Mjög góður árangur fyrirbyggjandi ónæmisaðgerða gegn RSV hjá ungum börnum Valtýr Stefánsson Thors skrifar 7. október 2026 12:00 Haustið er gengið í garð og ýmsar pestir farnar að láta á sér kræla. Öndunarfærasýkingar eru algengar hjá yngstu börnunum og ýmsir faraldrar fastir liðir yfir veturinn og RSV veiran leikur þar jafnan aðalhlutverk. Börn yngri en 6 mánaða eru í mestri hættu að verða alvarlega veik af veirunni og að þurfa innlögn á sjúkrahús og jafnvel gjörgæsludeildir. Undanfarin ár hafa 150-200 börn á fyrsta aldursári leitað á Barnaspítalann og allt að 60 þurft að leggjast inn á sjúkrahús árlega, þó mismunandi mörg á milli ára. Síðastliðinn vetur hófu sóttvarnaryfirvöld á Íslandi nýja fyrirbyggjandi meðferð gegn RSV og bauðst öllum börnum sem ekki höfðu náð 6 mánaða aldri í byrjun október og öllum börnum sem fæðast eftir það, að fá eina gjöf af einstofna mótefni gegn RSV veirunni sem veitir vörn í u.þ.b. 6 mánuði eða lengur. Langflestir foreldrar á Íslandi tóku þessu fagnandi og um 85-90% þeirra þáðu mótefnin fyrir börn sín. Árangur þessara aðgerða var frábær síðasta vetur. Mikil fækkun varð á staðfestum sýkingum og innlögnum hjá þessum aldurshópi. Meðal barna yngri en 6 mánaða þurftu einungis tvö börn innlögn á sjúkrahús en útskrifuðust sólarhring síðar. Alls þurftu sex börn á fyrsta aldursári innlögn vegna RSV sýkingar og þrjú þeirra fengu ekki mótefnin. Þetta eru afar ánægjulegar niðurstöður og benda til að fyrirbyggjandi meðferð hafi mikil áhrif á sjúkdómsbyrði RSV hjá ungum börnum. Með því að koma í veg fyrir RSV sýkingar á fyrstu mánuðum ævinnar má auk þess búast við minni þörf fyrir notkun sýklalyfja og innöndunarlyfja (astmapúst). Þessi árangur er fagnaðarefni fyrir börn og fjölskyldur þeirra, en hafa þarf þó þann fyrirvara að RSV faraldrar geta verið mjög mismunandi milli ára og ekki tryggt að árangurinn verði jafngóður áfram. Nú í byrjun októbermánaðar er þegar farið að bjóða börnum þessa fyrirbyggjandi meðferð fyrir komandi vetur. Vonandi munu áfram flestir foreldrar á Íslandi nýta sér hana og þannig draga úr líkum á alvarlegum RSV sýkingum hjá yngstu börnunum og að árangurinn verði áfram góður hér á Íslandi, eins og reynslan hefur verið í öðrum löndum. Áfram verður fylgst náið með árangrinum hér á landi eins og gert er annars staðar. Þær upplýsingar munu skipta miklu máli þegar tekin verður afstaða til fyrirbyggjandi aðgerða gegn RSV á komandi árum. Höfundur er barnasmitsjúkdómalæknir Barnaspítala Hringsins og dósent við læknadeild HÍ. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Heilbrigðismál Börn og uppeldi Mest lesið Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson Skoðun Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Um fóbíu og hatur á Íslam Sverrir Agnarsson Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Má manneskja skipta um trú — og halda lífi? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Tilkoma gervigreindar – kötturinn í Undralandi? Ólafur Aron Sveinsson skrifar Skoðun Veistu hvaða netvíti á að varast? Vilhjálmur Alvar Þórarinsson skrifar Skoðun Borgarnesréttlætið – saga úr umferðinni Guðmundur H Guðjónsson skrifar Skoðun Viðskiptaráð og Láki jarðálfur Andri Snær Magnason skrifar Skoðun Fertugt félag sem ætlar ekki að setjast í helgan stein Guðrún Barbara Tryggvadóttir skrifar Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun Um fóbíu og hatur á Íslam Sverrir Agnarsson skrifar Skoðun Gerast enn kraftaverk á Íslandi? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Viðey – perla í dvala Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Er öryggi barna sökkvandi skip? Alfa Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar Skoðun Það sem allir vilja hafa – en enginn vill sjá S. Hjörtur Guðjónsson skrifar Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson skrifar Skoðun Tíu ár af skattfrjálsri ráðstöfun Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og villts fisks Ingvi Örn Þorsteinsson skrifar Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir skrifar Skoðun Afföll í laxeldi Kristján Ingimarsson skrifar Skoðun Peptíð og íþróttir Birgir Sverrisson skrifar Skoðun Stórsókn eða stór orð? Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir skrifar Skoðun Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Tímamót fyrir notendur – samningur SÍ og SÁÁ Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Ólafur, gæsin og gulleggin Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Eftirlit, útvistun og ábyrgð í velferðarþjónustu Þórhallur Guðmundsson skrifar Skoðun Það hefðu allir gott af því að greiða sín eigin laun Geir Kristinsson skrifar Skoðun Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson skrifar Skoðun Nokkur orð um röflritun Kristján Logason skrifar Sjá meira
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun
Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar
Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun