Viðskipti innlent

Byrjaði sem full­trúi í sölu­deild dóttur­fyrir­tækis og er nú fram­kvæmda­stjóri hjá Eim­skip

Eiður Þór Árnason skrifar
Elísa Dögg Moraitis Björnsdóttir er nýr framkvæmdastjóri Innanlandssviðs hjá Eimskip.
Elísa Dögg Moraitis Björnsdóttir er nýr framkvæmdastjóri Innanlandssviðs hjá Eimskip. Vísir/Anton Brink

Elísa Dögg Moraitis Björnsdóttir er nýr framkvæmdastjóri Innanlandssviðs hjá Eimskip. Sviðinu tilheyra innanlandsflutningar og vörudreifing, vöruhúsa- og frystigeymslustarfsemi ásamt fasteignaumsjón. Elísa tekur formlega við starfinu af Eddu Rut Björnsdóttur, fráfarandi framkvæmdastjóra, á næstu vikum.

Frá þessu er greint í tilkynningu til Kauphallar en Elísa hefur starfað hjá TVG-Zimsen, dótturfélagi Eimskips, frá árinu 2006 og hóf störf sem fulltrúi í söludeild. Á árunum 2010 til 2013 leiddi hún deild sértækra lausna á sviði sjóflutninga og starfaði hún sem deildarstjóri sjó- og flugdeildar á árunum 2013 til 2020. Hún hefur svo verið framkvæmdastjóri TVG-Zimsen frá árinu 2020.

Elísa er sömuleiðis stjórnarformaður North Atlantic Agency, samstarfsvettvangs umboðsmennsku- og flutningafyrirtækja í Norður-Atlantshafi og situr í stjórnum Eimskip Greenland og Gáru ehf., dótturfélaga Eimskips.

Jafnframt kemur fram í tilkynningu að hún sé með B.Sc. gráðu í hagfræði frá Háskóla Íslands og M.Sc. í hagfræði með áherslu á fjármálahagfræði og hagrannsóknir frá University of Sydney í Ástralíu. Elísa er gift Jannis Moraitis og á þrjú börn, auk þriggja stjúpbarna.

„Stjórnunar- og leiðtogahæfileikar Elísu, sem hún hefur sýnt sem framkvæmdastjóri TVG-Zimsen síðustu sex ár, munu skipta máli á sviði sem telur hátt í 400 starfsfólk og er með jafn fjölbreyttan rekstur og raun ber vitni. Fram undan eru spennandi verkefni á innanlandssviðinu og ég hlakka til að vinna með Elísu í nýju hlutverki,“ er haft eftir Vilhelm Má Þorsteinssyni, forstjóra Eimskips.

Fréttin er í vinnslu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×