Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Kjartan Kjartansson og Gunnar Reynir Valþórsson skrifa 19. júní 2026 07:02 J.D. Vance, varaforseti Bandaríkjanna, var kominn út á flugvöll þegar hætt var við ferð hans til Sviss til að ræða við Írani. Vísir/EPA Ekkert verður af fyrirhuguðum viðræðum Bandaríkjanna og Írans sem áttu að hefjast í Sviss í dag. Varaforseti Bandaríkjanna er sagður hafa hætt við á flugvellinum eftir að fréttist af árásum Ísraela á Líbanon í nótt.
Formlegar viðræður Bandaríkjanna og Írans, sem eiga að standa næstu sextíu daga, áttu að hefjast í Sviss í dag eftir að forsetar beggja landa skrifuðu undir samkomulag í vikunni. Búið var að blása viðhafnarundirritun samkomulagsins af en hún átti einnig að fara fram í Sviss. Breska blaðið The Guardian segir að J.D. Vance, varaforseti Bandaríkjanna, og starfslið hans hafi verið mætt út á flugvöll til þess að fljúga til Sviss þegar skyndilega var hætt við ferðina vegna skæranna í Líbanon. Líbönsk stjórnvöld segja að minnsta kosti átján séu látnir eftir árásir Ísraela á sunnanvert landið sem hófust í gærkvöldi. Ísraelar segja árásirnar svar við endurteknum brotum Hezbollah-samtakanna, bandamanna Írans, á vopnahléi. Hezbollah segjast hafa ráðist að ísraelskum hermönnum sem hafi sótt enn lengra inn í Líbanon í grennd við borgina Nabatieh. Viðræðufundurinn í Sviss í dag átti að marka upphaf þeirra sextíu daga sem Íranir og Bandaríkjamenn gáfu sér til þess að semja nánar um vopnahlé, opnun Hormússunds, niðurfellingu viðskiptaþvingana og kjarnorkuáætlun Írana. Íranir líta svo á að samkomulagið við Bandaríkin feli í sér að Ísraelar þurfi að draga herlið sitt til baka frá Suður-Líbanon og virða vopnahlé þar. Ísraelar eru þó ekki aðilar að samkomulaginu og hafa margir háttsettir stjórnmálamenn í landinu verið afar gagnrýnir á ráðahaginn.
Íran Bandaríkin Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Ísrael Líbanon Átök í Ísrael og Palestínu Sviss Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Fleiri fréttir Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Sjá meira