Segir ríkisvaldið hafa fallið á lyfjaprófi Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 29. júní 2026 07:05 Vilhjálmur H. Vilhjálmsson hæstaréttarlögmaður. Vísir/Vilhelm Vilhjálmur H. Vilhjálmsson hæstarréttarlögmaður skorar á ríkissaksóknara að endurskoða öll lögreglumál sem varða lyfjaakstur eftir að ný umferðarlög tóku gildi árið 2020. Hann segir ótækt að ráðherra hafi ekki séð sér fært um að kveða á um vanhæfismörk með nánari hætti en skjólstæðingur hans var sýknaður í Landsrétti eftir að hafa fjórum sinnum ekið bíl undir áhrifum uppáskrifaðs óxýkódon.
Þetta er meðal þess sem fram kemur í aðsendri grein Vilhjálms á Vísi þar sem hann segir ríkið hafa fallið á lyfjaprófi. Hann segir að í ákæru hafi brotin verið talin varða 1. og 2. mgr. 48. grein umferðarlaga, um lyfjaakstur. Áður hafi Héraðsdómur Norðurlands Eystra sakfellt manninn fyrir þessa sömu háttsemi á grundvelli matsgerða rannsóknarstofu Háskóla Íslands, í öllum fjórum tilvikum hafi hann verið metinn óhæfur til að stjórna ökutæki örugglega samkvæmt matstgerð. Því hafi hann með dómi héraðsdóms verið sviptur ökurétti í fimmtán mánuði og gerð fangelsisrefsing. Vilhjálmur segir að í forsendum fyrir sinni niðurstöðu hafi Landsréttur hinsvegar meðal annars sagt að hvað sem liði niðurstöðum matsgerða rannsóknarstofu Háskóla Íslands í lyfja- og eiturefnafræði þá yrði ákærði ekki sakfelldur á grundvelli þeirra einna gegn staðfastri neitun ákærða og klínísku mati læknis sem maðurinn gekkst undir í kjölfar eins akstursins. Vilhjálmur segir að við flutning málsins í Landsrétti hafi sýknukrafa mannsins jafnframt byggt á 6. mgr. 48. greinar umferðarlaga. Þar segi: Ráðherra er heimilt að kveða á um vanhæfismörk með nánari hætti í reglugerð, þ.e. hvenær ökumaður teljist vera óhæfur til að stjórna ökutæki vegna neyslu lyfja. „Þrátt fyrir að umferðarlög nr. 77/2019 hafi tekið gildi 1. janúar 2020 hefur innviðaráðherra u.þ.b. 7 árum síðar ekki ennþá séð sér fært að kveða á um ofangreint í reglugerð með tilheyrandi réttaróvissu, réttarspjöllum og röngum sakfellingum. Það er ótækt í réttarríki.“ Vilhjálmur bendir á að samkvæmt 21. grein laga um meðferð sakamála hafi ríkissaksóknari eftirlit með framkvæmd ákæruvalds hjá öllum ákærendum. „Með vísan til niðurstöðu Landsréttar í máli nr. 785/2025 er skorað á ríkissaksóknara að endurskoða öll lögreglumál, þar sem ökumenn voru kærðir fyrir brot á 1. og 2. mgr. 48. gr. umferðarlaga, frá 1. janúar 2020 til 29. júní 2026, þar sem málunum var lokið með lögreglustjórasátt eða útgáfu ákæru og dómi.“
Dómsmál Lögreglumál Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Fleiri fréttir Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Sjá meira