Pargo verður áfram hjá Grindavík Jeremy Pargo hefur framlengt samningi sínum við Grindavík í Bónus deild karla í körfubolta. Körfubolti 12.9.2026 20:43
„Stundum þarftu smá löðrung til að fara í fimmta gírinn“ „Tilfinningin er náttúrulega ólýsanleg,“ sagði Jóhann Kristinn Gunnarsson, þjálfari Þróttar, eftir að liðið tryggði sér sinn fyrsta bikarmeistaratitil með sigri gegn Grindavík/Njarðvík í úrslitum Mjólkurbikarsins í dag. Sport 12.9.2026 19:42
„Munum líklega svekkja okkur í dag og svo heldur lífið áfram“ „Í dag var aðal tilfinningin stolt og svo þakklæti líka, sem kom mér á óvart. Ég hélt að maður ætti að vera fúll eftir að hafa tapað,“ sagði Gylfi Tryggvason, þjálfari Grindavíkur/Njarðvíkur, eftir 2-1 tap liðsins gegn Þrótti Reykjavík í úrslitum Mjólkurbikars kvenna í fótbolta. Fótbolti 12.9.2026 19:37
Grindavík/Njarðvík - Þróttur R. 1-2 | Þróttur bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn 12.9.2026 15:31
Sjáðu aukaspyrnu Lillýjar: Mörkin sem komu Val úr fallsæti og FH á toppinn Íslenski boltinn 7.9.2026 09:34
Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - Valur 1-4 | Valskonur af botninum Valur vann frábæran 4-1 útisigur á Grindavík/Njarðvík í 18. umferð Bestu deildar kvenna í fótbolta í dag. Sigurinn skýtur Val af botninum og raunar af fallsvæðinu. Íslenski boltinn 6. september 2026 18:20
Uppgjörið: Víkingur - Grindavík/Njarðvík 3-0 | Annar sigur Víkings spyrnti liðinu frá botninum Bergdís Sveinsdóttir skoraði tvö mörk og lagði upp eitt þegar Víkingur lagði Grindavík/Njarðvík að velli, 3-0, í 17. umferð Bestu-deildar kvenna í fótbolta á Heimavelli hamingjunnar í Fossvoginum í dag. Þetta var annar sigur Víkings í röð í deildinni sem kemur liðinu upp úr botnsæti. Íslenski boltinn 29. ágúst 2026 13:54
Grindavík mokar inn verðlaunum Sigurganga íþróttaheimildarþáttanna Grindavík á kvikmyndahátíðum heldur áfram. Körfubolti 27. ágúst 2026 16:33
Sjáðu mörkin: Útsendari FH refsaði toppliðinu og Ása Björg með sýningu Stjörnukonur gáfu FH-ingum færi á að komast á topp Bestu deildarinnar í fótbolta í kvöld þegar þær unnu frábæran 2-0 sigur gegn meisturum Breiðabliks í gærkvöld. Grindavík/Njarðvík vann 4-0 stórsigur á Fram þar sem Ása Björg Einarsdóttir var í aðalhlutverki. Mörkin má sjá á Vísi. Íslenski boltinn 21. ágúst 2026 09:02
„Hún fær fullt frelsi til að fara í öll skógarhlaup sem henni dettur í hug“ Vel lá á Gylfa Tryggvasyni, þjálfara Grindavíkur/Njarðvíkur, eftir stórsigur á Fram, 4-0, á heimavelli í kvöld. Hann var einkar ánægður með frammistöðu síns liðs og hrósaði því í hástert í leikslok. Íslenski boltinn 20. ágúst 2026 21:36
„Til skammar á Bestu deildar stigi að vökva ekki völlinn“ Anton Ingi Rúnarsson, þjálfari Fram, sagði að sitt lið hefði orðið undir í baráttunni í fyrri hálfleik í 4-0 tapinu fyrir Grindavík/Njarðvík. Hann var ekki sáttur með aðstæður í Njarðvík í kvöld. Íslenski boltinn 20. ágúst 2026 21:04
Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - Fram 4-0 | Unnu Fram í þriðja sinn í sumar Grindavík/Njarðvík jók möguleika sína á að vera í efri helmingi Bestu deildar kvenna eftir skiptingu verulega með 4-0 sigri á Fram í fyrsta leik 16. umferðar í Njarðvík í kvöld. Ása Björg Einarsdóttir skoraði fyrstu tvö mörk leiksins og lagði það þriðja upp fyrir Söntu Vuskane. Sú síðarnefnda lagði svo fjórða og síðasta mark leiksins upp fyrir Emersen Jennings. Íslenski boltinn 20. ágúst 2026 20:40
Þrótturum mistókst að komast á toppinn Þrótti tókst ekki að komast upp í toppsæti Lengjudeildar karla í kvöld og setja pressu á Mosfellinga sem spila seinna í kvöld. Íslenski boltinn 13. ágúst 2026 19:55
