Dæmdur fyrir tvær nauðganir: Kom steinmunum fyrir í kynfærum konu Jón Þór Stefánsson skrifar 7. júní 2026 10:18 Héraðsdómur Reykjaness dæmdi í málinu. Vísir/Vilhelm Héraðsdómur Reykjaness dæmdi á dögunum karlmann í fjögurra og hálfs árs fangelsi fyrir að nauðga tveimur konum. Í öðru málinu kom hann steinmunum fyrir í kynfærum þolanda síns.
Bæði málin sem maðurinn var ákærður fyrir vörðuðu atvik sem áttu sér stað árið 2023. Hið fyrra í apríl þess árs og hið síðara í október. Þess má geta að nafn mannsins hefur verið fjarlægt úr dómnum. Annars vegar var honum gefið að sök að hafa samræði og/eða önnur kynferðismök við konu án hennar samþykkis á ótilgreindu gistiheimili. Þar mun maðurinn hafa notfært sér að konan gat ekki spornað við verknaðinum sökum áhrifa áfengis og svefndrunga. Hins vegar var hann ákærður fyrir nauðga annarri konu með því að „strjúka ber kynfæri hennar og endaþarm og setja ávalan stein upp í leggöng hennar og ílanga steinstyttu upp í endaþarm hennar.“ Þar var hann einnig sagður hafa notfært sér ástand þolanda síns sem gat ekki spornað við verknaðinum sökum áhrifa lyfja og svefndrunga. „Ef þú hefðir kært mig hefði ég játað allt“ Maðurinn og konan í fyrra málinu höfðu átt í ástarsambandi fyrir mörgum árum og haldið vinskap eftir sambandsslitin. Hann neitaði sök, sagði að þau tvö hefðu verið í keleríi uppi í rúmi á þessu gistiheimili, en hún sofnað og hann þá hætt. Í málinu lágu þó fyrir samskipti þeirra á milli þar sem maðurinn sendi henni meðal annars: „Í apríl síðastliðinn þegar ég gekk of langt að hluta til vegna þess að þú treystir mér og ég upplifi tilfinningar sem ég hélt ég ætti ekki til lengur. Þú varst svo falleg sátt og sofandi og neitaðir aldrei en ég átti að vita betur.“ Þá sagði hann jafnframt: „Ef þú hefðir kært mig hefði ég játað allt.“ Fyrir dómi skýrði hann þessi orð sín með þeim hætti að hann hefði ekki verið að tala um nauðgun heldur að hann hafi verið að kyssa og káfa á henni. Í umræddum samskiptum spurði konan hvort hann hafi nauðgað henni í umrætt skipti, og svaraði hann: „Þú dæmir um það fyrir þig sjálf“. Vaknaði sárþjáð Í síðara málinu lýsti hin konan því að hafa vaknað um morgun, eftir að hafa leyft manninum að gista hjá sér, sárþjáð. Þá hafi hún verið með steina í kynfærunum, og að mjög illa hafi gengið að ná þeim út. Hún sagði engan annan en manninn koma til greina. Maðurinn lýsti atvikum málsins fyrir dómi þannig að hann hafi verið að nudda fætur konunnar, og svo kynfæri hennar. Þetta hafi verið með samþykki konunnar. Þá hafi hann sett „lítinn dildó“ úr „einhvers konar gleri“. Hann sagðist hafa haldið í einhvers konar enda á stykkinu en endinn hefði brotnað af og hann „missti hann í rauninni inn í endaþarminn“. Hjá lögreglu hafði maðurinn þó sagt: „Ég er sekur, ég játa það og er búinn að hugsa mikið um þetta og á sko enga skýringu af, jú ég man alveg eftir þessu og ég vil meina að þetta sé ekki nauðgun heldur kynferðismisnotkun sem er aðeins vægara orð yfir sama hlutinn.“ Beindust að konum í viðkvæmri stöðu Maðurinn var sakfelldur í báðum málunum. Í dómnum segir að bæði brotin hafi beinst að konum sem voru í viðkvæmri stöðu, og í báðum tilfellum hafi hann verið meðvitaður um það. Þó kemur fram að maðurinn hafi sjálfur glímt við umtalsverða vanheilsu. Líkt og áður segir var maðurinn dæmdur í fjögurra ára og sex mánaða fangelsi. Þá er honum gert að greiða hvorri konunni um sig tvær milljónir króna, og þá þarf hann að greiða samanlagt tæplega fimm og hálfa milljón í annan kostnað vegna málsins.
Dómsmál Kynferðisofbeldi Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Erlent Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Innlent Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Veður Fleiri fréttir Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Sjá meira