Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Árni Sæberg skrifar 9. júní 2026 13:52 Bergþór Ólason vill ekki sjá Svörtu keiluna þegar hann mætir í vinnuna á Alþingi. vísir/vilhelm Bergþór Ólason, þingmaður Miðflokksins, flutti í dag árlega ræðu sína á Alþingi um ósk hans um að listaverkið Svarta keilan, sem stendur við þinghúsið, verði fjarlægð. Hann kveðst ekki hafa trú á öðru en að nýr meiri hluti borgarstjórnar láti verða af því.
Listaverkið Svarta keilan er eftir Santiago Sierra og var sett niður árið 2012 sem minnisvarði um borgaralega óhlýðni í Búsáhaldabyltingunni svokölluðu í kjölfar efnahagshruns árið 2008. Bergþór hefur lengi verið eindreginn andstæðingur listaverksins og sér í lagi staðsetningar þess. Hann hefur flutt eina ræðu á ári síðastliðin ár og í dag var komið að þeirri áttundu í röðinni. Háðung gagnvart Alþingi „Ég er mættur í árlega ræðu mína þar sem ég hvet forseta Alþingis til að hlutast til um það að Svarta keilan, svokölluð, listaverk, gjörningur, sem á að hefja til skýjanna borgaralega óhlýðni og var sett hér upp sem einhvers konar níðstöng gagnvart Alþingi fyrir framan inngang í Skála, verði fjarlægð,“ sagði hann undir liðnum störf þingsins á þingfundi dagsins. Hann rakti að það hefði verið afstaða forsætisnefndar alveg frá þeim tíma þegar Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir var forseti. Sturla Böðvarsson heitinn, fyrrverandi forseti Alþingis, hefði svo hnykkt rækilega á því í blaðagrein árið 2018 að hér væri um háðung gagnvart Alþingi að ræða. Nýir herrar teknir við Þá sagði Bergþór að hann hefði ákveðið að flytja sína árlegu ræðu nú í ljósi þess að nýir herrar væru teknir við völdum í borgarstjórn. „Ég trúi ekki öðru en að meiri hluti Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknarflokks hafi það í sér að fjarlægja þessa níðstöng, færa hana á einhvern annan stað þar sem skilaboðin til Alþingis eru ekki með þeim hætti sem blasa við hér dag hvern fyrir framan Alþingishúsið. Þetta er það sem ég vildi segja um þetta mál í þetta skipti. Ég held að þetta sé áttunda ræðan sem ég held um þetta atriði. Ég hvet virðulegan forseta til að hlutast til um það núna, gera atlögu að því, að þetta svokallaða listaverk, sem er í mínum huga ljótur og lítilsvirðandi grjóthnullungur, verði fjarlægt og fært á annan stað. Það má vera hvar sem er í mínum huga en ekki hér fyrir framan þennan helga stað sem Alþingi er. Það er til háðungar fyrir þingið að þetta sé enn staðan eftir allan þennan tíma.“
Alþingi Miðflokkurinn Hrunið Styttur og útilistaverk Reykjavík Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent „Það er bara mjög sorglegt“ Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Operation Matrix: Fjölmörg burðardýr fluttu inn minnst 100 kíló af kókaíni Fréttir Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Umferðarslys í Bolungarvík Innlent Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara Innlent Fleiri fréttir Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Sjá meira