Hundrað mættu í fyrsta hjólastrætóinn á Kársnesi Smári Jökull Jónsson skrifar 29. maí 2026 20:34 Finnur Pálmi segir verkefnið einnig vera hópefli og þáttaka krakkanna á Kársnesinu hefur verið mjög góð. Vísir/Sigurjón Krakkarnir á Kársnesi hópast nú í hjólastrætó en þá hjóla börn og foreldrar saman í skólann. Þau læra að hjóla í umferðinni og mættu yfir hundrað hjólagarpar þegar fyrsta ferðin var farin. Mikið fjör var í morgun þegar strætóinn var ræstur af stað.
Hjólastrætó sækir innblástur erlendis frá en þar hjóla börn og foreldrar fyrirfram ákveðna leið í skólann. Spiluð er tónlist og þátttaka á Kársnesinu hefur verið afar góð. Skipuleggjendur hafa útbúið heimasíðu þar sem hægt er að sjá tímatöflur, stoppistöðvar og hjólaleiðina og lítið mál er að bæta fleiri áhugasömum hverfum í hópinn. Strætóleiðirnar tvær, norðurleiðin og suðurleiðin, mætast við bensínstöð á Kársnesinu og krakkarnir hjóla svo saman í skólann. Fréttamaður fékk að slást í hópinn í morgun. Hvað er skemmtilegast við að vera í hjólastrætó? „Allir eru saman, það er tónlist og gaman að hjóla í skólann,“ segja Eva, Guðrún Eva og Sóley sem fóru með hjólastrætó í skólann í morgun. Strákar, fáið þið að velja lögin sem eru spiluð? „Nei, en pabbi minn velur eiginlega lögin af því að hann bjó til þennan hjólastrætó,“ segir Uni sem er nemandi í 1. bekk kokhraustur. Auðveldara að koma krökkunum út á morgnanna Að sögn frumkvöðuls verkefnisins mættu yfir hundrað manns þegar fyrsta ferð var farin. Þar sem ekki eru hjólastígar er hjólað á götunni og eitt af markmiðunum er að kenna börnunum að hjóla í umferð. Þetta er væntanlega ákveðið hópefli í leiðinni? „Þetta er það. Við erum búin að kynnast, ekki bara börnin heldur foreldrarnir líka. Mér skilst að það sé miklu auðveldara að koma krökkunum út á morgnanna þannig að ég held að foreldrarnir hafi mjög gaman af þessu líka,“ segir Finnur Pálmi Magnússon, stofnandi hjólastrætó á Kársnesi. „Við settum upp vefsíðu, ég og Uni, og það er mjög einfalt ef fleiri hverfi vilja gera svipaða hluti þá er vefsíðan okkar hönnuð þannig að það er hægt að skrá fleiri leiðir og vagna. Um að gera að hafa samband og ég get hjálpað til við að rúlla afstað. Með reglurnar á hreinu Krakkarnir eru búnir að læra réttu handahreyfingarnar í umferðinni. Hverjar eru reglurnar og hvað þarf maður að kunna? „Þegar maður ætlar að beygja þá réttir maður hendina þangað eða í þessa átt og réttir upp hönd ef maður ætlar að hægja á sér,“ segir Uni og er með allt á hreinu. Að lokum fékk fréttamaður sýnikennslu um hvernig á að haga sér í umferðinni en sjón er sögu ríkari því alla fréttina má sjá í spilaranum hér fyrir ofan. Heimasíða hjólastrætó
Kópavogur Hjólreiðar Börn og uppeldi Krakkar Grunnskólar Skóla- og menntamál Mest lesið Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Erlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Fleiri fréttir „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Sjá meira