Stefnir með sjö fjölskyldum aftur á Unglingalandsmótið UMFÍ 22. júlí 2026 11:05 „Þetta er svo heilbrigð skemmtun. Krakkarnir hreyfa sig, prófa nýja hluti, og fjölskyldurnar fá dýrmæta samveru. Það er eitthvað fyrir alla." Þorbjörg Inga Þorsteinsdóttir sem verður á Unglingalandsmóti UMFÍ á Sauðárkróki um verslunarmannahelgina. „Við skemmtum okkur svo vel í fyrra að það kom ekkert annað til greina en að fara aftur. Þetta er orðið að hefð hjá okkur og við ætlum að halda henni áfram svo lengi sem krakkarnir hafa aldur til að keppa,“ segir Þorbjörg Inga Þorsteinsdóttir en hún stefnir á Unglingalandsmót UMFÍ á Sauðárkróki um verslunarmannahelgina. Skráning er í fullum gangi á mótið og stefnir í fjölmennt og spennandi mót. Þorbjörg verður sannarlega ekki ein á ferð, hópurinn sem hennar fjölskylda tilheyrir samanstendur af sjö fjölskyldum úr Reykjavík og verða yfir tuttugu börn og ungmenni með, sem keppa undir merkjum Fram. „Við mætum öll saman, tjöldum saman og búum til okkar eigið litla þorp. Í fyrra náðum við að vera öll á sama svæði og það skapaði alveg einstaka stemningu, bæði fyrir krakkana og fyrir okkur fullorðna fólkið. Við ætlum okkur að vera mætt snemma til að ná góðu stæði aftur.“ Hún segir Unglingalandsmótið vera allt öðruvísi upplifun en hefðbundin íþróttamót. „Börnin okkar æfa fótbolta og við erum búin að fara á ótal fótboltamót en þetta er allt öðruvísi. Hér er áhersla á að taka þátt, prófa nýja hluti og hafa gaman,“ segir Þorbjörg, ungmennafélagsandinn ráði ríkjum og mótið snúist um samveru og heilbrigða skemmtun. Á mótinu gefst börnum kostur á að keppa í fjölbreyttum greinum, frjálsar íþróttir, handbolti, fótbolti, krakkahreysti, borðtennis eða jafnvel kökuskreytingar og stafsetningarkeppni svo fátt eitt sé nefnt og segir Þorbjörg skemmtilegt að geta prófað eitthvað nýtt án þess að vera undir einhverri pressu. „Stelpurnar mínar kepptu til dæmis í handbolta, blaki og borðtennis þó þær æfi ekkert af því og skemmtu sér konunglega. Þetta er ekki þessi harða keppni þar sem allt snýst um úrslit. Hér er meira verið að hvetja fólk til að vera með, taka þátt, og njóta samverunnar. Vinahópar geta verið saman í liði og þetta hristir bæði börnin og foreldrana saman.“ Ekki er heldur nauðsynlegt að vera keppandi til að njóta helgarinnar. „Við erum með eina fimm ára sem er ekki komin með aldur til að keppa í neinni grein en það er samt nóg að gera fyrir hana. Það eru leiksvæði, afþreying og alls konar dagskrá allan daginn. Þegar keppnunum lýkur tekur við kvöldvaka, tónlist og fjölskylduskemmtun ,“ segir Þorbjörg en öll afþreying og tónleikar er innifalin í miðaverðinu. Þorbjörg hrósar einnig skipulagi mótsins. „UMFÍ stendur að þessu með sóma og skipulagið var alveg til fyrirmyndar. Þótt það væri fullt af fólki myndaðist aldrei neitt kaos. Það var svo margt í boði að fólk dreifðist vel um svæðið og allt stóðst upp á tíu.“ Það voru vinir sem sannfærðu hópinn um að prófa Unglingalandsmótið í fyrsta sinn. „Hluti af vinahópnum hafði farið áður og hvatti okkur eindregið til að koma. Við fengum að heyra frá fyrstu hendi hvað þetta væri skemmtilegt og ákváðum að slá til. Nú erum við sjálf farin að hvetja aðra til að prófa.“ Hún segir fjölskylduna þegar farin að hlakka til verslunarmannahelgarinnar á Sauðárkróki. „Þetta er svo heilbrigð skemmtun. Krakkarnir hreyfa sig, prófa nýja hluti, og fjölskyldurnar fá dýrmæta samveru. Það er eitthvað fyrir alla. Ef fólk er að velta fyrir sér hvað eigi að gera um verslunarmannahelgina myndi ég hiklaust mæla með því að skella sér á Unglingalandsmótið.