Rick og Morty á stóra skjáinn Magnús Jochum Pálsson skrifar 21. maí 2026 09:54 Afinn Rick og afabarnið Morty lenda reglulega í ótrúlegustu ævintýrum. Teiknimyndaþættirnir Rick and Morty um geðvonda og brjálaða uppfinningamanninn Rick og taugaóstyrka afabarnið Morty eru á leið á stóra skjáinn. Framleiðsla kvikmyndar um félagana er í frumstigum. Þættirnir hófu göngu sína 2013 og fer níunda þáttaröðin í loftið um helgina.
Dan Harmon, annar höfunda þáttanna, greindi frá fregnunum í samtali við bíómiðilinn Cinemablend og síðan hefur kvikmyndastúdíóið Warner Bros. staðfest að myndin sé í framleiðslu. Rick og Morty eiga ekki alltaf skap saman. Leikstjórinn Jacob Hair, sem hefur haft yfirumsjón yfir leikstjórn seríunnar síðustu ár, er sagður munu leikstýra myndinni en frekari upplýsingar um sögu hennar eða frumsýningu liggja ekki fyrir. Justin Roiland, sem skapaði þættina með Harmon, talaði fyrir bæði Rick og Morty í þáttunum og var hluti af handritshöfundateyminu fyrstu sex þáttaraðirnar en var rekinn úr þáttunum árið 2023 eftir að hann var sakaður um heimilisofbeldi. Síðan þá hafa Ian Cardoni og Harry Belden talað fyrir Rick og Morty. Sögusagnir hafa lengi verið á sveimi um að þættirnir yrðu að kvikmynd og í október 2023 sagði Harmon við The Hollywood Reporter að hann væri byrjaður að funda um gerð slíkrar myndar. Hann staðfesti það svo loksins í vikunni. „Mín humgynd er að taka Rick og Morty-ævintýri og eyða miklu meiri pening í það og gera það níutíu mínútna langt,“ sagði Harmon jafnframt. Myndin yrði þá meira eins og einn langur þáttur en hefðbundin mynd. Níunda þáttaröð Rick og Morty verður frumsýnd á Adult Swim sunnudaginn 24. maí en stiklu fyrir hana má sjá hér að neðan:
Bíó og sjónvarp Hollywood Mest lesið Grætti nánast alla í athöfninni Lífið Endaði einn í Færeyjum í sögulegri steggjun Lífið Krýndur tískukóngur fótboltans Tíska og hönnun Michael Byrne er látinn Bíó og sjónvarp Leikarapar selur í 101 Lífið Logi fór á skeljarnar við Como-vatn Lífið Söngvari YMCA látinn Tónlist „Fór fram úr mínum ýktustu björtustu vonum“ Lífið Ókunnug mamma ekki sátt með kaupin Tíska og hönnun Kokkur ársins grillar tvo rétti sem allir geta leikið eftir Lífið samstarf Fleiri fréttir Michael Byrne er látinn Fyrsta stiklan úr mynd Eggers og Sjónar James Burrows látinn Laufey Lín er mætt til Springfield Ef meðferðarlotan beri ekki árangur verði hann ekki í næstu þáttaröð Tyra Banks kærir Netflix fyrir ærumeiðingar Ekki talað við Franco lengi og vill ekki vinna með honum aftur Þórður leikstýrir kvikmyndaútgáfu Dead by Daylight Margaret Kerry er látin Fann ástina í örmum snyrtifræðings frá Staffordshire Harbour rýfur þögnina Sigurjón Sighvatsson heiðraður í Locarno James Handy stunginn til bana af syni kærustu sinnar Biðst afsökunar á áratugagömlu gríni með „blackface“ Youtube-leikstjórar kaffærðu Stjörnustríði Sjá meira