Hótelgestir þeirra eru fjórfætlingar Kristján Már Unnarsson skrifar 18. ágúst 2026 22:20 Bændurnir í Böðvarshólum, þau Ingveldur Ása Konráðsdóttir og Jón Ben Sigurðsson, ásamt yngsta barninu, syninum Sigurði Pétri. Egill Aðalsteinsson Rekstur hundahótels er orðin aukabúgrein sauðfjárbænda í Vesturhópi í Húnaþingi. Hinir fjórfættu gestir hótelsins koma ekki bara að sunnan heldur af landinu öllu.
Í kvöldfréttum Sýnar fórum við að bænum Böðvarshólum í Vesturhópi en þar er rekið hundahótel og kallast Hólakot. Þar búa þau Ingveldur Ása Konráðsdóttir og Jón Ben Sigurðsson ásamt þremur börnum sínum, sem eru Margrét Ragna tólf ára, Klara Björg sex ára og Sigurður Pétur fimm ára. Þau eru bæði búfræðingar frá Hvanneyri. Búskapurinn byggist á sauðfjárrækt en þetta er fjórða sumarið sem þau reka hundahótel. „Mér bara datt þetta einhvern tímann í hug í fæðingarorlofi. Hvernig við gætum skapað aðeins meiri vinnu hérna heima með sauðfjárræktinni,“ segir Ingveldur. Horft heim að íbúðarhúsi fjölskyldunnar í Böðvarshólum.Egill Aðalsteinsson Við spyrjum hvort gestir hundahótelsins séu einkum að sunnan: „Ekki þessir tveir. Annar er nú bara hérna úr Víðidal og hinn frá Blönduósi. En okkar stærsti markhópur hefur verið höfuðborgarsvæðið. Svo hefur það færst svolítið yfir á Akureyri og Sauðárkrók,“ svarar hún. „Við höfum fengið gesti alveg alls staðar að af á landinu. Af Ströndunum, úr Árneshreppi, austan frá Reyðarfirði,“ segir Jón. „Já, Egilsstaðir. Ég held við séum að vera komin hringinn,“ segir Ingveldur sem er lærður hundaþjálfari. Hundahótelið er í gamla minkahúsinu.Egill Aðalsteinsson Þau þjálfa einnig smalahunda og segja hundahótelið ágæta búbót með sauðfénu. „Þetta er fínt með,“ segir hún. „Mjög gott svona með. Eins og við segjum, það er gott að skapa aðeins meiri vinnu hérna heima á hlaði,“ segir hann. Hundahótelið er í gömlu minkahúsi. Þar eru búr fyrir hundana en þau eru einnig með afgirt útisvæði. „Hótelherbergi“ hundanna.Egill Aðalsteinsson -Gestirnir, aðkomuhundarnir, eru þeir ekkert feimnir við ykkur? „Nei, þeir eru mjög fljótir að byrja að elska okkur. Það gengur bara mjög vel með flesta. Þeir eru bara æðislegir sko,“ segir Ingveldur. Og sumir gestahundanna fá stundum að fara út fyrir girðinguna en eftir samráð við eigendur. „Það fer svona eftir því hvernig þeir eru. Og ef þeir hafa komið oft og maður þekkir þá vel, þá fer ég alveg í langa göngutúra með þá hérna. Og þeir elska það að hlaupa um, bara niður að á eða eitthvert. Það er mjög gaman, já. En það er ekki hægt við alla.“ -Þeir myndu ekki bara stinga af heim til sín og fara yfir Holtavörðuheiði suður? „Sumir kannski myndu gera það. Þess vegna fer ég ekki út með þá lausa,“ svarar Ingveldur Ása hér í sjónvarpsfrétt Sýnar:
Hundar Landbúnaður Húnaþing vestra Dýr Sauðfé Hótel á Íslandi Ferðaþjónusta Mest lesið Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Innlent Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Innlent Hættu við ADHD-greiningu vegna vímuefnaneyslu barnsins Innlent Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Innlent Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Innlent Hafi ekki hótað með keðjusög og að henda þolanda útbyrðis við Grænlandsstrendur Innlent Heiðrún Lind á toppnum hjá hagsmunasamtökum Innlent Hafi aldrei farið í Reykholt Innlent Verktakar óttast stýrivaxtahækkun: „Þá springur allt í loft upp aftur“ Innlent „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Erlent Fleiri fréttir Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Hótelgestir þeirra eru fjórfætlingar Djúpfölsun nýtt til fjársvika á gervifjarfundum Íbúar Bolungarvíkur urðu varir við borgarísjaka Hin hliðin ljúgi að landsmönnum „Salami-aðferðin“ geri það erfitt að hætta við Verktakar óttast stýrivaxtahækkun: „Þá springur allt í loft upp aftur“ Réttarhöld í Reykholtsmáli halda áfram og djúpfölsunum fjölgar Ráðuneytið birtir útreikningana Andstæðingar segja að Áfram Ísland hafi úr allt að 300 milljónum að spila Hafi ekki hótað með keðjusög og að henda þolanda útbyrðis við Grænlandsstrendur Lag Gunnars og Davíðs hljómar þegar hringt er í borgina Óvissustigi í Öskju aflýst Dómsmálaráðherra valdi Ásgerði í Hæstarétt Grunuðum þjófum vísað úr landi og meinuð endurkoma í 7 ár Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Heiðrún Lind á toppnum hjá hagsmunasamtökum Kvikuhlaup frá Svartsengi enn líklegasta sviðsmyndin Tíu af tuttugu efstu embættismönnunum hjá orkufyrirtæki Hafi aldrei farið í Reykholt Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Óttast að þeir tekjulægstu dragi úr kaupum á mat Verðhækkanir hjá Reykjavíkurborg og Kristrún á fundaferðalagi Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Hitnar í kolunum: Já og nei í Pallborði Stolinn bíll fannst úti í á Vilja bæta umferðarflæði með hraðari snjallljósavæðingu Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Erlendir ríkisborgarar flestir í Mýrdalshrepp og fæstir í Kjósarhrepp Sjá meira