Elma seld til útlanda Magnús Jochum Pálsson skrifar 9. október 2026 10:55 Unnur Birna Backman fer með hlutverk rannsóknarlögreglukonunnar Elmu. Íslenska framleiðslufyrirtækið Glassriver hefur samið við alþjóðlega dreifingaraðilann Mediawan Rights um erlenda dreifingu íslensku glæpaþáttaraðarinnar Elmu. Þættirnir byggja á Marrinu í stiganum eftir Evu Björgu Ægisdóttur og verða frumsýndir hérlendis á Sjónvarpi Símans 15. október næstkomandi.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Glassriver. Elma hefur þegar verið seld til Finnlands en sala þáttanna á fleiri mörkuðum hefst á MIPCOM í Cannes, stærstu kaupstefnu heims fyrir sjónvarpsefni, sem haldin verður dagana 12. til 15. október. Þar koma framleiðendur, dreifingaraðilar og fulltrúar sjónvarpsstöðva og streymisveitna saman til að kynna nýtt efni og semja um kaup og dreifingu þess. „Við erum mjög ánægð með samstarfið við Mediawan. Það er eitt af öflugri dreifingarfyrirtækjum Evrópu og bindur miklar vonir við Elmu. Reynsla þeirra og þekking á erlendum mörkuðum skipta miklu máli þegar við kynnum þættina fyrir kaupendum,“ segir Andri Ómarsson, framkvæmdastjóri og framleiðandi hjá Glassriver. Glassriver framleiðir Elmu í samstarfi við belgíska framleiðslufyrirtækið Lunanime og kemur finnska sjónvarpsstöðin MTV einnig að verkefninu. Þættirnir gerast á Akranesi, þangað sem lögreglukonan Elma snýr aftur á æskuslóðir eftir sambandsslit. Þegar kona finnst látin við vita í bænum hefst rannsókn sem leiðir í ljós gömul leyndarmál. Katrín Björgvinsdóttir og Þóra Hilmarsdóttir leikstýra þáttunum. Karen Björg Eyfjörð Þorsteinsdóttir er aðalhandritshöfundur og skrifar handritið ásamt Elísabetu Hall og Urði Egilsdóttur. Unnur Birna Backman fer með aðalhlutverkið og með önnur hlutverk fara Nikulás Hansen Daðason, Hjálmar Hjálmarsson, Kristín Þóra Haraldsdóttir, Hilmar Guðjónsson, Brynhildur Guðjónsdóttir, Valur Freyr Einarsson, Katla Njálsdóttir, Jörundur Ragnarsson og Sólveig Arnarsdóttir. Hér að neðan má sjá stiklu úr þáttunum:
Kvikmyndagerð á Íslandi Bíó og sjónvarp Finnland Frakkland Tengdar fréttir Hasar, húmor og hryllingur til að hámhorfa í haust Haustið er komið og þá er fátt betra en að fara upp í sófa, hjúfra sig undir teppi og hámhorfa yfir sig af sjónvarpsefni. Það er af nægu að taka á hinum ótal streymisveitum sem eru í boði og hefur Vísir tekið saman góðar þáttaraðir til að glápa á í haust. 30. september 2026 07:01 Unnur Birna verður Elma Leikkonan og rísandi stjarnan Unnur Birna Bachman fer með hlutverk Elmu í samnefndri þáttaröð sem er væntanleg næsta vetur. Serían er byggð á glæpasögunni Marrið í stiganum eftir Evu Björg Ægisdóttur. 24. september 2025 10:56 Mest lesið Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Lífið Patrick Stewart látinn Lífið Hætt við að hita upp fyrir Azealiu Banks Tónlist Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti Lífið Erna Mist og Þorleifur selja Lífið Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Lífið „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Lífið Missti röddina á ögurstundu Lífið Fleiri fréttir Andlát Panettiere úrskurðað sem slys Enn og aftur dæmdur í fangelsi Ómetanlegt fyrir samkynhneigðan strák í skápnum Balti og Sunneva brugðu sér af bæ Nýr Bond lítur dagsins ljós von bráðar White Lotus-stjarna bætist í leikhópinn Síminn stoppar ekki vegna heimildarmyndar Kempa leikstýrir tálbeitutrylli Ólafs Darra Glee snýr aftur Cage og Banderas í næstu seríu True Detective Hætta við sýningu á The Social Reckoning á Íslandi Hleypur í skarðið vegna persónulegra mála Reeves Stelpurnar snúa aftur Horfa fram á sögulegt tap Diggers Kynlíf miðaldra kvenna í brennidepli Elma seld til útlanda Douglas gengst við enn einu framhjáhaldinu Hrútar orðnir að kóreskum kálfum La Gradiva hlaut Gullna lundann „Þetta eru verstu fréttir sem ég hef fengið á ævi minni“ Gengst loksins við fjörutíu ára gömlu ástarævintýri með Turner Leikur í myndinni en skilur ekki nokkurn skapaðan hlut Bransafólk í blússandi fíling Hasar, húmor og hryllingur til að hámhorfa í haust Hjónin David Leitch og Kelly McCormick hlutu heiðursverðlaun RIFF Hlaut óvænt heiðursverðlaun RIFF Gugga í gúmmíbát handtekin á frumsýningu „Þetta snýst um líf og dauða“ Níu bíómyndir sem berjast um heitustu verðlaunin Gömul leyndarmál koma upp á yfirborðið Sjá meira
Hasar, húmor og hryllingur til að hámhorfa í haust Haustið er komið og þá er fátt betra en að fara upp í sófa, hjúfra sig undir teppi og hámhorfa yfir sig af sjónvarpsefni. Það er af nægu að taka á hinum ótal streymisveitum sem eru í boði og hefur Vísir tekið saman góðar þáttaraðir til að glápa á í haust. 30. september 2026 07:01
Unnur Birna verður Elma Leikkonan og rísandi stjarnan Unnur Birna Bachman fer með hlutverk Elmu í samnefndri þáttaröð sem er væntanleg næsta vetur. Serían er byggð á glæpasögunni Marrið í stiganum eftir Evu Björg Ægisdóttur. 24. september 2025 10:56