Segir sama starfið nú auglýst að nýju:„Pínu sárt að horfa upp á þetta“ Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 21. júlí 2026 15:50 Ragnar Freyr Ingvarsson læknir var meðal annars um tíma umsjónarlæknir Covid-göngudeildar Landspítalans. Vísir/Ívar Ragnar Freyr Ingvarsson læknir segir Landspítalann nú hafa auglýst starf hans aftur eftir að hafa lagt það niður. Formleg skýring stjórnenda spítalans á uppsögn hans var að leggja átti starf hans niður vegna hagræðingar í rekstri.
Uppsögn Ragnars Freys Ingvarssonar læknis á Landspítalanum í vor vakti mikla athygli og harða gagnrýni enda hefur víða verið fjallað um að stöðugildi lækna séu mörg ómönnuð. „Efniskröfurnar eru nákvæmlega hinar sömu. Ég get ekki séð neitt annað en að starfið hafi aldrei raunverulega verið niður. Það er bara til þarna ljóslifandi. Og starfið var áfram unnið af öðrum læknum spítalans. Strax daginn eftir að ég var rekinn var sent út neyðarkall til allra lyflækna spítalans til að biðja þá um að koma á vaktir. Það er pínu sárt að horfa upp á þetta,“ segir Ragnar Freyr. „Þá er það orðið morgunljóst að að allar þær forsendur sem voru gefnar fyrir því að ég var látinn fara og starfið lagt niður standast engan veginn. Það er ekki um neinn sparnað að ræða. Það getur ekki verið sparnaður að leggja niður 33 prósent starf og ráða svo í 100 prósent starf, nákvæmlega sama starf,“ segir Ragnar Freyr. Í starfslýsingu auglýsingar Landspítalans kemur fram að starshlutfall sé umsemjanlegt sem Ragnar Freyr gerir athugasemdir við enda var honum sagt að skilyrði fyrir því að hann héldi áfram störfum væri að hann hækkaði í starfshlutfalli. „Það er klárt mál að þar segja stjórnendur Landspítala ósatt. Það var ekkert starf lagt niður. Það er bara ljóslifandi að allar forsendur uppsagnarinnar eru brostnar. Það verður ekki öllu skýrara en í dag hversu fullkomlega ólögmætt þetta er,“ segir hann.
Heilbrigðismál Landspítalinn Vistaskipti Tengdar fréttir Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Ragnar Freyr Ingvarsson læknir hefur fengið formlegt uppsagnarbréf afhent af Rafni Benediktssyni, framkvæmdastjóra bráða-, lyflækninga- og endurhæfingarþjónustu Landspítalans. Hann segir skýringar Rafns á uppsögninni ekki halda neinu vatni og að hann muni láta reyna á lögmæti uppsagnarinnar. 13. apríl 2026 16:53 Segist ekki hafa fengið boð um hærra starfshlutfall Ragnar Freyr Ingvarsson, læknir sem var sagt upp störfum á Landspítalanum í gær, segir það ekki rétt að honum hafi verið boðað hærra starfshlutfall. Farið sé með fleipur. 9. apríl 2026 11:33 Mest lesið Barnaníðingur fékk ekki annað leyfi hjá Hæstarétti Innlent Ljóst hvar hnífurinn stendur í kúnni Innlent Sniðganga Hvíta húsið Erlent Bílastæði við Stúdentagarða verða einkastæði Innlent Verði að bregðast við „bullandi launarýrnun“ Innlent Flugvirkjar eigi að sýna vilja sinn í verki Innlent Landlæknir fellir niður starfsleyfi sex lækna Innlent Lárus Welding á endastöð hjá MDE Innlent Hefði þegið samtal við Jóhannes Innlent Litlu nær um peningana í Fljótagöng Innlent Fleiri fréttir Barnaníðingur fékk ekki annað leyfi hjá Hæstarétti Ljóst hvar hnífurinn stendur í kúnni Bílastæði við Stúdentagarða verða einkastæði Verði að bregðast við „bullandi launarýrnun“ Flugvirkjar eigi að sýna vilja sinn í verki Lárus Welding á endastöð hjá MDE Segja Icelandair hafa hafnað boði um frestun verkfalls Bifreið fjarlægð með krana eftir að eldur kviknaði Litlu nær um peningana í Fljótagöng Hefði þegið samtal við Jóhannes Tekjur af fiski utan kvóta rúmlega fjórfaldast á fimm árum „Norðurlöndin eru ekki að eltast við skráningarskyldu hlaðvarpa“ Muni grípa til nauðsynlegra aðgerða vegna verkfallsins Tveir á vinnupalli sem hrundi Landlæknir fellir niður starfsleyfi sex lækna Útgjaldaaukningin mest hjá Ragnari Skoða hvort útlendingar þurfi að bíða eftir fullri aðstoð Niður í ellefu ára bruni um á allt að 100 kílómetra hraða Börn á rafmagnskrossurum og Kópavogur vill herða reglur Sigmar í veikindaleyfi Tafir á Keflavíkurflugvelli Vilja þingkosningar og staðgöngumæður Samninganefnd Reykjavíkurborgar leyst undan störfum Barn á rafmagnskrossara sótt af foreldrum sínum Rýma húsið: „Draumurinn er að Reykjavíkurborg geti hjálpað okkur“ Skattadrottning þurfti að borga álag eftir allt saman Vill þyngja hámarksrefsingu fyrir að kaupa vændi af barni „Mikill skilningur á því að það þurfti að fara í breytingar“ Hólmarnir í Tjörninni fá andlitslyftingu Missti stjórn á bílnum og hafnaði á vegg Sjá meira
Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Ragnar Freyr Ingvarsson læknir hefur fengið formlegt uppsagnarbréf afhent af Rafni Benediktssyni, framkvæmdastjóra bráða-, lyflækninga- og endurhæfingarþjónustu Landspítalans. Hann segir skýringar Rafns á uppsögninni ekki halda neinu vatni og að hann muni láta reyna á lögmæti uppsagnarinnar. 13. apríl 2026 16:53
Segist ekki hafa fengið boð um hærra starfshlutfall Ragnar Freyr Ingvarsson, læknir sem var sagt upp störfum á Landspítalanum í gær, segir það ekki rétt að honum hafi verið boðað hærra starfshlutfall. Farið sé með fleipur. 9. apríl 2026 11:33