Hafa þurft að draga verulega úr olíuframleiðslu vegna árása Samúel Karl Ólason skrifar 20. maí 2026 22:45 Skjáskot úr myndbandi sem ríkisstjóri Moskvu-héraðs birti á samfélagsmiðlum á dögunum. Úkraínumenn gerðu nýverið umfangsmikla árás á héraðið. AP/Andrei Vorobyev Rússar hafa neyðst til draga úr framleiðslu eða jafnvel stöðva hana alveg í mörgum af helstu olíuvinnslum ríkisins. Það er vegna ítrekaðra drónaárása Úkraínumanna á olíuinnviði eins og vinnslur, dælustöðvar og geymslutanka en vegna þeirra hafa Rússar bannað alfarið útflutning á unnu eldsneyti í það minnsta út júlí.
Ein af stærstu olíuvinnslum Rússlands, í Kirishi, hefur verið lokuð frá 5. maí. Árásir hafa verið gerðar á olíuvinnslur víðsvegar um Rússland. Vólódímír Selenskí hefur lýst þessum árásum sem skilvirkustu refsiaðgerðunum gegn Rússlandi, þar sem þær eru sagðar koma verulega niður á tekjum ríkisins. Bretar tilkynntu í dag að þeir ætluðu að fresta nýjum refsiaðgerðum gegn Rússlandi vegna hækkandi olíuverðs. Sala á olíu, olíuafurðum og jarðgasi er langstærsta tekjulind rússneska ríkisins. Samkvæmt greiningu Reuters hafa Rússar stöðvað eða dregið úr framleiðslu í vinnslustöðvum sem vinna um 83 milljón tonn af bensíni, dísil og öðrum olíuafurðum á ári. Þegar kemur að bensíni er um að ræða þriðjung allrar framleiðslunnar í Rússlandi en fjórðung af dísilframleiðslu. Auk þess að koma niður á olíuframleiðslu og þar af leiðandi tekjum rússneska ríkisins hafa árásirnar einnig leitt til náttúruspjalla. Blaðamenn New York Times ræddu til að mynda við íbúa í bænum Tuapse, við strendur Svartahafs, en í þessum mánuði og þeim síðasta hafa Úkraínumenn að minnsta kosti fjórum sinnum ráðist á olíuvinnslu þar. Einn íbúi líkti andrúmsloftinu í bænum við það að standa við hlið útblástursrörs bíls og sagðist hættur að klæðast hvítum fötum þar sem sót og olíudropar sæjust á þeim vegna elda sem hafa kviknað í olíuvinnslunni vegna árásanna. Mikið magn af olíu hefur einnig lekið út í Svartahafið. Embættismenn í Rússlandi hafa ekki viljað veita upplýsingar um umfang náttúruspjallanna að öðru leyti en að segja að búið sé að búið sé að fjarlægja mikið af jarðvegi og sandi frá strandlengjunni við Tuapse. Íbúi sagði NYT að skaðinn væri mun meiri en yfirvöld vildu viðurkenna. Langur aðdragandi að umfangsmeiri árásum Umfang drónaárása Úkraínumanna í Rússlandi virðist hafa aukist töluvert á undanförnum vikum og mánuðum. Sérfræðingar segja það hafa átt sér nokkuð langan aðdraganda. Úkraínumenn hafa bæði lagt mikla áherslu á að bæta framleiðslu á langdrægum sjálfsprengidróna og það að elta sérstaklega uppi rússnesk loftvarnarkerfi á undanförnum árum. Þannig eru þeir taldir hafa gert göt á loftvörnum Rússa. Rússneskir herbloggarar sögðu frá því undir kvöld að nokkuð umfangsmikil drónaárás væri að eiga sér stað. Another night of a multi-hundred Ukrainian attack drone raid into Russia. Per one Russian monitoring channel, a few minutes ago: "[Ukrainian] UAV launches continue. Lots of them. " pic.twitter.com/R4JUHkw3vn— OSINTtechnical (@Osinttechnical) May 20, 2026 Rússar hafa einnig gert mjög umfangsmiklar árásir í Úkraínu og virðist sem umfang þeirra hafi einnig aukist. Þetta hefur gerst á sama tíma og verulega hefur hægt á framsókn Rússa á víglínunni í Úkraínu.
Rússland Vladimír Pútín Bensín og olía Úkraína Innrás Rússa í Úkraínu Hernaður Mest lesið Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Innlent Fjölskyldur hafi þegar hætt við að flytja aftur til Grindavíkur Innlent „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Innlent Tryggvi Gíslason er látinn Innlent Stefna á að opna kaffistofuna síðar í þessum mánuði Innlent Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Innlent Gerir Repúblikönum á þingi enn lífið leitt Erlent Íranir gerðu hefndarárásir á herstöðvar í nágrannaríkjunum Erlent „Þetta er hreinn uppspuni“ Innlent Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Innlent Fleiri fréttir Ísland friðsælasta land heims nítjánda árið í röð Tólf látnir og níu særðir eftir skotárás í Jóhannesarborg Óeirðir í Belfast eftir hnífstungu Íranir gerðu hefndarárásir á herstöðvar í nágrannaríkjunum Gerir Repúblikönum á þingi enn lífið leitt Bandaríkjamenn ráðast á Íran Segir Írani hafa skotið niður þyrlu Bandaríkjanna Stríðið gegn holdétandi flugunni fær nýtt líf Kristersson í kröppum dansi á kosningaári Virðist bjartsýnn á að gæfan sé að snúast Úkraínumönnum í hag Armenar horfa áfram til vesturs eftir kosningar Ekkert lát á árásum Ísraelsmanna í suðurhluta Líbanon Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Marius látinn laus Xi í heimsókn hjá Kim: Í keppni við Pútín um áhrif í Pyongyang Báðir segjast hættir, í bili Strunsaði úr viðtali: „Þú ert annaðhvort spillt eða heimsk“ Bretar setja ofan í við Vance vegna undirróðurs Skutu niður dróna yfir Lettlandi í fyrsta sinn Öflugur jarðskjálfti úti fyrir Filippseyjum í nótt Ísraelar og Íranir skiptast á skotum en Trump segist við stjórnvölinn Íranir skjóta á Ísrael Stór rafmagnsflugvél reynd fyrir fyrsta flug Bregðast við skammarbréfi Þorgerðar og félaga Fær fangelsisfrí til að heimsækja móður sína Lungnaígræðsla ekki lækning heldur sjúkdómaskipti Sátu að sumbli þegar eldur blossaði skyndilega upp í bifreið Fengu yfir sig holskeflu haturs eftir að þau ákváðu að binda enda á meðgönguna Pútín hafnar fundi með Selenskí og ítrekar kröfur Rússa Vill fá Ísland inn og tólf í viðbót Sjá meira