Hart tekist á um fjárlögin: „Hvað er að þessu liði?“ Árni Sæberg skrifar 14. september 2026 13:47 Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra kynnti fjármálafrumvarp sitt á dögunum. Vísir/Anton Brink Fjármála- og efnahagsráðherra var ómyrkur í máli þegar fjárlagafrumvarp hans var rætt á fundi Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu í morgun. Hann sakaði fyrri ríkisstjórnir um að hafa eytt um efni fram allt frá árinu 2019 og komið ríkissjóði í 800 milljarða króna mínus. „Hvað er að þessu liði?“ spurði hann meðal annars.
Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, tók þátt í pallborði á fundi SFF undir yfirskriftinni Hærri skattar, glötuð tækifæri? ásamt þingmönnunum Örnu Láru Jónsdóttur, Samfylkingu, Hildi Sverrisdóttur, Sjálfstæðisflokki, og Sigríði Á. Andersen, Miðflokki. Fundinn má sjá í heild sinni í spilaranum hér að neðan en pallborðsumræðurnar voru síðastar á dagskrá: Eðli málsins samkvæmt kom nýkynnt fjárlagafrumvarp Daða Más til umræðu og Sigríður og Hildur voru mjög gagnrýnar á að ekki hefði verið farið í meiri niðurskurð í stað skattahækkana til þess að ná fram hallalausum fjárlögum. „Ætlaði hún að kaupa happdrættismiða?“ Daði Már fékk þá orðið og sagðist ekki ætla að draga dul á það að hann hefði viljað ná fram meiri niðurskurði. Aðhaldið nú væri þó það mesta sem komið hefði fram í fjárlagafrumvarpi eftir efnahagshrun. Töluvert sársaukafullar aðgerðir hefði þurft til þess að skera meira niður. „Það sem pirrar mig þó mest er það sem Hildur sagði hérna áðan, eða það sem er á bak við hennar orð. Að gangast ekki við þeirri ábyrgð sem fylgir því að eyða peningum sem voru ekki til, árum saman frá 2019, 20, 21, 22, 23, 24, 25. Endalaus halli á rekstri ríkissjóðs, alveg sama hvernig áraði, og láta síðan eins og sá reikningur endi einhvers staðar annars staðar en hjá íslensku þjóðinni. Hvað er að þessu liði? Það er bara ein leið til að fjármagna ríkissjóð. Ætlaði hún að kaupa happdrættismiða? Ég bara botna ekki í þessu,“ sagði hann. Heilt flugfélag, Covid, stríð og jarðhræringar Hildur benti Daða Má þá á að rekstur ríkisins hefði lengi vel verið í jafnvægi í tíð fyrri ríkisstjórnar. Ríkissjóður hafi til að mynda verið rekinn án halla árin 2016, 2017 og 2018. „Man einhver hvað gerist 2019? Heilt flugfélag hvarf. Man einhver hvað gerist 2020? Jú, eitt stykki heimsfaraldur. Svo stríð, svo jarðhræringar. Beinn kostnaður hljóp á mörg hundruð milljörðum. Undir lok síðasta kjörtímabils var þáverandi ríkisstjórn komin á rétta leið. Vextir voru á niðurleið. Verðbólga var að fara niður. Þangað til að ný ríkisstjórn tók við og skipt um kúrs og við vitum hvar við stöndum núna í þeirri á.“ Spyr „hvar í helvítinu“ reikningurinn hefði átt að lenda Þá sagði Daði Már að hann ætlaði ekki að deila um að áföll hefðu riðið yfir á undanförnum árum. „Það sem ég skil ekki er að þeir sem að tóku ákvörðunina um að fjármagna viðbrögðin með lánum haldi að þurfi ekki að borga þau til baka. Í hvaða heimi er það þannig? Og eru núna með böggum hildar yfir því að reikningurinn falli á þjóðina. Hvar í helvítinu átti hann að falla annars staðar þegar ríkissjóður rekur sig á lánum? Það gerist einfaldlega ekki öðruvísi. Það er eitthvað fundamental að í hagfræðiþekkingu þessara flokka sem halda að það sé hægt að skuldsetja ríkissjóð án neikvæðra afleiðinga fyrir almenning.“
Fjárlagafrumvarp 2027 Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar (2024) Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur (2017-2024) Efnahagsmál Rekstur hins opinbera Tengdar fréttir Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ Stjórn VR kallar fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar kalda kveðju til launafólks. Ekki aðeins hafi stjórnvöld virt að vettugi skuldbindingar um að halda gjaldskrárhækkunum í hófi, heldur hyggist ríkisstjórnin nú hækka gjaldskrár umfram verðbólgumarkmið Seðlabankans. Þá furðar stjórnin sig á því hvers vegna tímabundnar aðgerðir vegna hækkandi olíuverðs voru ekki framlengdar. 10. september 2026 22:59 Telur Þórð hafa misskilið en sama tala varð niðurstaðan Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra telur líklegt að Þórður Snær Júlíusson hafi misskilið upplýsingar þegar hann sagði í mars að bankaskattur ætti að skila sex milljörðum króna. Ráðherrann segist hins vegar ekki geta skýrt hvers vegna sama fjárhæð varð síðar niðurstaðan í fjárlagafrumvarpinu. 10. september 2026 16:47 Mest lesið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Viðskipti innlent Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Viðskipti innlent Fær 9,5 fyrir IKEA og JYSK samsetningar Atvinnulíf Paramount og Warner Bros. heyra brátt sögunni til Viðskipti erlent Þegar svona sprengja springur vill allur vinnustaðurinn „fá allt á hreint“ Atvinnulíf Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Viðskipti innlent Klíníkin sótti 300 milljónir króna Viðskipti innlent G7 setja hundrað milljón tunnur á markaðinn Viðskipti erlent Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Viðskipti innlent „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Sjá meira
Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ Stjórn VR kallar fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar kalda kveðju til launafólks. Ekki aðeins hafi stjórnvöld virt að vettugi skuldbindingar um að halda gjaldskrárhækkunum í hófi, heldur hyggist ríkisstjórnin nú hækka gjaldskrár umfram verðbólgumarkmið Seðlabankans. Þá furðar stjórnin sig á því hvers vegna tímabundnar aðgerðir vegna hækkandi olíuverðs voru ekki framlengdar. 10. september 2026 22:59
Telur Þórð hafa misskilið en sama tala varð niðurstaðan Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra telur líklegt að Þórður Snær Júlíusson hafi misskilið upplýsingar þegar hann sagði í mars að bankaskattur ætti að skila sex milljörðum króna. Ráðherrann segist hins vegar ekki geta skýrt hvers vegna sama fjárhæð varð síðar niðurstaðan í fjárlagafrumvarpinu. 10. september 2026 16:47