Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Áróra L Davíðsdóttir skrifar 1. september 2026 19:18 Runólfur Pálsson forstjóri Landspítala og Alma Möller heilbrigðisráðherra. Samsett Landspítalinn segir stöðuna varðandi sjúklinga með færni- og heilsumat ekki hafa verið betri það sem af er þessari öld. Síðastliðna 12 mánuði hafa 244 ný hjúkrunarrými fyrir aldraða verið opnuð.
Í tilkynningu þess efnis á vef Stjórnarráðsins er haft eftir Runólfi Pálssyni, forstjóri Landspítala. Hann segir að á undanförnum árum hafi sjaldan verið jafn fáir með samþykkt færni- og heilsumat, það er, einstaklingsbundið mat á þörfum einstaklinga fyrir varanlega búsetu á hjúkrunar- og dvalarheimilum. „Það hefur sannarlega rofað nokkuð til á síðustu vikum og fjöldi einstaklinga með samþykkt færni- og heilsumat hefur sjaldan verið lægri ef litið er til undanfarinna ára. Það er fyrst og fremst gleðilegt fyrir þá einstaklinga sem nú hafa fengið varanlega og fullnægjandi búsetu sem mætir þörfum þeirra og styður við lífsgæði og sjálfstæði. Reynslan sýnir þó að þessi staða getur breyst til hins verra á skömmum tíma og verðum við að vera undir það búin. Við munum áfram leggja ríka áherslu á að efla bráðaþjónustu innan Landspítala og munum skapa fjölbreyttari úrræði á komandi mánuðum. Sá mikli fjöldi einstaklinga sem hefur þurft að vistast langdvölum á Landspítala vegna skorts á viðeigandi úrræðum utan spítalans hefur haft veruleg áhrif á getu okkar til að þróa og efla þjónustu stofnunarinnar,“ er haft eftir Runólfi Pálssyni forstjóri Landspítala i tilkynningunni. Fyrirhugað að opna 154 ný rými á næsta ári 64 hjúkrunarrými voru opnuð í Boðaþingi í Kópavogi, 80 á Nesvöllum í Reykjanesbæ og hundrað í Urðarhvarfi sem notuð eru sem skammtímahjúkrunarrými. Nýlega hafi Vífilsstaðir einnig verið opnaðir aftur eftir umtalsverðar endurbætur á húsnæðinu en þar séu 48 rými. Þá sé fyrirhugað að opna 154 ný hjúkrunarrými árið 2027 og 251 árið 2028. Þá verður ný bráðamatsdeild við bráðamóttöku Landspítala í Fossvogi opnuð í haust sem mun létta álagi af bráðamóttökunni, bæta enn flæði sjúklinga og þjónustu við sjúklinga. Mörg uppbyggingarverkefni séu í farvatninu líkt og komi fram í framkvæmdaáætlun um uppbyggingu hjúkrunarheimila til ársins 2030.
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Heilbrigðismál Landspítalinn Eldri borgarar Mest lesið Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Innlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Innlent Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku Innlent Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Innlent Holmes flutt á áfangaheimili Erlent Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt alveg rétt frá Innlent „Mistök að fela honum forystu“ Innlent Hafði ekkert með átök sundþjálfaranna að gera Innlent Fleiri fréttir Ákærðir fyrir að frelsisvipta mann og nauðga með röri Fundu umfangsmikla kannabisrækt í Bolungarvík „Nauðsynlegt er að kjarasamningar haldi“ Hafði ekkert með átök sundþjálfaranna að gera Freyr látinn fara frá Eflingu Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Stefna á að taka inn skjólstæðinga í næstu viku Segir Ingu hafa brotið trúnað í ræðustól Alþingis Bein útsending: Sjálfsvíg á Íslandi – staðan, forvarnir og leiðin fram á við „Við erum ekki að byrja á núlli“ Fimm ára dómur Norberts staðfestur Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Jöfnuður næst ekki í um öðrum hverjum kosningum Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt alveg rétt frá Endurskoða samning SÁÁ María Sigurðardóttir er látin Handtekinn fyrir líkamsárás, rán, íkveikju og þjófnað Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku „Það er skilgreiningin á því að pissa í skóinn sinn“ Sorpa skoðar að fara í mál við grenndargámasóða „Mistök að fela honum forystu“ „Ég hef mikið til verið hér á eigin spýtur“ Uppselt á opnunarmyndina í tveimur sölum Mundaði hníf og skotinn með rafbyssu í Hagkaup á Eiðistorgi Lögregluembættum fækkað verulega Tjón á tveimur bílum þegar tré fauk Mikill vatnsstrókur í Miðfirði Sex skriðuviðvaranir í gildi „Þetta var rétt ákvörðun“ Sjá meira