Varðskipið Þór: Frá samtakamætti til upphafs Landhelgisgæslu Íslands Íris Róbertsdóttir skrifar 1. júlí 2026 08:33 Árið 1920 hófst einn merkasti kafli sjó- og landhelgissögu Íslands þegar Björgunarfélag Vestmannaeyja keypti skipið Þór. Skipið varð fyrsta íslenska varðskipið og var í senn ætlað til eftirlits með fiskimiðunum við landið og björgunarstarfa, enda hvort tveggja bráðnauðsynlegt. Kaupin á Þór voru gott dæmi um einstakan samtakamátt samfélagsins í Eyjum. Fátækt en ört vaxandi sjávarpláss, sem hafði horft upp á annað hundrað einstaklinga drukkna við Vestmannaeyjar á árunum 1901–1920, tók sig saman um að eignast skip sem gæti varið líf sjómanna og hagsmuni byggðarlagsins. Kaupin voru fjármögnuð að miklu leyti með sölu hlutabréfa meðal Eyjamanna. Yfir 400 einstaklingar í Vestmannaeyjum keyptu hlut í Þór, en heimilin í bænum voru á þeim tíma aðeins um 500. Kaupin voru sameiginlegt verkefni alls samfélagsins. Með útgerð Þórs næstu árin sýndu Vestmanneyingar einstakt frumkvæði. Lítið sjávarpláss tók að sér að sinna verkefnum sem síðar urðu meðal mikilvægustu öryggis- og fullveldisverkefna íslenska ríkisins: að gæta landhelginnar, verja líf sjómanna og tryggja rétt Íslendinga yfir eigin fiskimiðum. Þór sinnti björgunum, eftirliti og landhelgisgæslu af miklum krafti á árunum 1920–1926. Reksturinn var þó alla tíð erfiður og úr varð að íslenska ríkið tók við skipinu hinn 1. júlí 1926. Landhelgisgæsla Íslands er því 100 ára í dag og því ber að fagna, þótt vissulega séu það vonbrigði að núverandi Þór geti ekki komið til okkar hér í Eyjum var vegna alþekktra aðstæðna eins og áætlað var. Hin einstaka saga Þórs, og upphaf Landhelgisgæslunnar, minnir okkur á að mikilvæg þjóðarverkefni geta átt rætur í staðbundnu frumkvæði, samstöðu og ábyrgðartilfinningu. Af þeim sökum skipa Vestmannaeyjar og Björgunarfélag Vestmannaeyja ávallt mikilvægan sess í sögu íslenskrar landhelgisgæslu sem Eyjamenn eru afar stoltir af. Höfundur er bæjarstjóri Vestmannaeyja Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Íris Róbertsdóttir Landhelgisgæslan Öryggis- og varnarmál Tímamót Mest lesið Hin drepleiðinlega Bókun 35 Helgi Hrafn Gunnarsson Skoðun Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher Skoðun Ekki leggja þjóðinni orð í munn Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Barnið sem mælikvarðinn sér ekki Rebekka Rafnsdóttir Skoðun Goðarnir fóru aldrei – þeir skiptu bara um nafn Ragnar Thorarensen Skoðun Hvernig hefurðu það? Carmen Maja Valencia Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson Skoðun Forstjóri CIA heimsækir Moskvu Arnór Sigurjónsson Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir Skoðun Fortíðin vann Baldur Johnsen Skoðun Skoðun Skoðun Sammála – leggjum þjóðinni ekki orð í munn Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Goðarnir fóru aldrei – þeir skiptu bara um nafn Ragnar Thorarensen skrifar Skoðun Hin drepleiðinlega Bókun 35 Helgi Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Spírallinn Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun „Að tilheyra“, tækifæri til að styðja fyrr við unga fólkið okkar Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Barnið sem mælikvarðinn sér ekki Rebekka Rafnsdóttir skrifar Skoðun Er landsbyggðin hluti af lausninni? Hildur Sólveig Sigurðardóttir skrifar Skoðun Netöryggi snýst líka um að þora að segja frá Margrét V. Helgadóttir skrifar Skoðun Fortíðin vann Baldur Johnsen skrifar Skoðun Getur maður verið rasisti án þess að gera sér grein fyrir því? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ekki leggja þjóðinni orð í munn Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Hvernig hefurðu það? Carmen Maja Valencia skrifar Skoðun Minna kerfi, betri þjónusta Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Forstjóri CIA heimsækir Moskvu Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Trump lítið annað en hvíslari í leikritinu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir skrifar Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega skrifar Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson skrifar Sjá meira
Árið 1920 hófst einn merkasti kafli sjó- og landhelgissögu Íslands þegar Björgunarfélag Vestmannaeyja keypti skipið Þór. Skipið varð fyrsta íslenska varðskipið og var í senn ætlað til eftirlits með fiskimiðunum við landið og björgunarstarfa, enda hvort tveggja bráðnauðsynlegt. Kaupin á Þór voru gott dæmi um einstakan samtakamátt samfélagsins í Eyjum. Fátækt en ört vaxandi sjávarpláss, sem hafði horft upp á annað hundrað einstaklinga drukkna við Vestmannaeyjar á árunum 1901–1920, tók sig saman um að eignast skip sem gæti varið líf sjómanna og hagsmuni byggðarlagsins. Kaupin voru fjármögnuð að miklu leyti með sölu hlutabréfa meðal Eyjamanna. Yfir 400 einstaklingar í Vestmannaeyjum keyptu hlut í Þór, en heimilin í bænum voru á þeim tíma aðeins um 500. Kaupin voru sameiginlegt verkefni alls samfélagsins. Með útgerð Þórs næstu árin sýndu Vestmanneyingar einstakt frumkvæði. Lítið sjávarpláss tók að sér að sinna verkefnum sem síðar urðu meðal mikilvægustu öryggis- og fullveldisverkefna íslenska ríkisins: að gæta landhelginnar, verja líf sjómanna og tryggja rétt Íslendinga yfir eigin fiskimiðum. Þór sinnti björgunum, eftirliti og landhelgisgæslu af miklum krafti á árunum 1920–1926. Reksturinn var þó alla tíð erfiður og úr varð að íslenska ríkið tók við skipinu hinn 1. júlí 1926. Landhelgisgæsla Íslands er því 100 ára í dag og því ber að fagna, þótt vissulega séu það vonbrigði að núverandi Þór geti ekki komið til okkar hér í Eyjum var vegna alþekktra aðstæðna eins og áætlað var. Hin einstaka saga Þórs, og upphaf Landhelgisgæslunnar, minnir okkur á að mikilvæg þjóðarverkefni geta átt rætur í staðbundnu frumkvæði, samstöðu og ábyrgðartilfinningu. Af þeim sökum skipa Vestmannaeyjar og Björgunarfélag Vestmannaeyja ávallt mikilvægan sess í sögu íslenskrar landhelgisgæslu sem Eyjamenn eru afar stoltir af. Höfundur er bæjarstjóri Vestmannaeyja
Skoðun „Að tilheyra“, tækifæri til að styðja fyrr við unga fólkið okkar Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar
Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar