Inga skipar nýjan skólameistara Borgarholtsskóla Sigurgeir Þorkelsson skrifar 21. maí 2026 13:27 Ásta Laufey er nýr skólameistari Borgarholtsskóla. Mynd/Menntamálaráðuneytið Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, hefur skipað Ástu Laufeyju Aðalsteinsdóttur í embætti skólameistara Borgarholtsskóla til fimm ára frá 1. júlí næstkomandi. Umsækjendur um starfið voru tveir.
Styr hefur staðið um stöðu skólameistara við Borgarholtsskóla undanfarin misseri. Fyrrum skólameistari, Ársæll Guðmundsson, vann sinn síðasta vinnudag í lok mars þessa árs. Honum hafði verið tilkynnt í byrjun desember 2025 af þáverandi menntamálaráðherra, Guðmundi Inga Kristinssyni, að staðan hans yrði auglýst, þvert á allar hefðir. Í tilkynningu til starfsfólks sagði Ársæll þá að honum þætti ljóst hvað stæði að baki ákvörðun ráðherrans en hann hafði mánuðina á undan haldið úti gagnrýni á áform ráðherra um breytingar á framhaldsskólastigi. Guðmundur Ingi var á þessum tíma varaformaður flokksins en Ársæli hafði áður lent saman við formann Flokks fólksins, Ingu Sæland, í skómálinu fræga. Vísir sagði frá því í lok janúar síðasta árs að Inga, þá félagsmálaráðherra, hefði hringt til Ársæls og haft í hótunum við sig vegna týnds skópars. Skórnir voru í eigu barnabarns hennar sem var nemandi við skólann. Ásta Laufey hafði síðustu mánuði starfað sem settur skólameistari. Þar á undan starfaði hún við skólann í yfir 25 ár sem kennari, verkefnastjóri mannauðsmála og aðstoðarskólameistari. Ásta Laufey er með meistaragráðu frá Háskóla Íslands í mannauðsstjórnun og meistaragráðu í ensku auk kennsluréttinda frá sama skóla. Hún lauk grunnnámi í ensku við Háskóla Íslands.
Framhaldsskólar Skóla- og menntamál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Vistaskipti Reykjavík Mest lesið Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Sjö ára dómur Innlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Veður Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað Innlent Ekki ástæða til að rýma bankann Innlent Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Innlent Georg Páll er næsti forseti ASÍ Innlent Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Innlent Fleiri fréttir Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Hafa sett upp keðjur og bönd við Reynisfjöru Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar „Þetta situr náttúrulega í manni“ Nauðsynlegt að ríkið fjármagni fleiri stöðugildi Sjá meira