Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Smári Jökull Jónsson skrifar 3. september 2026 14:17 Ljósanótt í Reykjanesbæ var fyrst haldin árið 2000. Vísir/Viktor Freyr Sérstakt viðbragð viðbragðsaðila verður á Ljósanótt vegna unglingadrykkju en hátíðin var sett í morgun. Minningartónleikar um Gunnar Þórðarson verða í Hljómahöll á sunnudag og verkefnastjóri hátíðarinnar segir að af mörgu sé að taka í dagskrá hátíðarinnar.
Ljósanótt var sett í Reykjanesbæ í morgun þegar grunn- og leikskólabörn komu saman í Skrúðgarðinum og sungu Ljósanæturlagið. „Þetta eru tugir sýninga og örugglega í kringum hundrað aðilar sem eru að sýna list og handverk. Þetta er rosa stórt kvöld í bænum, allir að fara hérna á milli og skemmta sér,“ sagði Guðlaug María Lewis, menningarfulltrúi Reykjanesbæjar og verkefnastjóri Ljósanætur. „Við erum fjölskyldu- og menningarhátíð og það er mikið lagt upp úr listasýningum og slíku en það er líka mjög vel gert fyrir börnin. Við erum með ókeypis barnadagskrá í skrúðgarðinum og tívolí og fleira sem fylgir svona hátíðum,“ bætir Guðlaug við en einnig verður boðið upp á tónleika í heimahúsum í anda Heima hátíðarinnar í Hafnarfirði og Hljómeyjar í Vestmannaeyjum. „Síðan eru mjög skemmtileg íbúaverkefni á morgun þar sem íbúar standa fyrir tónleikum í hverfunum. Síðan er það kjötsúpan sem Skólamatur býður upp á,“ sem er stór hefð á Ljósanótt að sögn Guðlaugar. „Erfitt að lýsa þessu með orðum“ Einn af hápunktum Ljósanætur eru stórtónleikar og flugeldasýning á laugardagskvöld og á sunnudag verða haldnir minningartónleikar í Hljómahöll um Gunnar Þórðarson en hann lést þann 30. júlí. Á morgun fer fram svokölluð árgangaganga þar sem allir árgangar bæjarins ganga saman á hátíðarsvæðið. „Það er eiginlega sko erfitt að lýsa þessu með orðum, þetta er algjört sjónarspil. Þetta byrjar þannig að yngstu árgangarnir eru efst, ganga niður og svo bætist alltaf hver árgangur aftan við. Þannig að þú sérð bara heila mannsævi liðast niður Hafnargötuna og þetta er bara algjörlega einstakt.“ Brýna fyrir foreldrum að fjölskyldur fari saman heim Á Menningarnótt í Reykjavík þurfti lögregla að hafa afskipti af töluvert mörgum unglingum vegna áfengisdrykkju. Guðlaug segir öryggisteymi verða að störfum á hátíðinni skipað viðbragðsaðilum í sveitarfélaginu. „Við verðum með sérstakt viðbragð sem er þannig að við erum með Flotann, flakkandi félagsmiðstöð, með okkur og lögregluna sem heimsækir unglingastigið í öllum grunnskólum bæjarins og Fjölbrautaskólann líka,“ segir Guðlaug María. „Þar verður talað um þessi mál og við teljum að þetta sé mjög gott viðbragð. Síðan auðvitað brýning til foreldra í okkar kynningarefni og slíku um að fara saman heim að loknum hátíðahöldum.“
Reykjanesbær Menning Börn og uppeldi Ljósanótt Mest lesið „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Innlent Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Innlent Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Erlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Innlent Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Innlent Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Innlent Fleiri fréttir „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Sjaldgæfur gestur í Eyjum Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Skriða þveraði veginn í Árneshrepp Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Allt umfram 2,8 milljarða dregið frá Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Húsbíll fauk út af Hver ákvað að Guðmundur Ingi ætti að hætta? Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Fundu umfangsmikla kannabisrækt í Bolungarvík „Nauðsynlegt er að kjarasamningar haldi“ Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Freyr látinn fara frá Eflingu Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Stefna á að taka inn skjólstæðinga í næstu viku Segir Ingu hafa brotið trúnað í ræðustól Alþingis Bein útsending: Sjálfsvíg á Íslandi – staðan, forvarnir og leiðin fram á við „Við erum ekki að byrja á núlli“ Fimm ára dómur Norberts staðfestur Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Jöfnuður næst ekki í um öðrum hverjum kosningum Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt alveg rétt frá Endurskoða samning SÁÁ María Sigurðardóttir er látin Handtekinn fyrir líkamsárás, rán, íkveikju og þjófnað Sjá meira