Niðurskurður í borginni - mannvirðing? Skúli Helgason skrifar 10. september 2026 07:15 Þær skipulagsbreytingar með fjöldauppsögnum, sem nýr meirihluti borgarstjórnar keyrði í gegn á aukafundi borgarráðs fyrir hálfum mánuði eru alvarleg atlaga að grunnþjónustu við börn, ungmenni og viðkvæma skjólstæðinga skóla, frístundastarfs og velferðarþjónustunnar í borginni. Á sama tíma er grafið undan merku starfi við uppbyggingu nærþjónustu borgarinnar undanfarna áratugi og hugmyndafræði miðstýringar innleidd á kostnað dreifstýringar og valdeflingar íbúa í sínu nærumhverfi. Virðingarleysi og fúsk Í röksemdafærslu meirihluta borgarstjórnar með aðgerðunum kemur fram að eitt af markmiðum aðgerðanna sé mannvirðing. Niðurskurðaraðgerðirnar eru hins vegar keyrðar í gegn án lágmarks virðingar við þá tugi starfsfólks á skóla- og frístundasviði og velferðarsviði, sem missir vinnuna eða þarf að glíma við afleiðingar aðgerða sem eru að mestu óútfærðar og verða ekki útfærðar að fullu fyrr en um áramótin. Ekkert samráð var haft við starfsfólk eða notendur áður en breytingarnar voru samþykktar, öll grundvallarlögmál faglegrar breytingastjórnunar hunsuð, engin tækifæri fyrir starfsfólk að fá samtal við borgarfulltrúa meirihlutans um aðgerðirnar og hvernig ætti að koma í veg fyrir að þjónustan við borgarbúa yrði fyrir alvarlegum skakkaföllum. Starfsfólkið á þessum lykilsviðum almannaþjónustunnar í borginni þarf að búa við nagandi óvissu, í mörgum tilvikum stóraukið vinnuálag, kvíða og vanlíðan næstu mánuði og á sama tíma er boðaður frekari niðurskurður og uppsagnir víðar í borgarkerfinu. Þetta gerist á sama tíma og nýlegur ársreikningur sýndi að rekstur málaflokka borgarinnar í heild á síðasta ári var í góðu jafnvægi, með aðeins 0,1% fráviki frá fjárhagsáætlun ársins. Meirihlutinn hrósar sér af því að aðgerðirnar muni einfalda kerfið, stytta boðleiðir og spara borginni 900 milljónir og heldur því fram að þjónustan verði áfram veitt nálægt íbúunum. Það eru hins vegar bara orð á blaði rétt eins og hin dæmalausa vísan í mannvirðingu hér að ofan. Mestu fjöldauppsagnir í áratugi Skipulagsaðgerðunum nú fylgja mestu fjöldauppsagnir í áratugi í rekstri Aðalsjóðs borgarinnar. 88 starfsmönnum á velferðarsviði og skóla- og frístundasviði var sagt upp, 34 fengu boð um annað starf yfirleitt á lakari launum en 56 misstu vinnuna. Í þeim hópi sem misstu vinnuna voru margir stjórnendur og starfsfólk með áralanga reynslu, faglegir leiðtogar sem sannarlega hafa látið til sín taka t.d. við að byggja upp félagsauð í hverfum borgarinnar, stuðla að inngildingu fjölskyldna með annað móðurmál en íslensku og grípa inn í þegar alvarleg tilvik um áhættuhegðun koma upp í nærsamfélaginu. Dæmi af einum slíkum starfsmanni í borginni er að hann fékk uppsagnarbréf á þriðjudegi,lét af störfum á föstudegi og eitt af hans síðustu verkum var að mæta í einn af grunnskólum borgarinnar sem hluti af áfallateymi hverfisins til að styðja við bakið á starfsfólki skólans og nemendum vegna alvarlegs ofbeldisatviks, sem kallaði á skjót viðbrögð. Enginn mætti í samtalið Engar greiningar hafa verið lagðar fram til að rökstyðja breytingarnar en meirihlutinn vísar í þriggja ára gamla skýrslu sem greinilega þolir ekki dagsljósið því meirihlutinn hefur neitað að leggja hana fram máli sínu til stuðnings. Á sama tíma kalla stjórnendur og starfsfólk frístundastarfsins eftir samtali við oddvita meirihlutans um afleiðingar skipulagsbreytinganna og hvernig eigi að bregðast við þeim en fá ekki áheyrn þrátt fyrir loforð þar um. Stjórnendur félagsmiðstöðva og frístundaheimila í borginni boðuðu alla oddvita meirihlutans og fulltrúa í skóla- og frístundaráði á sinn fund sl. föstudag og þar mættu sex fulltrúar Samfylkingarinnar, Vinstri og Sósíalistaflokksins. Enginn fulltrúi meirihlutans lét sjá sig til að taka þátt í samtali við starfsfólkið og svara brýnum spurningum þess um hvernig ætti að vinna úr flókinni stöðu eftir fjöldauppsagnirnar. Lýðræðið fótum troðið Breytingarnar voru keyrðar í gegn á aukafundi borgarráðs á meðan borgarstjórn hinn lýðræðislegi vettvangur borgarinnar var í sumarleyfi. Þá hefur borgarráð heimild til að fullnaðarafgreiða tillögur og á lokadegi þeirrar heimildar voru aðgerðirnar keyrðar í gegn í krafti meirihlutans gegn mótatkvæðum fulltrúa Samfylkingarinnar. Ég gerði alvarlega athugasemd við vinnubrögðin á fundi borgarstjórnar á þriðjudag og skoraði þar á forsætisnefnd borgarinnar að taka þessi vinnubrögð til skoðunar. Ég lagði þar til að gerðar verði breytingar á samþykktum borgarstjórnar svo