Gylfi: Fjárfestum í leikmönnum því þjálfarateymið er ódýrt Grindavík/Njarðvík tapaði gegn Breiðabliki 1-0 á Eikar-vellinum. Gylfi Tryggvason, þjálfari Grindavíkur/Njarðvíkur, var afar ósáttur með fyrri hálfleik liðsins. Sport 12. ágúst 2026 22:00
Uppgjörið: Breiðablik - Grindavík/Njarðvík 1-0 | Katelyn Duong hetja Blika Blikar unnu 1-0 sigur gegn Grindavík/Njarðvík í 16. umferð Bestu deildar kvenna. Katelyn Duong gerði eina mark leiksins á áttundu mínútu. Íslenski boltinn 12. ágúst 2026 21:43
Sjáðu fernu Emmu og gífurlega mikilvægt mark Vals Emma Nicole Phillips stal senunni í Bestu deild kvenna í fótbolta í gær er hún skoraði öll fjögur mörk Grindavíkur/Njarðvíkur gegn ÍBV. Þá Valur gífurlega mikilvægan sigur gegn Víkingi Reykjavík í botnslag deildarinnar. Öll mörk gærkvöldsins má sjá hér. Íslenski boltinn 8. ágúst 2026 11:15
Afturelding á toppinn eftir stórsigur og tap Fylkis Afturelding er komið á toppinn í Lengjudeild karla í fótbolta eftir öruggan sigur á Grindavík í kvöld. Íslenski boltinn 7. ágúst 2026 21:11
„Spila ekki oft sem framherji en þegar ég geri það þá skemmti ég mér yfirleitt“ Grindavík/Njarðvík mætti ÍBV í 14. umferð Bestu deild kvenna í kvöld á gervigrasinu við Nettóhöllina í Njarðvík. Emma Nicole Phillips stal senunni í kvöld en hún skoraði öll fjögur mörk Grindavík/Njarðvíkur gegn ÍBV í 4-2 sigri. Sport 7. ágúst 2026 20:57
Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík-ÍBV 4-2 | Draumahálfleikur Emmu kláraði ÍBV Emma Nicole Phillips var kona kvöldsins í uppgjöri nýliðanna en hún skoraði fernu í einum hálfleik þegar Grindavík/Njarðvík vann 4-2 sigur á ÍBV í fjórtándu umferð Bestu deildar kvenna. Íslenski boltinn 7. ágúst 2026 19:55
„Ekki það sem við lögðum upp með“ Ingibjörg Lúcía Ragnarsdóttir, fyrirliði Stjörnunnar, var ekki fyllilega sátt eftir markalaust jafntefli gegn Grindavík/Njarðvík í Garðabæ í kvöld. Íslenski boltinn 28. júlí 2026 21:57
Gylfi ósáttur: „Ótrúleg ákvörðun hjá KSÍ“ Gylfi Tryggvason, þjálfari Grindavíkur/Njarðvíkur, var ánægður með frammistöðu liðsins lengst af í markalausu jafntefli gegn Stjörnunni í Garðabæ. Honum fannst þó þreyta hafa sett svip sinn á lokakafla leiksins eftir þétt leikjaprógramm. Sport 28. júlí 2026 21:55
Uppgjörið: Stjarnan - Grindavík/Njarðvík 0-0 | Fer seint í sögubækurnar Stjarnan og Grindavík/Njarðvík gerðu markalaust jafntefli á Samsung-vellinum í Bestu deild kvenna í fótbolta. Íslenski boltinn 28. júlí 2026 21:10
Sölvi keyptur til KR Sölvi Snær Ásgeirsson er genginn til liðs KR í Bestu deild karla en hann kemur til félagsins frá Grindavík í Lengjudeild karla í fótbolta. Íslenski boltinn 28. júlí 2026 14:07
Mirza Bulic yfirgefur Keflavík og semur við Grindavík Grindvíkingar tilkynntu í kvöld um fjóra nýja samninga við leikmenn fyrir titilvörnina í Bónus deild karla í körfubolta næsta vetur og þar af er einn nýr leikmaður. Körfubolti 25. júlí 2026 22:35
Í skýjunum eftir sögulegan sigur: „Þetta var dýrðardagur“ Orðið frábært kom oft fyrir í viðtali við Gylfa Tryggvason, þjálfara Grindavíkur/Njarðvíkur, eftir sigurinn á Fram, 0-3, í dag. Enda tilefni til því Suðurnesjaliðið er komið í bikarúrslit í fyrsta sinn. Íslenski boltinn 25. júlí 2026 20:05
Var strax sannfærð: „Bjóst eiginlega við að þetta myndi vera svona“ Natasha Anasi, reyndasti leikmaður Grindavíkur/Njarðvíkur, brosti breitt eftir að liðið tryggði sér sæti í bikarúrslitum í fyrsta sinn. Natasha skoraði þriðja og síðasta mark Grindavíkur/Njarðvíkur í öruggum sigri á Fram, 0-3, í dag. Íslenski boltinn 25. júlí 2026 19:52