Innlent

Golfarar reynt að borga sig fram fyrir bið­listana

Jakob Bjarnar skrifar
Haukur Óskarsson segir að honum hafi verið boðið sex stafa tala ef hann myndi kippa aðila fram fyrir biðlista. Og fyrsti stafurinn þar hafi ekki verið einn.
Haukur Óskarsson segir að honum hafi verið boðið sex stafa tala ef hann myndi kippa aðila fram fyrir biðlista. Og fyrsti stafurinn þar hafi ekki verið einn. vísir

Haukur Óskarsson, framkvæmdastjóri Nesklúbbsins, greinir frá því að dæmi séu um að sér hafi boðist fúlgur fjár ef viðkomandi yrði kippt fram fyrir röðina á biðlista klúbbsins.

Þetta kom fram í golfhlaðvarpsþættinum Seinni níu, sem er í umsjá þeirra Loga Bergmanns Eiðssonar og Jóns Júlíuss Karlssonar. Þar ræddu þeir við Hauk meðal annars þetta að hann hefur leikið alla golfvelli landsins á einu og sama árinu. Þetta með mútugreiðslurnar kom fram í lok þáttarins.

Golfæðið á Íslandi er síst í rénun. Haukur upplýsti að bara hjá Nesklúbbnum væru yfir tvö þúsund manns sem bíða eftir aðild. Vísir hefur áður fjallað um hina alræmdu biðlista.

Haukur upplýsti þá spurður um að honum hefði boðist sjö stafa tilboð frá aðila sem vildi kaupa sér leið fram fyrir biðlistann og að fyrsti stafurinn í því tilboði hefði ekki verið einn. Haukur segist hins vegar hafa verið fastur fyrir og hafnað þessu enda trúi hann því staðfastlega að á biðlistunum verði þetta allt að fara eftir settum reglum.

Ljóst er að ásókn manna í golfklúbba er mikil en allir golfklúbbar á höfuðborgarsvæðinu eru löngu sprungnir og hafa þar myndast langir biðlistar. Nú er svo komið að menn eru greinilega tilbúnir að neyta allra leið til að komast að.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×