Fylgi Sjálfstæðisflokks ekki meira í sex ár Lovísa Arnardóttir skrifar 1. júlí 2026 19:45 Guðrún Hafsteinsdóttir er formaður Sjálfstæðisflokksins. Vísir/Vilhelm Sjálfstæðisflokkurinn mælist með 24,9 prósenta fylgi í nýjum þjóðarpúlsi Gallups. Fylgi flokksins hefur ekki verið meira frá því í könnun í apríl árið 2020 þegar fylgið var 25,1 prósent samkvæmt frétt RÚV um nýjan þjóðarpúls Gallups.
Í frétt RÚV kemur fram að Samfylkingin mælist stærst en að munurinn á Sjálfstæðisflokki og Samfylkingu sé innan skekkjumarka. Fylgi flokkanna er svipað en þó örlítið öðruvísi en í nýjustu könnun Maskínu frá 23. júní en þar mældist Sjálfstæðisflokkurinn með 22,7 prósent fylgi og bætti þá við sig tæpum þremur prósentum milli kannana. Fylgi Samfylkingar var þá nánast óbreytt í 25,2 prósent og fylgi Miðflokks dalaði örlítið. Í nýjum Þjóðarpúlsi Gallups dregst fylgi Miðflokks einnig saman, eins og hjá Maskínu, og mælist nú 15,1 prósent og dregst saman um tvö og hálft prósentustig milli mánaða. Viðreisn mælist með 11,4 prósenta fylgi sem er örlítið minna en það var hjá Maskínu, 12,4 prósent. Fylgi Framsóknarflokksins minnkaði milli mánaða hjá Gallup og fór úr 6,7 prósentum í 5,3 prósent sem er töluvert minna en það mældist hjá Maskínu í júní þegar það var 8,5 prósent. Vinstri græn á þingi en ekki Flokkur fólksins Vinstri græn mælast í þjóðarpúlsi með fimm prósenta fylgi sem er örlítið minna en hjá Maskínu, 5,4 prósent, en dugar þó bæði til að ná inn mönnum á þing sem flokkurinn gerði ekki í síðustu kosningum. Flokkur fólksins mælist hins vegar í þjóðarpúlsi utan þings með 4,6 prósenta fylgi sem er aðeins meira en hann mældist með hjá Maskínu, 4,1 prósent. Stuðningur við Sósíalistaflokkinn eykst í þjóðarpúlsi Gallup úr 2, prósentum í 4,3 prósent. Sósíalistaflokkurinn mældist með 3,9 prósenta fylgi hjá Maskínu 23. júní. Meirihluti styður ríkisstjórnina Í þjóðarpúlsi Gallup sögðust alls 51 prósent aðspurðra styðja ríkisstjórnina og eykst stuðningur um tvö prósentustig milli mánaða. Samanlagt fylgi ríkisstjórnarflokkanna dregst þó saman um eitt prósentustig og mælist 42 prósent sem er nánast það sama og var hjá Maskínu, eða 41,7 prósent. Könnunin var gerð dagana 1.–30. júní 2026. Heildarúrtak var 12.102 og þátttökuhlutfall 38,5 prósent.
Skoðanakannanir Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Samfylkingin Sjálfstæðisflokkurinn Framsóknarflokkurinn Vinstri græn Sósíalistaflokkurinn Miðflokkurinn Flokkur fólksins Mest lesið Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Innlent Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Innlent Suðaustan stormur og gul viðvörun Veður Á annað hundrað sektaðir Innlent Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum Innlent Fleiri fréttir Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Sjá meira