Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Lovísa Arnardóttir skrifar 2. september 2026 08:40 Kristófer segir starfsfólk hafa brugðist vel við og vinnubrögð slökkviliðs og lögreglu hafi verið frábær og fagleg. Samsett Kristófer Oliversson, forstjóri Center Hotel, segir tjónið verulegt á Hótel Skjaldbreið, hóteli þeirra í miðbænum, þar sem kom upp bruni í nótt. Hann segir um 60 gesti hafa verið flutta á önnur hótel í nótt. Tveir gestir voru fluttir á slysadeild vegna gruns um reykeitrun. „
Það eru talsverðar skemmdir í kjallara og skemmdir á öllu hótelinu, vegna þess að það fór reykur um alla ganga, þetta var það mikið,“ segir Kristófer í samtali við fréttastofu. Hann segir stjórnendur meta stöðuna en það eigi eftir að taka tíma að laga hótelið. Hann segir starfsfólk hafa brugðist vel við. Næturvörður hafi orðið var við eldinn og hann hafi getað kallað út starfsfólk á öðrum hótelum sem hafi komið til að aðstoða gesti. Alls eru á hótelinu 33 herbergi og var það nánast fullbókað í nótt. „Við erum með fleiri hótel og gestir fengu inni á önnur hótel,“ segir Kristófer og að alls séu um þúsund herbergi á hótelum Center Hotels og því ráði þau við það að koma fólki sem á bókað að annars staðar. Hann gerir ráð fyrir því að hótelið verði lokað í einhverja daga eða viku. Greint var frá því í morgun að einn hefði verið handtekinn vegna brunans. Kristófer segir lögregluna vera að skoða málið en það séu öryggismyndavélar víða á hótelinu. „Það má þakka lögreglu og slökkviliði fyrir frábær og fagleg vinnubrögð.“ Skemmdir eru á hótelinu vegna reykmengunar. Vísir/Anton Brink Slökkvilið og lögregla brutu þarna hurð í aðgerðum sínum. Vísir/Anton Brink Töluverðar skemmdir eru líka í fataversluninni Andrá sem er í sama húsi. Vísir/Anton Brink
Reykjavík Slökkvilið Lögreglumál Ferðaþjónusta Hótel á Íslandi Mest lesið Óveður gengur yfir landið Innlent Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Innlent Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Innlent Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Innlent Viðvaranir á viðvaranir ofan Veður Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Innlent „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Innlent Fylgstu með lægðinni í beinni Veður Fleiri fréttir Hreyfingin stærri en einstakar persónur Aftakaveður gengur yfir landið og búist við vegalokunum vegna ófærðar Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Inga vill áfram banna atvinnumannahnefaleika Vatnið finni sér leið í gegnum sprungur Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Óveður gengur yfir landið Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Hvetur verkalýðshreyfinguna til samstöðu Skuldar ekkert Fór úr bílnum og hljóp undan lögreglu Enn versnar spáin með nýjum viðvörunum Bandero leitar skjóls í Reykjavík Air Atlanta vinnur áhættumat vegna árása Húta Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Baráttan um varaforsetana: Valdabrölt eða samsæriskenningar? Salmonella greindist í kryddi Kokku Frumvarp um Ríkisútvarp gagnrýnt harðlega í samráðsgátt Stjórnarandstaðan segir „forfallavírus“ ganga meðal ráðherra Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Pawel tekur við af Sigmari sem þingflokksformaður Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Leita ökumanns sem ók á dreng á reiðhjóli „Þá tökum við auðvitað tillit til þess og hlustum“ Sjá meira