Fær engin símtöl: „Ekkert spenntur fyrir því að vera kostur, hvað, númer fimm?“ Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 22. maí 2026 12:50 Einar Geir Þorsteinsson oddviti Miðflokksins í Hafnarfirði er boðinn og búinn í viðræður um meirihluta. Vísir/Vilhelm Oddviti Miðflokksins í Hafnarfirði furðar sig á því að enginn hafi nálgast flokkinn í meirihlutaviðræðum í bænum. Hann segist velta fyrir sér hvort ástæðan sé fyrirhuguð þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB en viðurkennir að það sé ekki spennandi að vera síðasti valkosturinn í samstarfi. „
Menn eru að útiloka okkur hægri, vinstri og nýr oddviti Samfylkingarinnar líka. Svo kom mjög á óvart að sjá þessa stöðu sem er að teiknast upp, Valdimar að mynda tvo meirihluta á sama tíma og heyrir ekki í okkur Miðflokksmönnum. Það vakti athygli því hann hefur kynnt sig sem bæjarstjóri allra Hafnfirðinga,“ segir Einar Geir Þorsteinsson oddviti Miðflokksins í samtali við Vísi. Líkt og fram hefur komið sleit Sjálfstæðisflokkur meirihlutaviðræðum við Framsókn í gær vegna meints trúnaðarbrests. Þá sagði oddviti Samfylkingar að hún útilokaði samstarf við Framsókn og oddviti Viðreisnar að það hugnaðist henni ekki lengur. Þær sögðu Valdimar Víðisson oddvita Framsóknar hafa leikið tveimur skjöldum og átt í viðræðum við Samfylkingu og Viðreisn á sama tíma og við Sjálfstæðisflokk. Orri Björnsson oddviti Sjálfstæðisflokks sagði í kvöldfréttum Sýnar í gær viðræðurnar hafa í megindráttum snúist um það að Valdimar hafi viljað vera bæjarstjóri áfram. Valdimar hefur hafnað ásökunum um trúnaðarbrest og segist hafa komið fram af heilindum. Sér ekkert í málefnum Miðflokks sem kalli á útilokun Karolína Helga Símonardóttir oddviti Viðreisnar í Hafnarfirði sagði við Vísi í gær að henni hugnaðist ekki samstarf við Miðflokkinn. Líklegasta meirihlutamynstrið í Hafnarfirði nú er Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylkingin miðað við orð oddvita. Hvers vegna heldurðu að svo margir útiloki ykkur? „Ég hef hugsað það, það er ekkert sem hefur verið í okkar málefnum fyrir kosningar sem ætti að valda því að við ættum að vera útilokuð. Oddviti Samfylkingar orðaði það þannig að við værum með hættulega orðræðu,“ segir Einar Geir. Hann segist hafna þeim fullyrðingum með öllu og segist ekki geta séð annað en að útilokunin tengist fyrirhugaðri þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB. Hann furðar sig á því að Viðreisn kjósi frekar að vinna til vinstri með Samfylkingu fremur en til hægri með Miðflokki. Hefurðu sett þig í samband við Valdimar, boðið fram aðstoð þína, hugnast þér samstarf við hann? „Mér hefði hugnast það en maður sér að hann er búinn að hafa samband við alla flokka nema Miðflokkinn. Það segir meira en þúsund orð og veldur því að maður er kannski ekkert spenntur fyrir því að vera kostur...hvað? Númer fimm?“ Hefurðu þreifað á einhverjum oddvitum um mögulegt samstarf? „Ég held að Miðflokkur gæti vel starfað með Sjálfstæðisflokknum en eins og staðan er að teiknast upp núna er þetta ómöguleiki í margar áttir. Margir flokkar að útiloka samstarf hingað og þangað. Þetta er ekki góð byrjun, hvorki hjá Valdimar né nýjum oddvita Samfylkingarinnar.“
Miðflokkurinn Hafnarfjörður Sveitarstjórnarkosningar 2026 Tengdar fréttir „Ég er ekki nógu góður í slíkri skák“ Valdimar Víðisson oddviti Framsóknar í Hafnarfirði og bæjarstjóri segir af og frá að hann hafi sett upp leikrit og komið óheiðarlega fram í meirihlutaviðræðum. Hann hafi komið fram af heilindum og komið því á framfæri við oddvita Sjálfstæðisflokksins í morgun. Framsókn sé enn reiðubúin í meirihlutaviðræður verði þess óskað. 21. maí 2026 16:41 Mest lesið Óveður gengur yfir landið Innlent Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Innlent Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni Innlent Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Innlent Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Innlent Litli spítalinn án samnings og ráðherra sér ekkert svigrúm Innlent Brösugleg byrjun hjá nýjum talsmanni Trumps Erlent Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Innlent Fleiri fréttir Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Skildu þýfið eftir á vettvangi í stolnum bíl Vandinn heimatilbúinn og vill sleppistæði Með gaddakúlu og sprautunálakylfu „Það væri mjög miður“ Litli spítalinn án samnings og ráðherra sér ekkert svigrúm Kallar 25 ára þak á verðtryggð lán sýndarmennsku Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Óþolandi leyndarhyggja ríki um niðurstöður PISA-prófa Vill skýr viðbrögð við trassaskap í losunarmálum í lög Vilja hækka akstursgjald eldra fólks um allt að 163 prósent Aðeins talið sannað að Andri hafi beitt leigjandann ofbeldi Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni „Það andar ekki köldu á milli mín og neinna annarra“ Hreyfingin stærri en einstakar persónur Aftakaveður gengur yfir landið og búist við vegalokunum vegna ófærðar Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Inga vill áfram banna atvinnumannahnefaleika Vatnið finni sér leið í gegnum sprungur Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Óveður gengur yfir landið Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Hvetur verkalýðshreyfinguna til samstöðu Skuldar ekkert Sjá meira
„Ég er ekki nógu góður í slíkri skák“ Valdimar Víðisson oddviti Framsóknar í Hafnarfirði og bæjarstjóri segir af og frá að hann hafi sett upp leikrit og komið óheiðarlega fram í meirihlutaviðræðum. Hann hafi komið fram af heilindum og komið því á framfæri við oddvita Sjálfstæðisflokksins í morgun. Framsókn sé enn reiðubúin í meirihlutaviðræður verði þess óskað. 21. maí 2026 16:41