Fleiri herstöðvar ekki slæm tíðindi fyrir Íslendinga Bjarki Sigurðsson skrifar 20. september 2026 16:25 Arnór Sigurjónsson er sérfræðingur í öryggis- og varnarmálum. Vísir/Lýður Valberg Stjórnmálaleiðtogar Danmerkur og Grænlands halda nú til Bandaríkjanna til að undirrita samkomulag um framtíð varnarmála á Grænlandi. Sérfræðingur í varnarmálum segir stöðu Íslands í það minnsta ekki verri reisi Bandaríkjamenn þrjár nýjar herstöðvar á Grænlandi.
Í kjölfar tíðinda um samkomulagið hafa toppar í stjórnmálum víða um heim og í viðskiptalífinu í Danmörku flestallir sagt þetta góðar fréttir fyrir ríkin. Það bíða þó allir með fagnaðarlætin þar til fullbúið samkomulag lítur dagsins ljós. Utanríkisráðherrar Danmerkur og Grænlands, forsætisráðherra Danmerkur og leiðtogi landsstjórnar Grænlands halda til New York í dag þar sem allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna fer fram. Búist er við því að samkomulagið verði undirritað þar. Samkomulagið sé gott Metta Frederiksen forsætisráðherra Danmerkur veitti fjölmiðlum viðtöl rétt áður en hún flaug af stað. Þar sagði hún samkomulagið gott fyrir alla sem að því koma. Hún myndi aldrei undirrita samkomulag sem væri ekki gott fyrir Danmörku og Grænland. Arnór Sigurjónsson, sérfræðingur í varnarmálum, telur að það sem búið er að koma fram varðandi samkomulagið hafi lítil áhrif á Íslendinga. Margt eigi þó eftir að koma fram. „Með bandamenn eins og forseta Bandaríkjanna veit maður aldrei hver hin raunverulega staða er. Ég held að menn þurfi að vera á varðbergi og halda vöku sinni í þessum málum,“ segir Arnór. Herstöðvar ekki slæmar fyrir Íslendinga Bandaríkjamenn stefna á að reisa þrjár nýjar herstöðvar á Grænlandi. Arnór segir það boða gott hvað Danir eru ánægðir með samninginn. „Þannig við verðum að gefa okkur að það innihaldi ákvæði sem skerði ekki framtíðarfullveldi og sjálfstæði Grænlands ef þeir kjósa að verða sjálfstæðir einhvern tímann í framtíðinni. En það sem stóð upp úr kannski var ákvæðið um fjárfestingar. Ég gef mér að takmarkanir á fjárfestingum Grænlendinga og Dana hljóti að beinast að varnartengdum innviðum frekar en fjárfestingum í öðrum hlutum eins og olíuvinnslu eða námuvinnslu. Ég tel að allar slíkar takmarkanir hljóti að vera hamlandi fyrir framtíðarfullveldi og -sjálfstæði Grænlands,“ segir Arnór. Erum við öruggari fyrir vikið ef Bandaríkjamenn eru með fleiri herstöðvar á Grænlandi? „Við erum í það minnsta ekki verr sett ef það má orða það þannig,“ segir Arnór.
Hótanir Bandaríkjanna vegna Grænlands Grænland Danmörk Bandaríkin Donald Trump NATO Öryggis- og varnarmál Utanríkismál Mest lesið Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Innlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Innlent Suðaustan stormur og gul viðvörun Veður Á annað hundrað sektaðir Innlent Vill nýjan Úkraínuforseta Erlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Fleiri fréttir Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Sjá meira