Fullveldið er undirstaða sveigjanleikans: Hvers vegna EES-samstarfið dugar okkur Kristinn Karl Brynjarsson skrifar 11. júní 2026 15:31 Það er algeng rökvilla í umræðunni um Evrópumál að fólk skiptist í tvær óvinveittar fylkingar: “Gamaldags (vonda) fólkið” svokallaða einangrunnarsina sem vilja einangra landið og hina “nútíma (góða) frjálslyndafólkið” svokallaða evrópusinna sem vilja ganga alla leið inn í Evrópusambandið. Sannleikurinn er sá að það er fullkomlega rökrétt að vera evrópusinni, styðja náið alþjóðlegt samstarf, en setja um leið skýr mörk gagnvart frekara valdaframsali til Brussel. Við getum vel fagnað fjórfrelsinu á sama tíma og við segjum: „Nei takk, við ætlum ekki að framselja til Brussel auðlindastýringu, peningastefnu, dómsmál og utanríkismál landsins.“ Fjórfrelsið — frjáls flæði vöru, þjónustu, fjármagns og fólks — er sennilega það besta sem gat hent auðlindadrifna hagkerfið okkar. Í gegnum EES-samninginn tryggir það íslenskum fyrirtækjum og almenningi aðgang að risastórum innri markaði Evrópu. Þetta samstarf skapar okkur sterkari stöðu á erlendum mörkuðum án þess að við þurfum að fórna stjórnarfarslegu sjálfstæði okkar. Það veitir okkur frelsi til að aðlagast breyttum aðstæðum í okkar eigin heimi á okkar eigin forsendum. Íslenskt efnahagslíf er nefnilega ólíkt flestum öðrum Evrópulöndum. Við byggjum afkomu okkar meðal annars á sveigjanleika, ferðaþjónustu, nýtingu náttúruauðlinda og hraðri aðlögunarhæfni til að aðlagst breyttum aðstæðum. Breyttar aðstæður í heimshagkerfinu eða náttúrunni krefjast alltaf tafarlausra viðbragða. Það að ráða þeim viðbrögðum að mestu sjálf eins og nú er, en þurfa ekki að sníða þau að stöðnuðu eða ósamhverfu hagkerfi annars staðar á meginlandi Evrópu, veitir okkur einmitt það forskot sem við þurfum til að vaxa og dafna. Ef við værum meðlimir í ESB og með evru yrðu ákvarðanir um peningastefnu og auðlindastýringu teknar með hagsmuni heildarinnar í ESB huga, þar sem raddir fárra íbúa á norðurslóðum vega létt, ef þá nokkurt. Að lokum snýst þetta allt um ábyrgð. Ef við getum ekki sinnt okkar eigin hagstjórn sjálf, svo sómi sé að, getur hreinlega enginn annar gert það fyrir okkur. Enginn skilur þarfir íslensks samfélags betur eða gætir hagsmuna þess betur en við sjálf, fólkið sem þrífst í daglegu amstri þess. Sú skoðun að vilja halda í eigin gjaldmiðil og peningastefnu, stjórn fiskimiða og sjálfstæða utanríkisstefnu er ekki einangrunarhyggja. Það er skynsöm og raunsæ hagsmunagæsla þjóðarinnar. Við eigum áfram að vera virkir þátttakendur í evrópsku samstarfi, en við eigum að gera það á okkar forsendum sem fullvalda þjóð sem veit hvar hagsmunir hennar liggja. Höfundur er formaður Verkalýðsfélags Sjálfstæðisflokksins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Kristinn Karl Brynjarsson Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Skoðun Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar