Mokgræðir á rafmyntum Agnar Már Másson skrifar 1. júlí 2026 07:50 Alls er upphæðin um 1,4 milljarðar dala, sem jafngildir um 176 milljörðum íslenskra króna. Svo það sé sett í íslenskt samhengi þá er markaðsvirði útgerðarfélagsins Brims 164 milljarðar. Getty Donald Trump Bandaríkjaforseti græddi ríflegan milljarð Bandaríkjadala í gegnum rafmyntir í fyrra.
Þetta sýna opinber skjöl sem birt voru í gær, að því er NBC greinir frá. Alls er upphæðin um 1,4 milljarðar dala, sem jafngildir um 176 milljörðum íslenskra króna. Þar af mun forsetinn hafa fengið um 635 milljónir dala á leyfissamningi við rafmyntafélag sem sérhæfir sig í svokölluðum jarmmyntum (e. memecoins) sem bera nafn hans. Tölurnar, sem eru frá 2025, voru birtar siðanefnd ríkisstarfsmanna Bandaríkjanna í 927 blaðsíðna skjali. Til samanburðar var síðasta skýrsla Baracks Obama, forvera Trumps, átta blaðsíður en skýrsla Joes Biden var 11 blaðsíður. Skýrsla J.D. Vance varaforseta fyrir síðasta ár er 17 blaðsíður. Þetta bætist við meira en 236 milljónir dala sem hann fær af sölu annarra rafmyntareigna og viðbótarsölu á hlutafé að verðmæti meira en 65 milljóna dala sem tengist rafmyntaverkefni Trump-fjölskyldunnar, World Liberty Financial. Þar að auki eru meira en 290 milljónir dala flokkaðar sem tekjur af rafmyntaveskjum sem tengjast World Liberty. Í nýlegu bréfi frá demókrötum í öldungadeild Bandaríkjaþings kom fram að fyrirtæki sem kallast „Celebration Cards“, sem væri skráð í Wyoming og nú stór rafmyntamiðstöð, hefði staðið fyrir rafmyntaráðstefnu í Mar-a-Lago í apríl. „Hvorki forsetinn né fjölskylda hans hafa nokkru sinni tekið þátt í, eða munu nokkru sinni taka þátt í, hagsmunaárekstrum,“ sagði fulltrúi Hvíta hússins í yfirlýsingu á þriðjudag. Ólíkt fyrri forsetum seldi Trump ekki eignir sínar eða setti þær í blindan vörslusjóð áður en hann tók við embætti. Trump Organization hefur sagt að eignunum sé stýrt af þriðja aðila og að viðskipti séu framkvæmd með sjálfvirkri tækni. „Það sem mér finnst merkilegt er hversu mörgum deiglunum Trump hefur puttana í,“ er haft eftir Douglas Brinkley, sagnfræðiprófessor við Rice-háskóla, í frétt NBC. „Það er ekkert fordæmi sem hægt er að bera þetta saman við. Enginn forseti á 20. eða 21. öld hefur átt neitt sem er í líkingu við þetta.“ Trump hefur sætt gagnrýni úr báðum flokkum fyrir meinta hagsmunaárekstra, sem Hvíta húsið hefur sem fyrr segir harðneitað.
Donald Trump Bandaríkin Rafmyntir og sýndareignir Mest lesið Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Innlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Innlent Suðaustan stormur og gul viðvörun Veður Á annað hundrað sektaðir Innlent Vill nýjan Úkraínuforseta Erlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Fleiri fréttir Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Sjá meira