„Úrslitin í leiknum algjörlega verðskulduð“ Stefán Marteinn Ólafsson skrifar 27. september 2026 16:59 Gylfi Tryggvason þjálfari Grindavík/Njarðvík Guðmundur/Vísir Grindavík/Njarðvík vann í dag öflugan og óvæntan 3-2 sigur á FH í Bestu deild kvenna. Gylfi Tryggvason þjálfari Grindavík/Njarðvík var að vonum sáttur þegar hann ræddi við Vísi eftir leik. „
Ég er bara mjög sáttur. Ég held að flest sem að við lögðum upp með fyrir leik hafi gengið bara frábærlega upp og ég er mjög ánægður með stelpurnar í dag“ sagði Gylfi Tryggvason þjálfari Grindavík/Njarðvík eftir sigurinn. Grindavík/Njarðvík skoraði á markamínútunni frægu og fóru með forystu inni í hálfleikinn. „Mér fannst það bara vera það minnsta sem við áttum skilið úr þessum fyrri hálfleik. Ég upplifði það þannig að við hefðum átt að vera þrem, fjórum mörkum yfir í hálfleik. Það hefði ekki verið óeðlilegt að mínu mati“ „Mér fannst við vaða í færum í fyrri og vorum bara frábærar. Ég man eftir einu færi í fyrri sem að þær hefðu átt að nýta betur en 4-1 hefði ekkert verið ósanngjarnt held ég“ „Þetta var bara það minnsta sem við áttum skilið og það breytti ekki miklu hvernig leikurinn spilast. Við förum ekkert að verja eitthvað forskot hérna í seinni hálfleik og höldum áfram að keyra á þær í seinni og skorum tvö góð mörk í viðbót og þá var þetta orðið svolítið steikt“ Grindavík/Njarðvík var komið í þriggja marka forystu þegar fimm mínútur voru liðnar af seinni hálfleik. „Það var alveg skrítið. Við reyndum að halda áfram og í raun vorum að halda áfram að herja á þær fannst mér“ „Það er ekki fyrr en þær skora mark og mörk breyta leikjum og allt það en þetta 3-1 mark breytti leiknum aðeins að þær fóru að þrýsta aðeins á okkur“ „Þær ná inn öðru marki sem að kemur bara úr hornspyrnu og ég veit ekki hvort að það væri rangstaða eða ekki, ég held ekki en hef heyrt einhverja tala um það en það skiptir ekki máli og svo liggja þær á okkur aðeins í lokin og eru að þjarma“ „Þær þjarma að okkur en við stóðum storminn af okkur og úrslitin í leiknum algjörlega verðskulduð að mínu mati“ Emma Nicole Phillips skoraði tvö mörk í dag og er orðin markahæst í liði Grindavík/Njarðvík á tímabilinu. Það er ekki alveg það sem Gylfi sá fyrir sér fyrir mót. „Nei það er alveg rétt. Ég bæði bjóst ekki við því og vonaði í raun að það yrði ekki staðan en ég er bara ánægður með að hún sé að skora og hún er komin með einhver sex mörk í deildinni“ „Ég var eitthvað að tala um að Tinna Hrönn væri tíu marka maður ef hún væri heild, ég nefndi það í öðru viðtali um daginn og hún er komin í gang og skorar í dag frábært mark, stóð sig frábærlega og er að spila mjög vel“ „Mörkin eru að koma úr mörgum áttum og ég held að það sé jákvætt en ég væri alveg til í að vera með markaskorara sem að er að skora þessi gömlu góðu tíu plús mörk“ sagði Gylfi Tryggvason.
Besta deild kvenna UMF Grindavík UMF Njarðvík Fótbolti Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Íslenski boltinn Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport Nokkuð viss um að Íslandsmetið verði slegið Sport Finnur til með Arnari Handbolti „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Fótbolti Kærkominn sigur KA/Þór Handbolti Tvö lið hætt við HM og Spánverjar hlaupa í appelsínugulri viðvörun Sport Fleiri fréttir FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Kane brást illa við gríni Valsarans Nokkuð viss um að Íslandsmetið verði slegið Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór Manzambi reyndist hetja Aston Villa Tár féllu í Bakgarðshlaupinu FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sindri áfram í sextán liða úrslit „Kyngjum þessum leik og klárum hann sem fyrst“ „Þetta er akkúrat staðan sem við vildum vera í“ Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Ólafur hafði betur í Íslendingaslag Elvar öflugur í spennutrylli Keflavík - KR 2-3 | Gabríel gulltryggði annað sæti Fulham vann loksins og sendi Tottenham á botninn Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Ísland missti af verðlaunum með minnsta mögulega mun Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Þór - Stjarnan 3-1 | Þórsarar fyrir ofan fallstrikið eftir frábæran sigur Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Fjölnir fær Ívar Ingimars til starfa Uppgjörið: Valur - KA 4-1 | Brekkan brött fyrir KA Lyfti litlu tæki í stað gulra og rauðra spjalda Neto sá til þess að Everton tapaði í fyrsta sinn Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Tvö lið hætt við HM og Spánverjar hlaupa í appelsínugulri viðvörun Sjá meira