Armenar horfa áfram til vesturs eftir kosningar Samúel Karl Ólason skrifar 9. júní 2026 10:22 Nikol Pashinyan, forsætisráðherra Armeníu, ræðir við stuðningsmenn sína í Yerevan. AP/Anthony Pizzoferrato Sitjandi ríkisstjórn Armeníu hefur unnið hreinan meirihluta á þingi. Kosningar voru haldnar þar í landi á sunnudaginn og fékk flokkur Nikols Pashinyan, forsætisráðherra, 49,8 prósent atkvæða. Dugar það til meirihluta á þingi samkvæmt kosningakerfi ríkisins.
Niðurstöðurnar þykja til marks um að kjósendur séu samþykkir því hvernig forsætisráðherrann hélt á spöðunum varðandi friðarsamkomulag við Aserbaídsjan og það hvernig ríkisstjórn hans hefur lagt aukna áherslu á bætt samskipti við Vesturlönd. Eftirlitsaðilar segja Rússa hafa haft afskipti af kosningunum og beitt Armena þrýstingi vegna þeirra, samkvæmt frétt Reuters, í formi ógnana og viðskiptaaðgerða. Kjörsókn var tæp 59 prósent, sem þykir mikið í Armeníu, en tveir stjórnarandstöðuflokkar sem tala fyrir auknum samskiptum við Rússa fengu saman 31 prósent atkvæða. Það er meira en búist var við. Ráðamenn í Rússlandi saka Vesturlönd um að hafa afskipti af kosningunum. Þá voru leiðtogar stjórnarandstöðunnar ákærðir í aðdraganda kosninganna og sakaðir um að hafa reynt að kaupa atkvæði. María Sakaróva, talskona utanríkisráðuneytis Rússlands, sagði í morgun að í Armeníu væri mikil eftirspurn eftir auknum samskiptum við Rússland. Fyrstu kosningarnar frá falli Nagorno-Karabakh Kosningarnar voru þær fyrstu frá árinu 2023, þegar Aserar gerðu innrás í Nagorno-Karabakh og ráku Armena þaðan. Aserar og Armenar höfðu deilt um Nagorno-Karabakh um árabil. Héraðið er hluti af Aserbaídsjan en því hefur verið stýrt af Armenum, sem eru í miklum meirihluta íbúa þar, frá 1994 þegar sex ára stríði ríkjanna lauk. Hersveitir Aserbaísjan réðust inn í héraðið þann 19. september og sögðu að aðskilnaðarsinnar Armena hefðu fellt tvo vegagerðarmenn og fjóra lögreglumenn með jarðsprengjum. Degi síðar gáfust sveitir aðskilnaðarsinna upp. Sjá einnig: Nagorno-Karabakh heyrir sögunni til Armenar hlutu afhroð í átökunum eins og öðrum átökum árið 2020. Þá voru rússneskir friðargæsluliðar sendir til Nagorno-Karabakh og áttu þeir að koma í veg fyrir frekari átök. Rússar voru þá helstu bakhjarlar Armeníu. Sjá einnig: Samkomulagið sagt sársaukafullt og ósigur fyrir Armena Síðan þá hefur flokkur Pashinyans lagt meiri áherslu á samskipti við Evrópusambandið og hafa kosningarnar að miklu leyti snúist um hvert Armenar vilji stefna í framtíðinni. Í aðdraganda kosninganna hafa Rússar beitt Armena viðskiptaþvingunum og refsiaðgerðum. Þá hafa Vladimír Pútín, forseti Rússlands, og aðrir embættismenn líkt stöðu Armeníu við Úkraínu og snúning Úkraínumanna frá Rússlandi til Evrópu, en eins og flestir vita gerðu Rússar innrás í Úkraínu árið 2022 og stendur hún enn yfir. Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, hefur óskað Pashinyan til hamingju með sigurinn og sagði Armena geta treyst á Evrópu. Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sló á svipaða strengi og sagði Bandaríkjamenn standa með Armenum og hlakka til að vinna með þeim að stöðugleika og friði í sunnanverðum Kákasusfjöllum. Congratulations to Prime Minister @NikolPashinyan on his party’s reelection. The United States stands with Prime Minister Pashinyan and Armenia in the pursuit of peace, and we are committed to advancing the goals of the historic Washington Peace Summit, including implementation…— Secretary Marco Rubio (@SecRubio) June 8, 2026 Hefði þurft stærri meirihluta til stjórnarskrárbreytinga Pashinyan tókst ekki að tryggja sér þá tvo þriðju af þingsætum sem til þarf til að gera stjórnarskrárbreytingar í Armeníu. Ráðamenn í Aserbaídsjan hafa krafist þess að Armenar geri slíka breytingu og fjarlægi ákvæði sem þeir segja fela í sér tilkall til Nagorno-Karabakh. Fyrr verði landamæri ríkjanna ekki opnuð aftur og fyrr geti Armenar ekki hafið viðskipti við Tyrkland á nýjan leik. Í samtali við Reuters segir sérfræðingur óljóst hvort Aserar séu tilbúnir til að halda áfram með friðarferlið án slíkra breytinga. Haldi ferlið ekki áfram gæti það reynst Armenum erfitt.
Armenía Nagorno-Karabakh Evrópusambandið Rússland Innrás Rússa í Úkraínu Bandaríkin Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Innlent „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Skafið og saltað Veður „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Innlent Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Erlent Musk setti Úkraínumönnum takmörk á tengingar við Starlink Innlent Fleiri fréttir Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Sjá meira