“ Skráning og allar upplýsingar er að finna hér. Þar er keyptur miði á Unglingalandsmótið fyrir þátttakendur og tjaldsvæði fyrir alla fjölskylduna. Rafmagn er innifalið í verði fyrir tjaldsvæðinu. Heilsa Íþróttir barna Frjálsar íþróttir Mest lesið Aðdáendur ítrekað farið yfir mörk Lífið Sendum Möggu Stínu í Eurovision Lífið Eftirminnilegir gullmolar úr fjörutíu ára sögu Lífið Eitt „læk“ getur sprengt sambandið – hjá bæði tvítugum og áttræðum Áskorun Leiðinleg frekja segist hvorki leiðinleg né frek Lífið Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Lífið Ákvað strax að hann ætlaði ekki að fela stómað Tíska og hönnun Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Lífið Grætur enn að hafa misst af símtalinu Lífið Finnst hún loksins geta borið höfuð hátt á ný Lífið Fleiri fréttir Rafha fagnar 90 árum með pönnukökum, afmælistilboðum og fjöri Smáralind breytist í tímavél um helgina Tennis, tónlist og samfélag: Happdrætti Blindrafélagsins skiptir máli Siglingar, safarí og suðrænar strendur meðal spennandi sérferða Húsgagnadagar hafnir í JYSK með allt að 40% afslætti Svona getur lyfjaskammtarinn einfaldað daglegt líf Sprenging í sölu saltvatnspotta á Íslandi Kona fagnar tólf árum í nýjum og glæsilegum Firði Mæðgurnar á bak við Kalkliti mæta í Skútuvog Húðin breytist með aldrinum: Hagkaup leggur aukna áherslu á fræðslu „Það er sannarlega óþarfi að mygla inni“ Nýsköpun frá Icewear fyrir íslenskt veðurfar Sótti kvittunina í ruslið og vann draumaferð til Ástralíu Mikil þátttaka í Íslandsmóti fyrirtækja í Kviss Aldur er ekki hindrun heldur nýtt skeið í lífinu „Ég hef svo margar spurningar fyrir Georg Bjarnfreðarson!“ Tíu algeng mistök í daglegri hárumhirðu „Nú skaltu bara fara í pottinn, Pottakóngur!“ Systur skapa heilsusamfélag fyrir konur á öllum æviskeiðum Próteinskammtur alltaf með í töskunni Þrjátíu árum fagnað með fullu húsi og mikilli matarveislu Boney M og Herbert Guðmundsson stíga saman á svið á öðruvísi jólatónleikum Prjónaæði grípur um sig meðal Íslendinga Hátt í þúsund manns mættu í matar- og vínveislu Innnes Lifandi menning í hjarta Hafnarfjarðar Betri svefn byrjar á því sem er næst húðinni 1991 var eitt stærsta ár tónlistarsögunnar Tveggja ára og talar betri íslensku en flest Nýr sólarhringsstaður á Miklubraut: Sbarro, kaffi og verslun allan sólarhringinn Meira til baka með Takk í Bónus og Hagkaup Sjá meira
Skráning er í fullum gangi á mótið og stefnir í fjölmennt og spennandi mót. Þorbjörg verður sannarlega ekki ein á ferð, hópurinn sem hennar fjölskylda tilheyrir samanstendur af sjö fjölskyldum úr Reykjavík og verða yfir tuttugu börn og ungmenni með, sem keppa undir merkjum Fram. „Við mætum öll saman, tjöldum saman og búum til okkar eigið litla þorp. Í fyrra náðum við að vera öll á sama svæði og það skapaði alveg einstaka stemningu, bæði fyrir krakkana og fyrir okkur fullorðna fólkið. Við ætlum okkur að vera mætt snemma til að ná góðu stæði aftur.“ Hún segir Unglingalandsmótið vera allt öðruvísi upplifun en hefðbundin íþróttamót. „Börnin okkar æfa fótbolta og við erum búin að fara á ótal fótboltamót en þetta er allt öðruvísi. Hér er áhersla á að taka þátt, prófa nýja hluti og hafa gaman,“ segir Þorbjörg, ungmennafélagsandinn ráði ríkjum og mótið snúist um samveru og heilbrigða skemmtun. Á mótinu gefst börnum kostur á að keppa í fjölbreyttum greinum, frjálsar íþróttir, handbolti, fótbolti, krakkahreysti, borðtennis eða jafnvel kökuskreytingar og stafsetningarkeppni svo fátt eitt sé nefnt og segir Þorbjörg skemmtilegt að geta prófað eitthvað nýtt án þess að vera undir einhverri pressu. „Stelpurnar mínar kepptu til dæmis í handbolta, blaki og borðtennis þó þær æfi ekkert af því og skemmtu sér konunglega. Þetta er ekki þessi harða keppni þar sem allt snýst um úrslit. Hér er meira verið að hvetja fólk til að vera með, taka þátt, og njóta samverunnar. Vinahópar geta verið saman í liði og þetta hristir bæði börnin og foreldrana saman.