„Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Kjartan Kjartansson skrifar 29. júní 2026 15:25 Þó að lukkuhjól Byko hafi verið með fimm vinningum á átta reitum var vinningum raunverulega útdeilt með slembivali tölvualgríms og aðeins ellefu vinningar voru í boði. Vísir/Vilhelm Neytendastofa telur að Byko hafi brotið lög með villandi framsetningu á verðlaunaleik sem fyrirtækið kallaði „lukkuhjól“. Neytendur hafi mátt hafa réttmætar væntingar um mun meiri sigurlíkur en raunin var.
Á svonefndu lukkuhjóli sem Byko auglýsti í nóvember í fyrra og var aðgengilegt á netinu voru átta reitir og á fimm þeirra voru vinningar á borð við kaffivél, borvél og gjafabréf. Þrátt fyrir útlitið á hjólinu voru sigurlíkur þátttakenda þó mun minni en fimm á móti átta. Vinningshafar voru raunverulegar valdir með sjálfvirku slembivali tölvukerfis. Alls voru ellefu vinningar í boði á þeim mánuði sem leikurinn var í gangi. „Lukkuhjól Byko – snúðu til að vinna“ - úr auglýsingu Byko fyrir lukkuhjólið Þegar Neytendastofa gerði fyrst athugasemdir við framsetningu leiksins í janúar og að fyrirtækið kynni að hafa brotið lög neitaði það allri sök. Síðar viðurkenndi það að „samspil sjónrænnar framsetningar leiksins og raunverulegrar virkni“ hefði getað verið skýrari. Engar rangar upplýsingar hefðu þó verið gefnar um eðli leiksins eða framkvæmd hans. Byko benti einnig á að þátttakendur hefðu ekki þurft að greiða fyrir eða þurft að skuldbinda sig til kaupa á vörum. Söfnuðu persónuupplýsingum þátttakenda Neytendastofa benti á að ekkert hefði komið fram í auglýsingum eða skilmálum leiksins að vinningum yrði útdeilt með slembivali og að ekki hefði verið upplýst um fjölda vinninga. Þó að komið hefði fram á samfélagsmiðlareikningi Byko að vinningshafar yrðu dregnir út af handahófi væri ekki hægt að ætlast til þess að þær upplýsingar hefðu borist öllum þátttakendum. Álit stofnunarinnar var að framsetning leiksins væru ekki í samræmi við raunverulega virkni lukkuhjólsins. Þátttakendur í honum hefðu mátt hafa réttmætar væntingar um að líkur á að lenda á vinningsreit væru fimm á móti átta. Framsetningin hefði þannig verið villandi gagnvart neytendum. Þó að þátttakendur hefðu ekki skuldbundið sig fjárhagslega hafi Byko safnað persónuupplýsingum um þá sem tóku þátt í leiknum. Niðurstaðan var að Byko hefði með framsetningu lukkuhjólsins og skorti á upplýsingum brotið lög um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu.
Neytendur Stjórnsýsla Úrskurðar- og kærunefndir Verslun Auglýsinga- og markaðsmál Mest lesið Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Sjá meira