Nýja Garmin Fenix 9 sameinar allt það besta í einu úri Garmin búðin 19. október 2026 11:16 Nýja Garmin Fenix 9 úrið er komið í verslanir hér á landi og hefur fengið góðar viðtökur. Úrið sameinar alla helstu möguleika Garmin í einu tæki. Nýjasta viðbótin í úrval Garmin, Fenix 9, er komin í verslanir hér á landi og hefur þegar fengið góðar viðtökur. Með mun bjartari skjá, auknum vinnsluhraða, endurbættri hönnun og fjölbreyttum eiginleikum fyrir íþróttir, útivist og heilsurækt er markmiðið að færa notendum enn öflugra úr.
Steinar Magnússon, sölumaður hjá Garmin búðinni, segir nýju línuna sérstaklega spennandi fyrir þá sem vilja sameina alla helstu möguleika Garmin í einu tæki. „Garmin kynnti nýju úrin fyrir um mánuði síðan og þau hafa verið að berast til okkar í nokkrum sendingum. Nú erum við komin með allar gerðirnar og viðtökurnar hafa verið mjög góðar,“ segir Steinar, sem sér einnig um samfélagsmiðla Garmin hér á landi. Steinar Magnússon er sölumaður hjá Garmin búðinni og sér einnig um samfélagsmiðla Garmin hér á landi. Hann segir Fenix-línuna lengi hafa verið flaggskip Garmin og að nýjasta kynslóðin sé engin undantekning. Þar fari saman öflug tækni, vönduð hönnun og eiginleikar sem nýtist jafnt í daglegu lífi sem við krefjandi aðstæður. Þrisvar sinnum bjartari skjár Ein stærsta nýjungin í Fenix 9 er skjárinn, sem hefur tekið verulegum framförum frá fyrri kynslóðum. „Ef við berum Fenix 9 Pro saman við Fenix 8 er skjárinn um það bil þrisvar sinnum bjartari. Hámarksbirtan er nú 3.000 nit, sem er gríðarleg framför. Þetta skiptir sérstaklega miklu máli þegar fólk er úti í sterkri sól og þarf að geta lesið auðveldlega af úrinu,“ útskýrir Steinar. Skjárinn hefur jafnframt stækkað í stærstu útgáfunni. Úrin fást í þremur stærðum, 43, 47 og 51 millimetra, og í þeirri stærstu er skjárinn orðinn 1,5 tommur. „Það sem er sérstaklega merkilegt er að þrátt fyrir stærri og bjartari skjá heldur stærsta útgáfan um 30 daga rafhlöðuendingu. Það er mjög góður árangur.“ Vinnsluhraðinn hefur einnig aukist verulega, ekki síst þegar kemur að landakortum og leiðsögn. „Garmin hefur lengi framleitt sérhæfð handtæki fyrir göngu- og útivistarfólk. Nú er Fenix í raun komið með sama gagnagrunn og þessi tæki og vinnslan er jafnvel hraðvirkari. Skjárinn er auðvitað minni en tæknin er orðin ótrúlega öflug.“ Tvær útfærslur fyrir mismunandi þarfir Nýja línan skiptist í Fenix 9 og Fenix 9 Pro. Að sögn Steinars er virkni úranna að mestu leyti sambærileg en nokkur atriði skilja þau að. „Í Pro-útgáfunni er skjárinn bjartari, eða 3.000 nit á móti 2.000 nit í venjulegu útgáfunni. Þá hefur úrkassinn í Pro-línunni verið endurhannaður og er nú allur úr títaníum. Það gerir úrið sterkara og gefur því fágaðra yfirbragð án þess að þyngdin aukist mikið.“ Í þessu úri hefur Garmin í raun sameinað allt það besta sem fyrirtækið býður upp á. Í Pro-línunni er einnig hægt að velja útfærslu með LTE- eða inReach-tækni, sem gerir notendum kleift að senda skilaboð og staðsetningarupplýsingar án þess að hafa farsímann meðferðis. Sú þjónusta er þó háð áskrift og hefur ákveðnar takmarkanir hér á landi. „Við leggjum því ekki sérstaka áherslu á þessa útfærslu nema fólk hafi ákveðna þörf fyrir hana. Flestir velja venjulegt Fenix 9 eða Pro-útgáfuna án þessarar viðbótar.