Skoðun

Hvað varð um til­lögurnar?

Ragnhildur Jónsdóttir skrifar

Fyrir nokkrum árum framkvæmdi OECD umfangsmikið mat á regluverki í byggingariðnaði og ferðaþjónustu á Íslandi og birti skýrslu um niðurstöðurnar í nóvember 2020. Markmiðið var að greina tækifæri til að efla samkeppnishæfni þessara atvinnugreina, einfalda regluverk og draga úr óþarfa hindrunum í rekstri fyrirtækja.

Niðurstöður skýrslunnar voru athyglisverðar. OECD setti fram 438 tillögur til úrbóta, þar af 316 í byggingariðnaði og 122 í ferðaþjónustu. Í byggingariðnaði sneru tillögurnar meðal annars að einföldun skipulags- og byggingarleyfisferla, endurskoðun byggingarreglugerða, kröfum til byggingarvara og löggildingu starfsstétta. Í ferðaþjónustu beindust þær meðal annars að leyfisveitingum, reglum um gististaði og fólksflutninga, auk þess sem lagt var til að endurskoða rekstrarfyrirkomulag flugvalla og efla samkeppni í þjónustu á Keflavíkurflugvelli.

Þá var ekki síður áhugavert að OECD áætlaði að innleiðing tillagnanna gæti skilað efnahagslegum ávinningi upp á rúmlega 200 milljónir evra á ári. Það nemur um 1% af vergri landsframleiðslu Íslands. Þetta eru umtalsverðar fjárhæðir og sýna hversu miklu máli skilvirkt regluverk getur skipt land og þjóð.

Regluverkið má ekki verða hindrun

Reglur eru nauðsynlegar til að tryggja öryggi, gæði og jafnræði, svo dæmi séu tekin. En þegar regluverk verður of flókið og íþyngjandi getur það aukið kostnað, hamlað nýsköpun og hagvexti og dregið úr samkeppnishæfni landsins. Sérstaklega þarf að gæta að svokallaðri gullhúðun, þegar stjórnvöld ganga lengra við innleiðingu EES-reglna en þörf krefur. Slíkar viðbótarkröfur geta aukið kostnað og flækjustig og því er mikilvægt að meta hvort ávinningurinn réttlæti þær.

Í efnahagsskýrslu OECD frá júní 2025 var einmitt bent á að íslenskt regluverk væri að ýmsu leyti íþyngjandi og hamlaði framleiðni og samkeppni. Í nýlegri úttekt OECD frá apríl 2026 kemur síðan fram að þrátt fyrir þær umbætur sem hafa orðið á síðustu árum, meðal annars í byggingariðnaði og ferðaþjónustu, séu aðgangshindranir nýrra fyrirtækja enn miklar. OECD leggur því áherslu á einfaldari leyfisveitingar og minni stjórnsýslubyrði.

Hvar stöndum við í dag?

Nú þegar tæp sex ár eru liðin frá útgáfu OECD-skýrslunnar frá 2020 er tímabært að skoða hvað hefur áunnist. Í vikunni sem leið lagði ég því fram skýrslubeiðnir á Alþingi ásamt níu öðrum þingmönnum þar sem óskað er eftir upplýsingum um stöðu innleiðingar úrbótatillagna OECD, hvað hefur verið gert, hvað hefur ekki verið gert og hvers vegna. Einnig er kallað eftir tímasettri áætlun um næstu skref og upplýsingum um hvort mælikvarðar og árangursmat séu til staðar sem sýna fram á áhrif innleiðingarinnar á samkeppnishæfni og efnahagslegan ávinning.

Það er að mínu mati óásættanlegt að mikilvægar úttektir og hundruð tillagna til úrbóta liggi fyrir án þess að skýrt yfirlit um eftirfylgni og árangur sé aðgengilegt. Við þurfum ekki fleiri úttektir sem greina vandann. Við þurfum upplýsingar um hvað hefur verið gert til að leysa hann. Vönduð stjórnsýsla felst ekki aðeins í að setja reglur, heldur einnig í að endurskoða þær, fylgja umbótum eftir og sýna fram á árangur.

Höfundur er varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi




Skoðun

Skoðun

Ertu að segja sögu?

Helga Edwardsdóttir,Hanna Birna Valdimarsdóttir,Sigríður Elín Ásgeirsdóttir,Steinunn Júlía Rögnvaldsdóttir Robinson skrifar

Sjá meira


×