Hildur fundar með öllum og ekkert gefið upp Sunna Sæmundsdóttir skrifar 18. maí 2026 12:02 Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins, í sigurvímu á kosninganótt. Vísir/Vilhelm Oddviti Sjálfstæðisflokksins mun í dag funda með oddvitum allra framboða sem náðu fulltrúa inn í borgarstjórn. Prófessor í stjórnmálafræði segir Hildi Björnsdóttur með öll tromp á hendi og standa frammi fyrir pólitísku vali um meirihluta í íhalds- eða frjálslyndisátt.
Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins, mun í dag eiga fund með oddvitum allra framboða sem náðu inn fulltrúa í borgarstjórn. Leynd hvílir yfir fundarhöldunum og hafa þeir oddvitar sem fréttastofa hefur rætt við lítið viljað gefa upp um dagskrána og vísað til þess að Hildur stjórni ferðinni. Ekki hefur náðst í hana í morgun. Þrátt fyrir að allt sé opið virðast tveir nokkuð augljósir kostir í stöðunni; að Sjálfstæðismenn myndi annað hvort meirihluta með Miðflokki eða Viðreisn og Framsókn. Eiríkur Bergmann prófessor í stjórnmálafræði, segir báða kosti vel geta gengið upp en telur þó aðeins líklegra að síðarnefnda samstarfið verði niðurstaðan. Eiríkur Bergmann, prófessor í stjórnmálafræði.Vísir/Anton Brink „Það gæti verið svona meiri breidd og meiri friður varðandi ásýndina af þeim meirihluta. Í rauninni er val Hildar að fara annað hvort í íhaldsátt eða í frjálslyndisátt. Það er valið sem hún stendur frammi fyrir.“ Báðir kostir fela í sér tólf manna meirihluta og Eiríkur telur ekki útilokað að þeir verði stækkaðir með aðkomu fleiri flokka en þörf sé á. Einar Þorsteinsson oddviti Framsóknar í Reykjavík. Vísir/Vilhelm „Það er alltaf erfitt að vera í meirihluta sem byggist á einum manni. Þá hefur í rauninni hver borgarfulltrúi nánast neitunarvald í hverju máli. Það gæti alveg verið klókt að reyna að stækka slíkan meirihluta og taka fleiri inn. Það er herbragð sem Dagur B. Eggertsson beitti gjarnan í sínum meirihlutum, að hafa þá frekar stærri en minni upp á að hafa upp á eitthvað að hlaupa.“ Ari Edwald oddviti Miðflokksins í Reykjavík.Vísir/Vilhelm Eiríkur bendir á að Miðflokkurinn hafi vaxið verulega í stjórnarandstöðu. Það henti flokknum vel að vera áskorandi. Til þess að friða sína kjósendur þyrfti flokkurinn í meirihlutasamstarfi að ná fram afgerandi kosningamáli, líkt og endurskoðun borgarlínu frá grunni. „Flokkurinn þarf þá að ná einhverju slíkur fram til þess að vera trúverðugur og það getur verið erfitt fyrir Ajálfstæðisflokkinn. Auðvitað er þó alltaf hægt að finna einhverjar málamiðlanir sem geta gengið upp og af frambjóðendum Miðflokksins er Ari Edwald langt frá því að vera sá herskáasti.“ Eiríkur segir meirihlutamyndun eiga að geta gengið nokkur hratt fyrir sig. „Þetta er fyrst og fremst bara val sem Hildur stendur frammi fyrir, í hvaða átt hún vill fara, og hún þarf í rauninni bara fyrst og fremst að gera það upp við sjálfa sig.“
Sveitarstjórnarkosningar 2026 Reykjavík Sjálfstæðisflokkurinn Viðreisn Miðflokkurinn Borgarstjórn Framsóknarflokkurinn Sósíalistaflokkurinn Vinstrið Samfylkingin Mest lesið Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Fleiri fréttir Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Sjá meira