komið verði í veg fyrir það að hægt verði að afgreiða svo afdrifaríkar og veigamiklar skipulagsbreytingar í framtíðinni án umræðu og samþykkis í borgarstjórn. Jafnaðarmenn gegn harðri hægri stefnu Meirihlutinn hefur farið illa af stað með vanhugsuðum aðgerðum án þess að leggja fram nein alvöru gögn um hvaða vanda er verið að leysa, á hvaða greiningum aðgerðirnar byggja eða hvernig þær eiga að skila tilætluðum árangri. Þessi vinnubrögð eru fyrir neðan allar hellur en sem betur fer er enn tími til að endurskoða þessi áform, vinna málið betur og leggja fram tillögur sem unnar eru í samráði við starfsfólk velferðarþjónustu og frístundastarfs sem margoft hefur sýnt að því er vel treystandi til að taka þátt í lausnamiðaðri vinnu við að endurbæta þjónustu og skipulag borgarinnar. Samfylkingin mun áfram standa vörð um almannaþjónustuna í borginni, faglegt skóla- og frístundastarf og velferðarþjónustu sem er fyrirmynd margra annarra sveitarfélaga á landsvísu. Við hlífðum sérstaklega þessum málaflokkum þegar hagræða þurfti í borgarkerfinu á tímum heimsfaraldurs fyrir nokkrum árum og við munum berjast af krafti gegn öllum tilraunum hægri meirihluta Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks og Viðreisnar með stuðningi Miðflokksins, til að grafa undan velferðinni í borginni. Höfundur er borgarfulltrúi Samfylkingarinnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skúli Helgason Samfylkingin Reykjavík Borgarstjórn Mest lesið 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir Skoðun Gnexit Viðreisnar Bergþór Ólason Skoðun Af morðingjum og mannkostum Svala Magnea Ásdísardóttir Skoðun Myndin sem þú mátt ekki sjá Anna Laufey Stefánsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson Skoðun Þegar forstjórinn smíðar hugbúnaðinn sjálfur Ása Rún Björnsdóttir,Óttar Guðmundsson Skoðun Pólitískt fleipur landlæknis Bjarni Freyr Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Hvernig samfélagi viltu búa í? Jóna Björk Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar Skoðun Þegar íslenskt auglýsingafé leitar til erlendra tæknirisa Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Námsmat í 10. bekk skólaárið 2026-2027 Gauti Eiríksson skrifar Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Landakortið minnkar ekki þótt lögreglustjórum fækki Lárus Bjarnason skrifar Skoðun Komdu með nestispeningana Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Ósýnilegt fólk og sýnileg ábyrgð Þorvaldur Óttar Guðlaugsson skrifar Skoðun Bókun 35 - þarf virkilega að breyta stjórnarskránni? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun „Ný“ markmið í grunnskólum duga ekki Þórgunnur Reykjalín Vigfúsdóttir skrifar Skoðun Pólitískt fleipur landlæknis Bjarni Freyr Guðmundsson skrifar Skoðun Ákall um samstarf – Ekki bara samtal Anton Kári Halldórsson skrifar Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar Skoðun Myndin sem þú mátt ekki sjá Anna Laufey Stefánsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Skoðun Áttu áttu? Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir skrifar Skoðun Þegar sannleikurinn þjónar ekki óttanum Helena Jónsdóttir skrifar Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Ísland sé frjálst, meðan sól gyllir haf Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir skrifar Skoðun Gilda lögin bara þegar okkur hentar? Sandra Hlín Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Handbók MAGA hreyfingarnar: Flood the zone with shit Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson skrifar Skoðun „Nýjasta tíska, nýjasta tíska –allt innan fjárheimilda!“ Agla Þyri Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Reykjavík á ekki að gera allt ein Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Gnexit Viðreisnar Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ósýnilega fólkið Kristbjörg Þórisdóttir skrifar Skoðun Rammaáætlun: Tvær tillögur – tvenns konar vinnubrögð Katrín Helga Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson skrifar Skoðun Þegar tíminn skiptir öllu Halla Þorvaldsdóttir skrifar Sjá meira
75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun
Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson Skoðun
Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar
Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar
Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar
Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson skrifar
75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun
Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson Skoðun