Erlent

Enn eitt skipið sekkur á Svarta­hafi

Samúel Karl Ólason skrifar
Skjáskot úr myndbandi frá vettvangi. Að minnsta kosti einn er látinn og þriggja er saknað.
Skjáskot úr myndbandi frá vettvangi. Að minnsta kosti einn er látinn og þriggja er saknað.

Björgunaraðgerð stendur nú yfir undan ströndum Rúmeníu þar sem flutningaskip er á hvolfi og marar í hálfu kafi eftir að eldur kviknaði þar um borð. Að minnsta kosti einn er látinn og þriggja er saknað eftir að skipinu hvolfdi en óstaðfestar fregnir herma að skipið hafi orðið fyrir dróna.

Að minnsta kosti tveir eru látnir og 25 er saknað eftir þessar drónaárásir.

Tíu Úkraínumenn og þrír Aserar eru í áhöfn skipsins en verið var að sigla því frá Tyrklandi til Sulina í Rúmeníu. Skipið, sem heitir Khoryv og er skráð í Comoros, var statt rúma tuttugu kílómetra austur af Costanta þegar því hvolfdi.

Óljóst er hvort skipið sé sokkið eða ekki. Myndefni sem hefur verið í dreifingu á samfélagsmiðlum sýnir það mara í hálfu kafi í morgun. Yfirvöld í Rúmeníu sögðu líklegt að skipið myndi sökkva en veður hefur gert björgunarstörf erfið.

Rússar hafa gert árásir á þó nokkur flutningaskip á svæðinu, innan efnahagslögsögu Rúmenía og Búlgaríu, NATO-ríkja, á undanförnum dögum. Samkvæmt AP-fréttaveitunni eru árásirnar orðnar að minnsta kosti sjö í þessum mánuði. Þetta yrði þá áttunda árásin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×