Viðskipti innlent

Endurtakk-bræður opna verslun í Hlemmur.haus

Lovísa Arnardóttir skrifar
Rik og Ross í versluninni.
Rik og Ross í versluninni. Aðsendar

Bræðurnir sem standa að baki hönnunarmerkisins Endurtakk opna á morgun nýtt verslunarrými á jarðhæðinni í Hlemmur.Haus að Laugavegi 114 þar sem  Tryggingamiðstöðin var áður til húsa. Verslunarrýmið er rekið af bræðrunum Rik og Ross McNair. Undanfarin fimm ár hafa þeir rekið vörumerkið Endurtakk, sem framleiðir föt og fylgihluti úr endurnýttum textílefnum.

Í tilkynningu kemur fram að í 114 verði seld verk og vörur frá skapandi aðilum og vörumerkjum í Reykjavík. Þar verði meðal annars hægt að finna fatnað, textíl, skartgripi, leirlist, ilmvötn, listaverk og aðra muni.

Margir þeirra sem selja verk sín í versluninni starfa jafnframt í vinnustofum í Hlemm.haus en þar geta skapandi aðilar leigt vinnurými. Í tilkynningu segir að um 80 prósent af því sem verður til sölu við opnunina sé framleitt í húsinu sjálfu.

Rik segir að hugmyndin að verslunarrýminu hafi kviknað þegar tækifæri gafst til að flytja vinnustofu þeirra bræðra í neðra rými Hlemmur.Haus, þar sem afgreiðsla Tryggingastofnunar var áður til húsa.

Um 80 prósent þeirra vara sem verða seldar í versluninni eru framleiddar í Hlemmur.haus. Aðsend

Velja söluaðila og vörumerki sjálfir

Samhliða flutningunum hafi hugmyndin að versluninni tekið að mótast.

„114 er rými þar sem hlutir eru búnir til og í stöðugri þróun. Við vildum færa fólk nær fullunnu verkunum en líka fólkinu og sköpunarferlinu að baki þeim. Verslunin er sá hluti þessa skapandi samfélags sem opnast út á götuna,“ segir Rik.

Bræðurnir velja sjálfir þá aðila og vörumerki sem fá pláss í 114 og sjá um rekstur verslunarinnar. Þannig geta þátttakendur einbeitt sér alfarið að eigin vinnu. Að auki mun 114 standa fyrir námskeiðum, pop-up-viðburðum og lifandi uppákomum þar sem gestir fá innsýn í sköpunarferlið.

Við opnunina verða vörur frá Elf.ancy, Katre Clay, Indigo Jewellery, Endurtakk, No No Yes Of Course, Ýrúrarí, Bosk, Studio CH, Magnea, Flöff, Hafmeyja, Ilmur og sjór, Sæberg Studio, Acid Habibi og Fözz Studio.

Í tilkynningu segir um þá bræður að Rik hafi lært fatahönnun og fataframleiðslutækni í Glasgow og hafi síðustu tuttugu ár starfað fyrir ólíka hönnuði, einkum við framleiðslustjórnun og rekstur vinnustofa, auk sníðagerðar og vöruþróunar. Undanfarin fimm ár hefur hann rekið vörumerkið Endurtakk, sem framleiðir föt og fylgihluti úr endurnýttum textílefnum, ásamt Ross.

Ross lærði rafmagnsverkfræði í Skotlandi áður en hann flutti til Íslands. Í heimsfaraldrinum kenndi Rik honum að sauma og í kjölfarið stofnuðu bræðurnir Endurtakk. Rik leiðir skapandi starf þeirra en Ross heldur utan um stjórnun og rekstur.

Opnunarpartý verslunarinnar er á morgun frá klukkan 17 til 20 og er opið öllum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×