samfélagsins til geðheilbrigðis og kröfur til geðheilbrigðisþjónustu taka sífelldum breytingum. Geðhjúkrunarfræðingar gegna veigamiklu hlutverki þegar kemur að framþróun og umbótum í þjónustu við einstaklinga og fjölskyldur þeirra í samvinnu við aðrar fagstéttir er starfa að geðheilbrigðismálum. Aðstandendur gegna sömuleiðis mikilvægu hlutverki í bataferli einstaklinga sem glíma við andleg veikindi. Fræðsla og stuðningur við aðstandendur eru mikilvægir þættir geðhjúkrunar. Geðhjúkrunarfræðingar eru þannig til staðar fyrir einstaklinga sem takast á við geðrænar áskoranir og fjölskyldur þeirra þegar þörf er á. Geðhjúkrun byggir á heildrænni og einstaklingsmiðaðri nálgun þar sem horft er til líkamlegra, sálrænna og félagslegra þátta. Slík fagleg stoð er mikilvæg fyrir fólk sem stríðir við andleg veikindi sem og þeirra félagslega bakland. Þegar við hlúum að geðheilsunni felst það ekki aðeins í því að huga að eigin líðan heldur einnig í því að rækta tengslin við fólkið í kringum okkur. Góð tengsl við fjölskyldu, vini og samstarfsfólk fela í sér ómetanlegan stuðning og skapa öryggi og grundvöll vellíðunar. Með því að rækta tengsl og sýna hvert öðru umhyggju stuðlum við ekki aðeins að vellíðan hvers annars heldur einnig að bættri geðheilsu - og um leið að betra samfélagi. Hlúum að geðheilsunni, ræktum mannleg tengsl og sýnum hvert öðru umhyggju í verki. Höfundar eru geðhjúkrunarfræðingar og deildarstjórar í Geðþjónustu Landspítala.
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun
Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason Skoðun
Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar
Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun
Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason Skoðun