“ Heilsuúr, hlaupaúr og golfúr í einu Það sem gerir Fenix-línuna sérstaka er hversu marga eiginleika Garmin hefur sameinað í einu úri. Þar má finna yfir 100 íþróttastillingar ásamt ítarlegum heilsumælingum, leiðsögukerfum og hefðbundnum snjallúrseiginleikum. „Í þessu úri hefur Garmin í raun sameinað allt það besta sem fyrirtækið býður upp á. Þú ert með mjög öflugt heilsuúr sem mælir meðal annars púls, svefn og skrefafjölda og veitir ýmsar upplýsingar um líkamlegt ástand. Síðan er þetta líka eitt öflugasta hlaupaúr sem við bjóðum,“ segir Steinar. Fyrir hlaupara býður Fenix 9 upp á mun ítarlegri upplýsingar en hefðbundnar mælingar á hraða, vegalengd og púlsi. Úrið getur meðal annars metið hlaupastíl, skilvirkni og álag sem fylgir mismunandi æfingum. „Segjum að þú hlaupir tíu kílómetra á erfiðri leið með mikilli hækkun eða grófu undirlagi. Þá getur úrið metið álagið þannig að þessir tíu kílómetrar jafngildi kannski tólf kílómetrum á auðveldari leið. Þú færð því mun betri mynd af því hversu mikið æfingin reynir á líkamann.“ Útivistarfólk getur nýtt ítarleg landakort, hlaðið inn gönguleiðum og fengið leiðsögn. Úrið skráir einnig skíðaferðir og inniheldur kort af skíðaleiðum á um 2.000 skíðasvæðum víða um heim, þar sem sjá má hvernig leiðirnar liggja og hversu erfiðar þær eru. Golfáhugafólk fær sömuleiðis ýmislegt fyrir sinn snúð. „Í úrinu eru upplýsingar um 43 þúsund golfvelli, kort af brautunum og sýndarkylfusveinn sem getur aðstoðað kylfinga við að skipuleggja leikinn. Svo geturðu auðvitað borgað með úrinu, fengið tilkynningar úr símanum og nýtt alla helstu snjalleiginleikana.“ Ekki bara fyrir afreksíþróttafólk Þótt Fenix 9 sé hannað með þarfir kröfuharðra notenda í huga segir Steinar kaupendahópinn mun fjölbreyttari en margir geri sér grein fyrir. „Þetta eru auðvitað ekki ódýr úr. Verðið byrjar í kringum 175 þúsund krónur og við mælum ekki endilega með því að fólk sem er að stíga sín fyrstu skref í Garmin-kerfinu byrji á Fenix. En fyrir þá sem vilja það besta er þetta það öflugasta sem við getum boðið.“ Þegar kemur að því að sameina öfluga íþrótta- og útivistareiginleika við snjallúr er fátt sem kemst nálægt Garmin. Hann segir kaupendahópinn spanna allt frá reynslumiklu íþróttafólki og útivistaráhugamönnum til fólks sem einfaldlega vill vandað og glæsilegt úr. „Sumir nýta alla möguleikana í æfingum og útivist en aðrir vilja fyrst og fremst mæla púlsinn og telja skrefin. Þeir síðarnefndu velja samt Fenix vegna þess að þeim finnst það flottast og vilja eiga það besta. Úrið er líka með öflugt vasaljós sem kemur oft að góðum notum, t.d. þegar þarf að læðast í sokkaskúffuna á meðan makinn sefur.“ Garmin í sérstöðu á markaðnum Steinar telur helsta styrkleika Garmin felast í sérhæfingu fyrirtækisins í íþróttum, heilsu og útivist. „Ég er auðvitað svolítið hlutdrægur, en að okkar mati eru Garmin-úrin í ákveðinni sérstöðu. Það eru vissulega til snjallúr sem eru öflugri þegar kemur að tölvuvinnslu og bjóða upp á fleiri hefðbundna snjalleiginleika. En þegar kemur að því að sameina öfluga íþrótta- og útivistareiginleika við snjallúr er fátt sem kemst nálægt Garmin.