Samfylkingin mótmælti tillögu borgarstjóra Tómas Arnar Þorláksson skrifar 22. maí 2026 11:13 Parísarhjólið rís á Miðbakkanum í þriðja sinn. Vísir/anton/Reykjavíkurborg Svo virðist sem parísarhjólið muni rísa á Miðbakka í Reykjavíkurhöfn í þriðja sinn í sumar. Borgarráð Reykjavíkur hefur samþykkt tillögu þess efnis að bjóða Taylors Tivoli Iceland ehf. til viðræðna um framlengingu samnings um afnot af svæðinu til að reka parísarhjól, þrátt fyrir mótmæli Samfylkingar.
Þetta kemur fram í fundargerð borgarráðs Reykjavíkurborgar sem kom saman í gær. Þar segir að tillagan hafi verið lögð fram af Heiðu Björgu Hilmisdóttur borgarstjóra á mánudaginn. Tillagan var samþykkt á fundinum en borgarráðsfulltrúar Samfylkingar, Pírata og Sósíalistaflokksins sátu hjá við afgreiðslu málsins. Í tillögu borgarstjóra er lagt til að heimila teymi stefnumótunar og þróunar á skrifstofu borgarstjóra og borgarritara að ganga til viðræðna við fyrirtækið Taylors Tivoli. Skúli Helgason og Dóra Björt Guðjónsdóttir sitja sem fulltrúar í borgarráði fyrir Samfylkinguna en þau lögðu fram bókun á fundinum þar sem tillögu Heiðu var mótmælt. Í bókuninni kemur fram að að mati borgarráðsfulltrúanna sé mikilvægt að Miðbakkinn endurspegli skapandi borgarlíf, menningu og tengsl við náttúruna. Frá fundi borgarráðs í gær. vísir/vilhelm „Að mati undirritaðra fellur Parísarhjólið ekki vel að þeim anda og dregur fremur upp ímynd af ferðamannavæddri afþreyingu sem gæti staðið hvar sem er. Undirrituð hefðu frekar viljað sjá verkefni sem styrkja sérkenni Reykjavíkur og skapa lifandi vettvang fyrir íbúa jafnt sem gesti, eins og til dæmis matarmarkað eða leikrými fyrir börn og ungmenni. Með vísan til þessa velja undirrituð að sitja hjá við afgreiðslu málsins,“ segir í bókuninni. Í greinargerð frá borgarstjóra sem fylgir tillögunni kemur fram að Reykjavíkurborg hafi auglýst eftir samstarfsaðila til að reka parísarhjól á Miðbakka þann 24. maí á síðasta ári. Taylors Tivoli var eini aðilinn sem sótti um en fyrirtækið rak einnig parísarhjól á svæðinu sumarið 2024. Því gæti parísarhjólið risið í þriðja sinn í sumar. Í greinargerðinni kemur einnig fram að fyrirtækið hafi greitt Reykjavíkurborg 650 þúsund krónur á mánuði fyrir afnot á lóðinni. Þá stóð hjólið til 30. september sama ár. Hér má lesa tillögu borgarstjóra í heild sinni en þar segir til að mynda: „Lagt er til að borgarráð samþykki að heimila teymi stefnumótunar og þróunar á skrifstofu borgarstjóra og borgarritara heimild til að bjóða Taylors Tivoli Iceland ehf., kt. 6506190130, til viðræðna um framlengingu samnings um tímabundin afnot Taylors Tivoli Iceland ehf. af Miðbakka, Geirsgötu 15, í þeim tilgangi að Taylors Tivoli Iceland setji þar upp og reki parísarhjól á svæðinu í sumar. Borgarstjóra verði veitt heimild til þess að undirrita samninginn.“
Borgarstjórn Sveitarstjórnarkosningar 2026 Samfylkingin Parísarhjól á Miðbakka Reykjavík Mest lesið Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Innlent Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Innlent „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Innlent Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Innlent Þyrlan lenti við Hörpu Innlent „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Innlent Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Innlent Tortímir gervigreindin mannkyninu? Innlent Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Innlent Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Innlent Fleiri fréttir Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Fá loksins að fagna aldarafmælinu „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Fluttur til aðhlynningar eftir umferðarslys Tortímir gervigreindin mannkyninu? „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Sjaldgæfur gestur í Eyjum Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Skriða þveraði veginn í Árneshrepp Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Allt umfram 2,8 milljarða dregið frá Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Húsbíll fauk út af Hver ákvað að Guðmundur Ingi ætti að hætta? Sjá meira