“ Ekki er heldur nauðsynlegt að vera keppandi til að njóta helgarinnar. „Við erum með eina fimm ára sem er ekki komin með aldur til að keppa í neinni grein en það er samt nóg að gera fyrir hana. Það eru leiksvæði, afþreying og alls konar dagskrá allan daginn. Þegar keppnunum lýkur tekur við kvöldvaka, tónlist og fjölskylduskemmtun ,“ segir Þorbjörg en öll afþreying og tónleikar er innifalin í miðaverðinu. Þorbjörg hrósar einnig skipulagi mótsins. „UMFÍ stendur að þessu með sóma og skipulagið var alveg til fyrirmyndar. Þótt það væri fullt af fólki myndaðist aldrei neitt kaos. Það var svo margt í boði að fólk dreifðist vel um svæðið og allt stóðst upp á tíu.“ Það voru vinir sem sannfærðu hópinn um að prófa Unglingalandsmótið í fyrsta sinn. „Hluti af vinahópnum hafði farið áður og hvatti okkur eindregið til að koma. Við fengum að heyra frá fyrstu hendi hvað þetta væri skemmtilegt og ákváðum að slá til. Nú erum við sjálf farin að hvetja aðra til að prófa.“ Hún segir fjölskylduna þegar farin að hlakka til verslunarmannahelgarinnar á Sauðárkróki. „Þetta er svo heilbrigð skemmtun. Krakkarnir hreyfa sig, prófa nýja hluti, og fjölskyldurnar fá dýrmæta samveru. Það er eitthvað fyrir alla. Ef fólk er að velta fyrir sér hvað eigi að gera um verslunarmannahelgina myndi ég hiklaust mæla með því að skella sér á Unglingalandsmótið.“ Skráning og allar upplýsingar er að finna hér. Þar er keyptur miði á Unglingalandsmótið fyrir þátttakendur og tjaldsvæði fyrir alla fjölskylduna. Rafmagn er innifalið í verði fyrir tjaldsvæðinu.
Skráning og allar upplýsingar er að finna hér. Þar er keyptur miði á Unglingalandsmótið fyrir þátttakendur og tjaldsvæði fyrir alla fjölskylduna. Rafmagn er innifalið í verði fyrir tjaldsvæðinu.
Heilsa Íþróttir barna Frjálsar íþróttir Mest lesið Aðdáendur ítrekað farið yfir mörk Lífið Sendum Möggu Stínu í Eurovision Lífið Eftirminnilegir gullmolar úr fjörutíu ára sögu Lífið Eitt „læk“ getur sprengt sambandið – hjá bæði tvítugum og áttræðum Áskorun Leiðinleg frekja segist hvorki leiðinleg né frek Lífið Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Lífið Ákvað strax að hann ætlaði ekki að fela stómað Tíska og hönnun Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Lífið Grætur enn að hafa misst af símtalinu Lífið Finnst hún loksins geta borið höfuð hátt á ný Lífið Fleiri fréttir Rafha fagnar 90 árum með pönnukökum, afmælistilboðum og fjöri Smáralind breytist í tímavél um helgina Tennis, tónlist og samfélag: Happdrætti Blindrafélagsins skiptir máli Siglingar, safarí og suðrænar strendur meðal spennandi sérferða Húsgagnadagar hafnir í JYSK með allt að 40% afslætti Svona getur lyfjaskammtarinn einfaldað daglegt líf Sprenging í sölu saltvatnspotta á Íslandi Kona fagnar tólf árum í nýjum og glæsilegum Firði Mæðgurnar á bak við Kalkliti mæta í Skútuvog Húðin breytist með aldrinum: Hagkaup leggur aukna áherslu á fræðslu „Það er sannarlega óþarfi að mygla inni“ Nýsköpun frá Icewear fyrir íslenskt veðurfar Sótti kvittunina í ruslið og vann draumaferð til Ástralíu Mikil þátttaka í Íslandsmóti fyrirtækja í Kviss Aldur er ekki hindrun heldur nýtt skeið í lífinu „Ég hef svo margar spurningar fyrir Georg Bjarnfreðarson!“ Tíu algeng mistök í daglegri hárumhirðu „Nú skaltu bara fara í pottinn, Pottakóngur!“ Systur skapa heilsusamfélag fyrir konur á öllum æviskeiðum Próteinskammtur alltaf með í töskunni Þrjátíu árum fagnað með fullu húsi og mikilli matarveislu Boney M og Herbert Guðmundsson stíga saman á svið á öðruvísi jólatónleikum Prjónaæði grípur um sig meðal Íslendinga Hátt í þúsund manns mættu í matar- og vínveislu Innnes Lifandi menning í hjarta Hafnarfjarðar Betri svefn byrjar á því sem er næst húðinni 1991 var eitt stærsta ár tónlistarsögunnar Tveggja ára og talar betri íslensku en flest Nýr sólarhringsstaður á Miklubraut: Sbarro, kaffi og verslun allan sólarhringinn Meira til baka með Takk í Bónus og Hagkaup Sjá meira