“ Vinsældir Garmin hér á landi hafa jafnframt farið vaxandi og segir Steinar sífellt fleiri bætast í hóp notenda. „Við sjáum að salan virðist aukast á hverju ári. Það er líka mjög virkt samfélag í kringum Garmin á Íslandi og fólk er duglegt að deila upplýsingum um æfingar og hreyfingu. Þegar maður fer á hlaup eða aðra íþróttaviðburði er mjög áberandi hversu margir eru með Garmin-úr.“ Hann segir þróunina skemmtilega, ekki síst vegna þess að markaðurinn virðist stöðugt halda áfram að stækka. „Maður hefði kannski haldið að flestir sem vildu Garmin-úr væru þegar komnir með eitt. En það virðist alltaf vera að bætast við nýtt fólk. Það segir okkur að áhuginn á heilsu, hreyfingu og þessari tækni er sannarlega til staðar.“
Heilsa Mest lesið Diljá Mist á lausu Lífið Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Lífið Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Lífið Stal senunni í sex milljarða króna brjóstahaldara Tíska og hönnun Píparapæja selur pent „penthouse“ Lífið „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Lífið Costanza á klakanum Lífið Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Lífið Pattra og Brynjar slá sér upp Lífið 50+: Hvers vegna við hættum (loksins) að nenna að útskýra okkur Áskorun Fleiri fréttir Ef ég hefði komið einu til tveimur árum seinna hefðum við ekki verið að eiga sama samtal Nýja Garmin Fenix 9 sameinar allt það besta í einu úri Ég vissi sjálf að það var ekki í lagi Ég upplifði mjög sterkt að ég væri að bregðast Ef þú finnur fyrir einkennum, hlustaðu á líkamann Árlega greinast 2.146 einstaklingar: Svona nýtist þinn stuðningur Útilegumaðurinn býður nú meira en ferðavagna og útivistarbúnað Boney M og Herbert Guðmundsson stíga saman á svið á öðruvísi jólatónleikum Svansvottaðar gæðaíbúðir þar sem hugsað er fyrir hverju smáatriði Er bíllinn klár fyrir veturinn? Kíktu á vetrartékklista Bílanausts Nathan fagnaði tímamótum með stærsta viðburði í sögu félagsins Tryggðu þér nýtt rafhjól fyrir 2027 á hagstæðari kjörum Rafha fagnar 90 árum með pönnukökum, afmælistilboðum og fjöri Smáralind breytist í tímavél um helgina Tennis, tónlist og samfélag: Happdrætti Blindrafélagsins skiptir máli Siglingar, safarí og suðrænar strendur meðal spennandi sérferða Húsgagnadagar hafnir í JYSK með allt að 40% afslætti Svona getur lyfjaskammtarinn einfaldað daglegt líf Sprenging í sölu saltvatnspotta á Íslandi Kona fagnar tólf árum í nýjum og glæsilegum Firði Mæðgurnar á bak við Kalkliti mæta í Skútuvog Húðin breytist með aldrinum: Hagkaup leggur aukna áherslu á fræðslu „Það er sannarlega óþarfi að mygla inni“ Nýsköpun frá Icewear fyrir íslenskt veðurfar Sótti kvittunina í ruslið og vann draumaferð til Ástralíu Mikil þátttaka í Íslandsmóti fyrirtækja í Kviss Aldur er ekki hindrun heldur nýtt skeið í lífinu „Ég hef svo margar spurningar fyrir Georg Bjarnfreðarson!“ Tíu algeng mistök í daglegri hárumhirðu „Nú skaltu bara fara í pottinn, Pottakóngur!“ Sjá meira