Carla Jeffery látin 33 ára að aldri Magnús Jochum Pálsson skrifar 3. september 2026 15:53 Carla Jeffery lék í um þrjátíu kvikmyndum og sjónvarpsþáttaseríum á ferli sínum. Getty Leikkona Carla Jeffery er látin, 33 ára að aldri. Jeffery byrjaði tólf ára gömul að leika í kvikmyndum og sjónvarpi og var þekktust fyrir leik sinn í þáttunum Curb Your Enthusiasm, Disney-myndinni Zombies og framhaldsmyndum hennar.
Umboðsskrifstofa leikkonunnar, Alexander's Talent Management, greindi frá andláti leikkonunnar en hún lést þriðjudaginn 1. september síðastliðinn. Dánarorsök Jeffery liggur ekki fyrir. „Hjörtu okkar eru brotin nú þegar við sygjum fráfall okkar elskulegu Cörlu Jeffery. Í meira en tuttugu ár var Carla hluti af Alexander's Talent Management-fjölskyldunni og að fá að fylgjast með henni vaxa úr hæfileikaríkri ungri stúlku í fallega, geislandi konu og síðan leikkonuna sem hún varð, voru ótrúleg forréttindi,“ sagði í tilkynningu umboðsskrifstofunnar. Carla Jeffery fæddist 10. júlí 1993 í Houston í Texas og lék tólf ára gömul í sinni fyrstu kvikmynd, gamanmyndinni Phat Girlz (2006). Næstu árin eftir það lék hún smáhlutverk í fjölda kvikmynda og sjónvarpsþátta, meðal annars í tíu þáttum af Curb Your Enthusiasm sem karakterinn Keyshia Black í sjöttu og sjöundu seríu þáttanna. Stærsta hlutverk Jeffery á ferlinum var klappstýran Bree í Disney-uppvakningamyndinni Zombies (2018) og lék hún hlutverkið áfram í framhaldsmyndunum Zombies 2 (2020) og Zombies 3 (2022) auk þess að talsetja karakterinn í teiknimyndaþáttunum Zombies: The Re-Animated Series (2024).
Andlát Bandaríkin Bíó og sjónvarp Hollywood Mest lesið „Af hverju eru allir að gefa ránfuglinum að borða?“ Lífið Hryllingur og hiti á klúbbnum Lífið „Götustelpan“ glöð Lífið Hættur með fimmtíu árum yngri kærustunni Lífið „Ég fæddist nefnilega á endalausu breytingarskeiði“ Lífið samstarf Stjörnum prýtt teiti hjá Kötu Jak Lífið Ekki gálgadans heldur hæ dúddelí dæ Gagnrýni Stjörnurnar fögnuðu flúruðum Maroni Tónlist Fær nafn átta árum eftir opinberun Leikjavísir Fundu ástina á Domino's Lífið Fleiri fréttir „Ég er enn að venjast andlitinu á mér“ Iceguys beint á toppinn og íslenska bíóárið mallar Skaut sig óvart í fótinn Iceguys reyndu við Hasselhoff Orðrómur um ástir breskra Traitors-stjarna Biðjast afsökunar og kippa umdeildum þáttum úr birtingu Hrollvekjur til að horfa á yfir hrekkjavökuna Andlát Panettiere úrskurðað sem slys Enn og aftur dæmdur í fangelsi Ómetanlegt fyrir samkynhneigðan strák í skápnum Balti og Sunneva brugðu sér af bæ Nýr Bond lítur dagsins ljós von bráðar White Lotus-stjarna bætist í leikhópinn Síminn stoppar ekki vegna heimildarmyndar Kempa leikstýrir tálbeitutrylli Ólafs Darra Glee snýr aftur Cage og Banderas í næstu seríu True Detective Hætta við sýningu á The Social Reckoning á Íslandi Hleypur í skarðið vegna persónulegra mála Reeves Stelpurnar snúa aftur Horfa fram á sögulegt tap Diggers Kynlíf miðaldra kvenna í brennidepli Elma seld til útlanda Douglas gengst við enn einu framhjáhaldinu Hrútar orðnir að kóreskum kálfum La Gradiva hlaut Gullna lundann „Þetta eru verstu fréttir sem ég hef fengið á ævi minni“ Gengst loksins við fjörutíu ára gömlu ástarævintýri með Turner Leikur í myndinni en skilur ekki nokkurn skapaðan hlut Sjá meira