Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Freyja Þórisdóttir og Tómas Arnar Þorláksson skrifa 5. september 2026 09:37 Sjö voru fluttir til athugunar og aðhlynningar í gærkvöldi eftir að bíll hafnaði á ljósastaur. Vísir/Vilhelm Lögreglan var kölluð til aðstoðar Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu á ellefta tímanum í gærkvöld vegna umferðarslyss austan við bensínstöðina Olís í Norðlingaholti. Sjö voru fluttir á slysadeild en altjón varð á bílnum.
Þetta staðfestir Lárus Steindór Björnsson, varðstjóri hjá Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu, en hann greindi einnig frá því að um hafi verið að ræða einn bíl sem hafnaði á ljósastaur. Í kjölfarið var lögreglan kölluð á staðinn en töluverður viðbúnaður hafi verið á vettvangi. Þeir sjö sem voru fluttir, einn ökumaður og sex farþegar, hafi verið með minniháttar áverka og enginn talinn alvarlega slasaður. Altjón varð á bílnum en enginn grunur er um akstur undir áhrifum né hraðakstur að svo stöddu. Þetta staðfestir Sævar Guðmundsson, aðalvarðstjóri á lögreglustöð 2. Hann greinir einnig frá því að allir sjö hafi verið erlendir ríkisborgarar og séu mögulega ferðamenn en bíllinn var sjö manna Volkswagen fólksbíll af gerðinni Caddy. Ökumaður hafi fyrst keyrt fyrir slysni á ljósastaur en við það missti hann alveg stjórn á bílnum og hafi hafnað á öðrum ljósastaur, sömu megin við veginn. Veistu meira um málið? Eða ertu með aðrar ábendingar? Sendu okkur fréttaskot. Skráningarplata bílsins hafi orðið eftir við fyrri ljósastaurinn en tæknideild lögreglu var kölluð á vettvagn. Vinna á svæðinu tók um tvær klukkstundir en það var verið að stýra umferð um svæðið um og upp úr miðnætti þegar undirritaður átti leið hjá en þá beindi lögregla ökumönnum sem voru á leið í bæinn upp á Nesjavallaleið svo þeir kæmu inn í bæinn um Reynisvatnsveg inn í Grafarholt. Fréttin var uppfærð klukkan 10:02 eftir að frekari upplýsingar bárust.
Lögreglumál Slökkvilið Umferð Reykjavík Mest lesið Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Innlent Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Innlent „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Innlent Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Innlent „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Innlent Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Innlent Tortímir gervigreindin mannkyninu? Innlent Þyrlan lenti við Hörpu Innlent Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Innlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Fleiri fréttir Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Fá loksins að fagna aldarafmælinu „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Fluttur til aðhlynningar eftir umferðarslys Tortímir gervigreindin mannkyninu? „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Sjaldgæfur gestur í Eyjum Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Skriða þveraði veginn í Árneshrepp Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Allt umfram 2,8 milljarða dregið frá Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Húsbíll fauk út af Hver ákvað að Guðmundur Ingi ætti að hætta? Sjá meira