Ekki hafi verið ásetningur um að bana sambýliskonunni Lovísa Arnardóttir skrifar 18. júní 2026 13:45 Hæstiréttur mildar dóminn og heimfærir undir annað ákvæði en Landsréttur. Vísir/Vilhelm Hæstiréttur hefur mildað refsingu Þorsteins Hermanns Þorbjörnssonar sem banaði sambýliskonu sinni á heimili þeirra í Naustahverfi á Akureyri í apríl 2024 og sakfellir hann fyrir stórfellt gáleysi sem leiddi til andláts og stórfellt brot í nánu sambandi en ekki manndráp. Hann er í Hæstarétti dæmdur til fjórtán ára fangelsis.
Hæstiréttur telur ekki hægt að sanna að Þorsteinn hafi ætlað að bana sambýliskonu sinni þótt svo að árásin hafi verið ofsafengin. Í Landsrétti var Þorsteinn sakfelldur fyrir manndráp og hlaut sextán ára fangelsisdóm en í Héraðsdómi Norðurlands eystra var hann ekki dæmdur fyrir manndráp heldur ofbeldi í nánu sambandi sem leiddi til dauða og aðeins dæmdur til tólf ára fangelsisvistar. Sá dómur var harðlega gagnrýndur, til dæmis af framkvæmdastýru Kvennaathvarfsins. Varhugavert að gera ráð fyrir ásetningi Beiðni Þorsteins um að áfrýja til Hæstaréttar var samþykkt í febrúar á þessu ári. Í dómi Hæstaréttar kemur fram að dómstóllinn staðfesti niðurstöðu Landsréttar um að Þorsteinn hefði banað sambýliskonu sinni með þeim hætti sem lýst væri í ákæru. Hæstiréttur telji hins vegar varhugavert að gera ráð fyrir því að Þorsteinn hafi ætlað að bana sambýliskonu sinni, það hafi verið ásetningur um það, og því miði Hæstiréttur við að um stórfellt gáleysi hafi verið að ræða og heimfærir brotið til 2. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga. Í beiðni Þorsteins til Hæstaréttar voru, til dæmis, gerðar athugasemdir við nákvæmi ákæru en Hæstiréttur segir að ekki verði séð að ákæruvaldið hafi getað skilgreint með nákvæmari hætti atlögu Þorsteins gegn konu sinni og hvaða aðferðum hann beitti til að valda henni einstökum áverkum. „Lýsingu á þeirri háttsemi sem ákærða er gefin að sök í kafla I í ákæru er því þannig háttað að hann gat ráðið af henni hvaða refsiverðu háttsemi hann væri sakaður um og hvaða ákvæði refsilaga hann væri talinn hafa brotið. Gat ákærða ekki dulist að þar væri lýst lífshættulegri atlögu sem auk annars rauf efri garnahengisbláæðina sem leiddi til blæðingar inn í kviðarhol og banaði brotaþola. Verður ekki séð að vörnum ákærða hafi verið áfátt vegna þessa. Þá hefur ákærði engin rök fært fyrir því í hverju skorti á skýrleika í kafla II í ákæru,“ segir í niðurstöðu og að því meti dómurinn að ákæra í málinu fullnægi kröfum um skýrleika. Notaði ekki vopn Eins og fram kom að ofan komust Héraðsdómur og Landsréttur að mismunandi niðurstöðu um heimfærslu á broti Þorsteins til refsiákvæða þó svo að á báðum dómstigum væri byggt á því að sambærileg atburðarás hefði átt sér stað. Í niðurstöðu Hæstaréttar segir að þó svo að bæði Héraðsdómur og Landsréttur leggi framburð réttarlækna til grundvallar því hvernig Þorsteinn stóð að árás sinni og hvaða svæði líkama brotaþola urðu fyrir henni séu dregnar af því mismunandi ályktanir og komist að öndverðri niðurstöðu um sönnun á huglægri afstöðu ákærða til afleiðinga árásarinnar. Þó svo að árásin hafi verið ofsafengin og, meðal annars, beinst að kviði hennar hafi vopni eða öðrum utanaðkomandi hlut ekki verið beitt við árásina og árásin ekki virst hafa beinst sérstaklega að því að teppa öndunarveg brotaþola. Stórfellt gáleysi frekar en manndráp Þorsteinn hafi beitt konuna afar grófu ofbeldi um langa hríð en ekki sé hægt að draga „haldbærar ályktanir um sérstakan ásetning ákærða til manndráps umrædda nótt“. Engin vitni séu að árásinni, aðdraganda hennar eða eftirmálum og því sé ekki hægt að draga afdráttarlausar ályktanir um ásetning hans til manndráps og því sé ekki hægt að fullyrða að hann hafi haft ásetning um að bana sambýliskonu sinni. „Verður þess í stað að miða við að um hafi verið að ræða stórfellt gáleysi ákærða til afleiðinga verknaðarins sem lyktaði með andláti brotaþola,“ segir í dómi. Hægt er að skoða dóminn hér en þar er einnig fjallað um saknæmi mannsins sem er greindur með heilabilun. Dómurinn taldi hann þó sakhæfan og vísaði til þess að hann hefði alls ekki verið ófær um að stjórna gjörðum sínum. Hann hafi drukkið töluvert af áfengi og beitt konu sína ofbeldi við þær aðstæður.
Manndráp í Naustahverfi á Akureyri Kynbundið ofbeldi Heimilisofbeldi Kynferðisofbeldi Dómsmál Akureyri Mest lesið Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Erlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Innlent Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Fleiri fréttir ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Sjá meira