Vindmyllugarðar nei takk Lilja Rafney Magnúsdóttir skrifar 28. maí 2026 08:00 Erlend fjárfestingarfyrirtæki sækja stíft að fá að reisa Vindmyllugarða á Íslandi. Þarna eru meðal annars á ferðinni erlendir einkafjárfestar sem vilja mjólka verðmæti og arð út úr raforkuframleiðslu á Íslandi og umbreyta þar með íslenskri náttúru með alvarlegum afleiðingum. Fram hefur komið að sótt hefur verið um að reisa vindmyllugarða á yfir 40 stöðum á landinu. Það var ánægjulegt að heyra að þrjú framboð í nýliðnum sveitarstjórnarkosningunum í Borgarbyggð lýstu andstöðu við uppbyggingu vindorkuvera í sveitarfélaginu. Í Garpsdal í Reykhólahreppi eru uppi hugmyndir að hálfu írskra fjárfestingafyrirtækja að reisa vindorkuver með 21 vindmyllu uppi á fjalli. Hver og ein þeirra yrði hærri en tveir Hallgrímskirkjuturnar. Reynt er að lokka heimamenn til fylgis við áformin með 18,5 milljón króna framlagi á ári í staðinn í sérstakan sjóð. Mikil og óafturkræf áhrif Áhrifin á Dali, Vestfirði og Strandir yrðu gríðarleg. Steypan sem sett yrði í fjallið yrði óafturkræf. Svo ekki sé minnst á sjónræn áhrif, hávaða- og plastmengun og ógn við fuglalíf, meðal annars hafarna. Mikið álag og rask mun fylgja því að koma vindmyllunum á staðinn með tilheyrandi mikilli sjónmengun. Rekstur vindmyllugarðanna myndi síðan skapa fá varanleg störf sem engin trygging yrði fyrir að heimamenn fengju. Engin trygging fyrir orkuöryggi almennings Sama má segja um orkuna. Engin trygging væri fyrir því að hún færi til að mynda í að auka nauðsynlegt raforkuöryggi Vestfirðinga. Markaðurinn myndi algerlega ráða ferðinni. Þessi orka færi að öllum líkindum í að svara mikil eftirspurn orkufrekra stórnotenda á suðvesturhorninu og þar eru gagnaver líklegustu kaupendurnir. Miklir þungaflutningar hafa verið með efni í vindmyllur fyrir Vaðölduver á vegum Landsvirkjunar. Vaðalda verður fyrsta vindorkuver landsins og kostar 6,8 milljarða. Þarna er á ferðinni tilraun að hálfu opinberra aðila á röskuðu svæði. Þessi tilraun mun leiða í ljós hvernig vindmyllur falla að íslenskum aðstæðum á afmörkuðu svæði. Rétt er að sjá hverju hún skilar áður en lengra er haldið. Það er mikilvægt að fara sér hægt í þessum efnum í stað þess að hleypa strax erlendum gróðafyrirtækjum í orkuframleiðslu á Íslandi á kostnað okkar stórkostlegu náttúru. Það er íslensk náttúra sem yfir 90 prósent ferðamanna segja að sé aðal aðdráttarafl þeirra til að heimsækja Ísland. Því má ekki fórna fyrir skyndigróða fjárfestingafyrirtækja. Skammtíma græðgi má ekki ná yfirhöndinni í þessum efnum. Það er nauðsynlegt að koma vindorkunni í ábyrga auðlindanýtingu þar sem náttúran mun alltaf njóta vafans. Hér er brýnt að huga að því að heildarásýnd landsins beri ekki varanlegan skaða af gönuhlaupi gróðaafla. Höfundur er þingmaður Flokks fólksins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Lilja Rafney Magnúsdóttir Flokkur fólksins Vindorka Umhverfismál Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Skoðun Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar