Hlaut óvænt heiðursverðlaun RIFF Áróra L Davíðsdóttir skrifar 26. september 2026 13:34 Sigurjóni Sighvatssyni var komið skemmtilega á óvart í Háskólabíói í gær. Riff Kvikmyndaframleiðandinn Sigurjón Sighvatsson fékk óvænt heiðursverðlaun RIFF í gær fyrir æviframlag sitt til kvikmyndalistarinnar. Verðlaunin voru veitt á sérstakri tvöfaldri sýningu samstarfsverka Sigurjóns og leikstjórans heitins Davids Lynch.
Sigurjón var viðstaddur sýningu á upphafsþætti þáttanna frægu Twin Peaks og nýrrar 4K-endurgerðar kvikmyndarinnar Wild at Heart en verkin komu bæði út með fárra vikna millibili árið 1990. Í tilkynningu frá RIFF segir að verkin tvö séu tímamótaverk í samstarfi Lynch og Sigurjóns og skipa sömuleiðis sérstakan sess í höfundarverki Lynch. Wild at Heart hlaut meðal annars Gullpálmann á kvikmyndahátíðinni í Cannes og Twin Peaks er sagt hafa opnað nýjan kafla í sjónvarpssögunni. Afhending verðlaunanna fór fram í tengslum við sérstaka tvöfalda sýningu á verkum Davids Lynch, sem haldin var í tilefni af 40 ára afmæli Propaganda Films.RIFF „Kvöldið varð þannig bæði hátíð kvikmyndalistarinnar og persónulegur heiðursvottur til eins áhrifamesta íslenska kvikmyndaframleiðandans á alþjóðavettvangi,“ segir í tilkynningu frá RIFF. Heiðursverðlaunahafar RIFF eru að jafnaði kynntir með margra vikna fyrirvara. Að þessu sinni var þó ákveðið að halda tilnefningunni og verðlaunaafhendingunni leyndri. RIFF hafi því komið Sigurjóni skemmtilega á óvart í gærkvöldi. Meðal fyrri handhafa heiðursverðlauna RIFF eru tékkneski leikstjórinn Miloš Forman, þýska leikkonan Hanna Schygulla, kanadíski leikstjórinn David Cronenberg, bandaríska leikkonan Kim Novak og ungverski leikstjórinn Béla Tarr.RIFF „Með heiðursverðlaununum þakkar Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík Sigurjóni Sighvatssyni fyrir æviframlag hans til kvikmyndalistarinnar. Ferill hans sýnir hversu mikilvægt hlutverk framleiðandans er við að gera djarfar hugmyndir að veruleika og skapa verk sem lifa með áhorfendum áratugum saman.“ Listræn djörfung hafi einkennt Propaganda Films Í ár eru fjörutíu ár liðin frá því að Sigurjón, ásamt öðrum, stofnaði Propaganda Films. Framleiðslufyrirtækið hafi átt stóran þátt í að móta myndmál kvikmynda, sjónvarps, auglýsinga og tónlistarmyndbanda og skapað framsæknu listafólki svigrúm til að fylgja eigin sýn. Samstarf Sigurjóns og Lynch sé dæmi um þá „listrænu djörfung“ sem hafi einkennt Propaganda Films. Alþjóðlega kvikmyndahátíðin í Reykjavík 2026, RIFF, hófst 24. september og stendur til 4. október.
RIFF Bíó og sjónvarp Tengdar fréttir Uppselt á opnunarmyndina í tveimur sölum Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík hefst í kvöld, fimmtudaginn 24. september, með sýningu opnunarmyndarinnar The Last First: Winter K2 í Háskólabíói. Uppselt er í bæði sal 1 og sal 2, enda hefur myndin vakið gríðarlegan áhuga. 24. september 2026 18:34 Edda með tárin í augunum Edda Björgvinsdóttir segist vera með tárin í augunum af þakklæti en hún var heiðruð á setningu UngRIFF, kvikmyndahátíð fyrir börn og ungmenni og veitti Halla Tómasdóttir forseti Íslands henni heiðursverðlaunin í Smárabíó. Þá var hátíðin einnig sett í Króksbíói á Sauðárkróki. 23. september 2026 16:08 Alexander Skarsgård heiðraður á RIFF Sænski stórleikarinn Alexander Skarsgård verður heiðursgestur á setningu RIFF, alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar í Reykjavík, í ár sem sett verður í Háskólabíói fimmtudaginn 24. september. Skarsgård tekur við heiðursverðlaunum RIFF í ár fyrir framúrskarandi listfengi. 3. september 2026 12:33 Mest lesið „Þegar ég syng finn ég mest fyrir pabba“ Lífið Segir stjórnendur Ungfrú Ísland hafa gert upp á milli keppenda Lífið Málverk af Danakonungi vekur athygli Menning Fréttatía vikunnar: Kíró, tár og ræningjarenna Lífið „Bjóða upp á einhverja díla sem meika engan sens og undirbjóða allt“ Lífið Svín út um allt í fallegu einbýli Björns Braga Lífið Gugga í gúmmíbát handtekin á frumsýningu Bíó og sjónvarp „Ég hef svo margar spurningar fyrir Georg Bjarnfreðarson!“ Lífið samstarf Taka upp Netflix þætti í miðbænum og Tina Fey óvæntur gestur Lífið Hlaut óvænt heiðursverðlaun RIFF Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Hlaut óvænt heiðursverðlaun RIFF Gugga í gúmmíbát handtekin á frumsýningu „Þetta snýst um líf og dauða“ Níu bíómyndir sem berjast um heitustu verðlaunin Gömul leyndarmál koma upp á yfirborðið Streymisveitan Apple TV loksins á Íslandi Hinsta ferð Johns Snorra á hvíta tjaldið Sjónvarp Símans opnar veitu helgaða bresku sjónvarpsefni Sögulegur tvöfaldur sigur á Emmy-verðlaunum Af TikTok á skjáinn Carla Jeffery látin 33 ára að aldri Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Jörðin undir fótum okkar framlag Íslands til Óskarsverðlauna Alexander Skarsgård heiðraður á RIFF Klaufskar löggur, kvartanir yfir kynlífi og kúkur á húddi Stjörnurnar syngja inn haustið Stjörnufans á frumsýningu Um tímann og vatnið Rödd Eyrnaslapa og Optimusar Prime er öll Tim Curry er látinn Hasarmyndahjón heiðursgestir á RIFF Áhrifamikil rómantísk gamanmynd fær framhald Harington tekur við af uppteknum Hoult Ástin sem eftir er tilnefnd til kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs Meghan snýr aftur á skjáinn Etur kappi við Obama og Reynolds Bautista hleypur í skarðið Depp í viðræðum um endurkomu sem Jack Sparrow Bestu hlutverk Hayden Panettiere Ólafur Darri herjar á ringlaðan Jamie Dornan „Sterklega orðaður“ við Bond og efstur hjá veðbönkum Sjá meira
Uppselt á opnunarmyndina í tveimur sölum Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík hefst í kvöld, fimmtudaginn 24. september, með sýningu opnunarmyndarinnar The Last First: Winter K2 í Háskólabíói. Uppselt er í bæði sal 1 og sal 2, enda hefur myndin vakið gríðarlegan áhuga. 24. september 2026 18:34
Edda með tárin í augunum Edda Björgvinsdóttir segist vera með tárin í augunum af þakklæti en hún var heiðruð á setningu UngRIFF, kvikmyndahátíð fyrir börn og ungmenni og veitti Halla Tómasdóttir forseti Íslands henni heiðursverðlaunin í Smárabíó. Þá var hátíðin einnig sett í Króksbíói á Sauðárkróki. 23. september 2026 16:08
Alexander Skarsgård heiðraður á RIFF Sænski stórleikarinn Alexander Skarsgård verður heiðursgestur á setningu RIFF, alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar í Reykjavík, í ár sem sett verður í Háskólabíói fimmtudaginn 24. september. Skarsgård tekur við heiðursverðlaunum RIFF í ár fyrir framúrskarandi listfengi. 3. september 2026 12:33